Ægir - 01.02.2003, Blaðsíða 13
13
L O Ð N U V E I Ð A R
Sjómennirnir telja loðnugengd
í góðu meðallagi
Eins og Jón Már segir þá voru
menn almennt bjartsýnir í árs-
byrjun og áttu von á að veiðin í ár
yrði í takti við það sem gerðist í
fyrra. Bjarni Bjarnason skipstjóri
á Súlunni EA 100 tekur í sama
streng.
„Já, við vorum mjög bjartsýnir
í janúar og sáum þá mikið af
loðnu og hún var þá á stóru svæði
undan norðanverðu Austurlandi.
Þannig að það eru náttúrulega
mikil vonbrigði að ekki skuli vera
aukið við kvótann sem neinu
nemur, sérstaklega þar sem ég tel
að það sé næg loðnugengd til
þess,“ segir Bjarni.
„Ég tel mig hafa séð loðnu á
miðunum eins og í meðalári hér
og ekki minna. Þess vegna held
ég að það hafi ekki verið rétt af
þeim á Árna Friðrikssyni að gera
hlé á rannsóknum þegar þeir voru
ekki ánægðir með túrinn í janúar.
Menn hætta ekki að leita og
koma aftur eftir hálfan mánuð,
það verður að fylgjast stöðugt
með þessu allan tímann. Loðnan
var dreifð um mjög stórt svæði í
janúar og þeir hafa þá farið á mis
við loðnuna eins og gengur. En
menn verða að hafa nægt úthald
til að leita og það verður að liggja
yfir þessu. Það er afskaplega erfitt
að fara frá þessu og koma síðan
aftur, betra að horfa á þetta allan
tímann. Það sést mikið suma
daga og lítið aðra. Við fundum til
dæmis mikið af loðnu í Lóns-
bugtinni fyrir 2-3 dögum og
finnum ekkert núna. En hún
hlýtur að vera hérna, hvert sem
hún gengur,“ segir Bjarni.
„Annars er vetravertíðin búin
að vera erfið veðurfarslega, sér-
staklega seinnipartinn í febrúar.
En það er búið að vera fínt fiskirí
þegar veðrið hefur verið í lagi og
við áttum von á að geta haldið
veiðum áfram lengur. Menn eru
almennt vonsviknir yfir því að fá
ekki meiri kvóta og einnig hefur
verið vont hversu það hefur dreg-
ist að taka ákvörðun um endan-
legan kvóta. Það er allt of seint að
koma með heildarúthlutun þegar
vertíðin er að vera búin,“ segir
Bjarni Bjarnason.
Loðnan flæðir inn á flokkunarlínurnar.
Fiskidælur og spil
er okkar fag
Grótta ehf
Fiskislóð 77 Sími 562 4160 Fax 562 6042