Ægir - 01.03.2003, Page 11
F R É T T I R
Aðalsteinn segist í ferð sinni
hafa rætt við margt fólk úr röðum
sjómanna, fiskverkenda og fisk-
vinnslufólks og hann hafi hvergi
skynjað annað en mikla sátt um
fiskveiðistjórnarkerfið sem unnið
er eftir, en það byggist í megin-
atriðum á sóknardagakerfi og
svæðalokunum.
,,Þá er mjög eftirtektarverk að
sjá að ekki er sami munur á laun-
um fiskverkafólks og sjómanna
og þekkist hér á landi. Þrátt fyrir
að Færeyingar séu að keppa á
sömu mörkuðum og við með af-
urðir sínar sjá þeir sér fært að
greiða verkafólkinu í landi 1000-
1100 krónur í tímakaup. Þetta er
fast kaup og þeir segjast ekki
vilja sjá neina bónusa aða önnur
afkastahvetjandi kerfi, en sumir
sem ég ræddi við sögðust hafa
kynnst slíku á Íslandi,” segir
Aðalsteinn.
Aðalsteinn segist hafa kynnt sér
starfsemi fiskmarkaða í Færeyj-
um. Talsvert af fiski sem fer þar í
gegn er selt til útlanda og kemur
því ekki til vinnslu í Færeyjum.
Útlendingar mega þó ekki versla
á fiskmörkuðunum, heldur hafa
þeir sína fulltrúa í röðum heima-
manna sem kaupa fiskinn fyrir þá
og sjá um að senda hann úr landi.
Aðalsteinn var í ferð sinni fyrst
og fremst að huga að kaupi og
kjörum fiskverkafólksins. ,,Fólk í
fiskvinnslu í Færeyjum er með
sem svarar um 180 þúsund
íslenskum krónum í mán-
aðarlaun og það er fróð-
legt að bera þau laun
saman við það sem
greitt er hér á landi.
Hér eru hæstu
taxtalaun sér-
hæfðs fiskverka-
manns 96 þús-
und krónur og með öllum hugs-
anlegum kaupaukum er hægt að
tosa þessi laun upp í tæp 140
þúsund á mánuði fyr-
ir dagvinn-
una. Ein-
hverjir
komast
hugsanlega eitthvað hærra en aðr-
ir liggja lægra í launum,” segir
Aðalsteinn.
Hann segir það vekja ahygli að
færeysk fiskvinnslufyrirtæki hafi
skilað góðum hagnaði undanfarin
ár þannig að ekki séu launin að
sliga fyrrtækin.
,,Þetta leiðir hugann að því að
e.t.v. voru það mistök hjá okkur
að semja til jafn langs tíma og við
gerðum eða til ársloka í ár. Það
hefur árað vel í sjávarútvegi okkar
undanfarin ár, en arðurinn hefur
ekki skilað sér til fiskverkafólks-
ins. Eigendur fyrirtækjanna hafa
notið góðrar afkomu, en hjá þeim
ríkir greinilega ekki sama við-
horfið gagnvart starfsfólki og t.d.
í bönkunum þar sem starfsfólkið
hefur fengið að njóta góðs af
rekstrarhagnaði,” segir Aðal-
steinn.
Laun fiskverkafólksins
umalsvert hærri í Færeyjum
- mikil sátt um fiskveiðistjórnarkerfið, segir Aðalsteinn Baldursson, formaður
matvælasviðs Starfsgreinasambandsins, sem kynnti sér málin í Færeyjum
,,Maður skynjar það mjög vel þegar komið er til Færeyja hversu
mikil sátt ríkir um fiskveiðistjórnarkerfi þeirra og sú sátt nær yfir
allt sviðið. Hún er bæði meðal sjómanna, fiskverkenda og
landverkafólksins,” segir Aðalsteinn Baldursson formaður mat-
vælasviðs Starfsgreinasambands Íslands, en hann var í Færeyjum á
dögunum að kynna sér færeyskan sjávarútveg og fiskvinnslu.
Frá smábátahöfninni í Þórshöfn í
Færeyjum.