Ægir - 01.03.2003, Page 15
15
Þ J Ó N U S TA
um Koden, JRC eða Hondex.
Allir geta þeir sinnt þeim þörf-
um sem óskað er eftir og ættu
allir að geta fundið mæli sem
hentar fyrir þeirra bát. Með því
að tengja viðkomandi dýptar-
mæli við MaxSea siglingatölvuna
má fá upplýsingar um dýpi í tví-
og þrívídd. Einnig er hægt að
tengja botngreiningarbúnað við
dýptarmælana og fá upplýsingar
um botngerð beint í MaxSea,“
segir Ragnar.
GPS áttaviti
Eitt af því nýjasta í tækjabúnaði
fyrir smábáta er GPS áttavitinn
en með honum fá bátar mjög ná-
kvæma og stöðuga stefnu á bátn-
um. Vinsælt er að tengjast radar
og fá upplýsingar um ferðir ann-
arra skipa.
Sjálfstýring
„Ekki er hægt að stoppa án þess
að minnast á góða sjálfstýringu
(ComNav) sem er afar mikilvæg
fyrir alla bátam,“ segir Ragnar.
Með góðri stýringu er hægt að
tengjast við siglingatölvu og láta
hana sjá um stjórnina á meðan
verið er að leggja línuna sem sett
hefur verið út í MaxSea.
Ekki má gleyma fjarskiptun-
um, en þar er úr mörgu að velja
enda Radiomiðun þekkt fyrir
mikla breidd í lausnum fyrir fjar-
skipti þar sem Sailor og Skanti
hafa verið leiðandi. Vert er að
geta þess að smábátasjómenn
hafa tekið töluvert af gervi-
hnattasímun í sína notkun, þar
sem verð á notkun og búnað hafa
lækkað mikið á síðustu árum.
Radiomiðun býður upp á fjöl-
þættar lausnir á þessu sviði,“
segir Ragnar Harðarson, sölu-
stjóri hjá Radiomiðun.
Sjálfstýring.
Vor í febrúar?
Eftir hundrað ár eða svo
gæti farið að vora í febrúar á
60 gráðum norður segir í
norska sjávarútvegsblaðinu
Fiskaren.
Bandarískur líffræðingur, Cam-
ille Parmesan, hefur í áratugi
rannsakað útbreiðslu meira en
1.700 dýra-, fugla, skordýra-
og plöntutegunda. Sömuleiðis
hefur hún og samstarfsmenn
hennar rannsakað útbreiðslu
sjávarlífvera, svo sem fiska,
skeldýra og svifs. Rann-
sóknirnar leiða í ljós að þessar
lífverur færa sig norður á
bóginn um 610 metra á ári að
jafnaði, sem þýðir að lífs-
skilyrði batna með árunum
vegna meiri hlýinda. Þetta
styður þær kenningar sem
margir hafa haldið á lofti að
hlýnun á norðursvæðum sé
skýr og greinileg og að þar af
leiðandi sé engin tilviljun að
sjór mælist nú sögulega hlýr í
kringum Ísland.