Fréttatíminn


Fréttatíminn - 19.06.2015, Qupperneq 91

Fréttatíminn - 19.06.2015, Qupperneq 91
19. júní Helgin 19.-21. júní 201518 Perspi Guard Bakteríusápa og svitastoppari Dreifing: Ýmus ehf Fæst í apótekum Til meðhöndlunar á vandamálum vegna ofsvitnunar „Húrra fyrir okkur konum! Og dálítið húrra fyrir Hannesi Hafstein“ sagði Bríet Bjarnhéðinsdóttir í kjölfar áfangasigurs í baráttunni fyrir auknum réttindum kvenna. Bríet gaf Hannesi rauðar rósir með hvítum og bláum silkiböndum í þakklætisskyni fyrir liðveisluna. Í minningu vináttunnar og samvinnunnar skrýðist Hannesarholt rauðum rósum á þessum merku tímamótum. Hannesarholt óskar öllum konum og körlum til hamingju með hundrað ára afmæli kosningaréttar kvenna og fátækra karla. Verið velkomin í húsið sem Hannes Hafstein byggði fyrir hundrað árum síðan. Opið alla virka daga frá 8-17 og um helgar frá 11-17. Hvað breytist þegar konur fara á þing? Hvaða máli skiptir það? „Það skiptir ótrúlegu máli þegar maður lítur yfir söguna og sér hvaða mál er verið að ræða á þingi. Það eru til dæmis konur sem hafa áhuga á réttindum kvenna. Karlar hafa það líka svona í orði en á borði eru þeir uppteknari af öðrum hlutum. Það situr í mér sænsk rannsókn sem var gerð fyrir tíu árum á meðal sænskra þing- manna. Þar kom í ljós að aðeins 6% þingmanna, þ.e karlanna, höfðu áhuga á réttindum kvenna. Þetta segir manni að það sé beinlínis nauð- synleg fyrir konur að hafa konur á þingi, og þar með samfélagið allt því það er nú byggt af bæði körlum og konum.“ Nú er oft sagt að konur komi „mýkri“ málefnum að, sem snerti frekar heimilið og fjölskylduna. Að þeirra áherslur í pólitík séu aðrar en karla. Er það rétt? „Það er talað um mýkri mál en í reynd eru þetta afar hörð mál. Þetta eru miklu harðari mál en til dæmis hafnarstjórn eða utanríkismál. Þetta eru mál sem snerta okkar daglega líf og snerta kviku þess að vera manneskja, og það er mjög hart og erfitt. Stundum er sagt að konur hafi verið settar í félagsmálin og fengu bara að vera í hinu og þessu, en þá finnst mér vera lítið gert úr þeim. Kannski var það óvart að konur voru settar í þessi mál þar sem körlunum þóttu þetta vera léttvægari málaflokkar. En það eru þeir al- deilis ekki.“ Hvernig er best að virkja konur? Eru kynjakvótar góðir til þess? „Ég hef nú alltaf verið fylgjandi kvótum. Bæði sem manneskja og sem stjórnmálafræðingur sem hefur fylgst mikið með skrifum um hvernig á að fjölga konum á þingi. Þetta er umræða sem hefur farið fram frá því að ég man eftir mér. Og kvótar eru fljótlegasta leiðin til að fjölga konum, eða hverjum þeim sem maður vill sjá meira af. Ef reglurnar eru skýrar þá skapa þeir líka minnst vandræði. Við getum litið á kvóta svona eins og stillans þegar við erum að byggja fallegt hús. Við viljum að húsið standi og setjum upp still- ansa til að gera húsið enn fallegra og geta unnið í næði og í öruggu umhverfi. Svo þegar það get- ur staðið sjálft þá tökum við stillansana í burtu og það fallega kemur í ljós. Kvótarnir eru stoðir í kringum það sem við viljum sjá, en um leið og það er komið þá getum við tekið þær í burtu.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Land- spítalinn tók til starfa árið 1930 og gamla byggingin er minnis- varði um kosn- ingarétt kvenna. Við skulum aldrei gleyma því.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.