Fréttatíminn - 19.06.2015, Blaðsíða 88
19. júníHelgin 19.-21. júní 2015 15
Fjóla Kristín Helgadóttir, starfsmannastjóri hjá IKEA á Íslandi og Valgerður María Friðriksdóttir aðstoðarstarfsmannastjóri.
IKEA sýnir jafnréttisstefnu í verki
IKEA á Íslandi var meðal fyrstu fyrirtækjanna til að hljóta jafn-
launavottun VR í apríl 2013. Með vottuninni skuldbindur IKEA sig til
að greiða jöfn laun og sömu kjör fyrir sambærilega frammistöðu
og jafnverðmæt störf óháð kyni, kynþætti eða öðrum órökstudd-
um viðmiðunum.
J afnlaunavottun VR var fyrst kynnt í febrúar 2013 og var IKEA meðal þriggja fyrirtækja
sem hlaut vottunina þremur mánuð-
um seinna. Jafnlaunavottunin er fyrir
öll fyrirtæki og opinberar stofnanir
og byggir á Jafnlaunastaðli Staðlar-
áðs Íslands. Undanfarin ár hefur
umræðan um kynbundinn launa-
mun verið áberandi og samkvæmt
VR hefur kynbundinn launamunur
innan félagsins dregist saman um
rúman þriðjung frá árinu 2000. Þó er
enn 9,4% óútskýrður munur á launum
karla og kvenna innan VR.
Hluti af jafnréttisáætlun
Hjá IKEA á Íslandi starfa um 270
starfsmenn, helmingur þeirra eru
konur. „Það er hluti af starfsmanna-
stefnu okkar að framfylgja jafnrétt-
isáætlun fyrirtækisins og fellur jafn-
launastefna þar undir,“ segir Fjóla
Kristín Helgadóttir, starfsmanna-
stjóri hjá IKEA. Með jafnréttisáætl-
un er það markmið fyrirtækisins að
sjá til þess að hver einstaklingur sé
metinn á eigin forsendum og fyllsta
jafnræðis sé gætt milli allra starfs-
manna. „Það er auðvelt fyrir fyrir-
tæki að setja niður á blað skriflega
yfirlýsingu um hvernig skuli vinna
að og viðhalda sanngirni og jafn-
rétti. Annað mál er svo að fara eftir
því og fá það staðfest og sannreynt
af óháðum aðilum. Það hlýtur því
að vera jákvætt fyrir vinnustaði og
traust starfsmanna til stjórnenda
fyrirtækisins að fá óháða aðila til að
sannreyna að engin mismunun á sér
stað innan fyrirtækisins hvað launa-
ákvarðanir varðar, eða verklag sem
snýr að þeim,“ segir Fjóla Kristín.
Vottun án launabreytinga
„Vorið 2013 ákváðum við hjá IKEA
að fara í gegnum jafnlaunaferli VR
þar sem framkvæmd var fagleg út-
tekt óháðra aðila á því hvort innan
veggja fyrirtækisins væri verið að
greiða misjöfn laun fyrir jafn verð-
mæt störf,“ segir Fjóla Kristín.
Vottunarferlið gekk afar vel. „Við
getum verið stolt af því að hafa
fengið vottunina án þess að þurfa
að breyta launum hjá nokkrum
starfsmanni. Þetta var því í góðum
farvegi hjá okkur fyrir vottunina en
vissulega var stórt skref að hljóta
vottunina þar sem hún sannreynir
að orð eru sýnd í verki hjá okkur
hvað varðar jafnlaunastefnuna.“
Hjá IKEA fer reglulega fram endur-
mat með reglubundnum hætti þar
sem utanaðkomandi aðilar fram-
kvæma launagreiningu og rýna í
vinnubrögð og ferla. „Í síðustu við-
haldsúttekt sem framkvæmd var
núna í júní mældist kynbundinn
launamunur 0,1%, sem við erum
afar stolt af. Við hvetjum fyrirtæki
til að sýna orð í verki, setja sér jafn-
launastefnu og sækja sér jafnlauna-
vottun. Vottunin er stórt skref í því
að tryggja jafnrétti á vinnumarkaði
og afnema kynbundinn launamun,“
segir Fjóla Kristín.
Unnið í samstarfi við
IKEA
Til hamingju með
daginn konur!