Ægir - 01.02.2003, Page 22
22
F J Á R M Á L
„Ég fæ því ekki annað séð en að
afkomuhorfur margra fyrirtækja í
sjávarútvegi séu frekar erfiðar á
þessu ári ef þróun gengis krón-
unnar fer ekki að snúa við. Eins
og staðan er nú er nær ómögulegt
að spá fyrir um hvort þess sé að
vænta að krónan veikist verulega
aftur. Því er ekki að neita að
styrking krónunnar hefur verið
töluvert meiri en við höfðum gert
ráð fyrir. Þarna spila margir þætt-
ir inn í. Til dæmis hafa væntingar
um stórframkvæmdir á Austur-
landi töluvert að segja um styrk-
ingu krónunnar. Ef gengisvísital-
an fer undir 120 tel ég að horfi
ekki vel fyrir landvinnsluna. Ég
tel hins vegar að til þess að af-
koma landvinnslunnar sleppi fyrir
horn um þessar mundir þurfi
gengisvísitalan að vera á bilinu
125 til 130,“ sagði Esther og tel-
ur að staðan muni nokkuð vel
koma í ljós í uppgjörum fyrir-
tækja í sjávarútvegi fyrir þrjá
fyrstu mánuði ársins. Gengisvísi-
talan hefur verið rokka töluvert
til að undanförnu, yfirleitt á bil-
inu 122-124.
Ef krónan mun ekki veikjast á næstu mánuðum eru:
Fyrirsjáanlegir erfiðleikar
í landvinnslunni
- telur Esther Finnbogadóttir hjá greiningardeild Kaupþings
„Ef þróunin verður áfram í þessa átt, þá held
ég að landvinnslan verði í mjög erfiðum mál-
um. Þróun nokkurra fyrirtækja í landvinnslu á
síðari hluta síðasta árs gaf til kynna að stefni í
óefni á þessu ári ef svo héldi áfram. Afkoman
er töluvert mismunandi eftir greinum innan
sjávarútvegsins og því eru sum fyrirtæki verr
undir þessa gengisþróun búin en önnur,“ segir
Esther Finnbogadóttir hjá greiningadeild
Kaupþings.