Ægir - 01.03.2005, Síða 22
22
V I Ð TA L I Ð
Þann fyrsta mars sl.
tók Sigurbjörn Svav-
arsson við starfi fram-
kvæmdastjóra land-
vinnslu Brims hf. og
er starfsstöð hans á
Akureyri. Sigurbjörn
er hreint ekki ókunn-
ugur sjávarútvegsgeir-
anum, allar götur frá
1965 hefur hann með
hléum verið í störfum
sem á einn eða annan
hátt tengjast sjávar-
síðunni. Ægir tók hús
á Sigurbirni og for-
vitnaðist um áhuga
hans á sjávarútvegi.
„Mig langaði alltaf á sjóinn og
það varð úr að árið 1965, þegar
ég var fimmtán ára gamall, réði
ég mig til Landhelgisgæslunnar á
varðskip,“ segir Sigurbjörn þegar
hann var spurður um hvort sjáv-
arútvegurinn hafi verið í blóðinu.
„Mér líkaði þetta strax vel, þetta
var á margan hátt spennandi. Það
má segja að við höfum verið að
glíma við leifarnar af tólf mílna
útfærslunni þegar ég byrjaði hjá
Gæslunni, varðskipin voru þá að
taka breska togara í íslenskri
landhelgi. Til að byrja með var ég
háseti, en var tiltölulega ungur
gerður að bátsmanni. Leiðin lá
síðan í framhaldinu í Stýrimanna-
skólann og markmiðið var skýrt;
að ná fyrstu einkunn til þess að
hafa möguleika á því að geta orð-
ið stýrimaður hjá Gæslunni. Á
sumrin þegar ég var í námi var ég
bátsmaður á varðskipunum. Að
loknu námi, sumarið 1972, var ég
stýrimaður með Guðmundi
Kjærnested á Ægi. Þá um haust-
ið, 1. september 1972, var land-
helgin færð út í 50 mílur og
1976 var síðan aftur fært út í 200
mílur.
Hugmynd Péturs Sigurðssonar,
þáverandi forstjóra Gæslunnar,
var að yngri stýrimennirnir, þar á
meðal ég, myndu bæta við sig
þekkingu og fara í þyrluflugs-
nám. Það varð þó ekki úr og eftir
5 ár sem stýrimaður hjá LHG
ákvað ég að setjast á skólabekk og
fara í útgerðartækni í Tækniskól-
anum, sem þá var nýtt nám hér á
landi.
Ég hugsaði sem svo að Íslend-
ingar hefðu lagt mikið á sig til
þess að berjast fyrir sinni land-
helgi og losa sig við yfir 100 tog-
ara af Íslandsmiðum og því hlyti
að vera framtíð í íslenskum sjáv-
arútvegi. Meðal annars þess vegna
valdi ég að fara í útgerðartækni.
Ég samdi við Martein Jónasson,
framkvæmdastjóra hjá Bæjarút-
gerð Reykjavíkur (BÚR), sumarið
sem ég var á milli bekkja í út-
gerðartækninni, að kynna mér
starfsemina hjá BÚR og úr varð
að ég skrifaði lokaritgerð um út-
gerðina hjá BÚR.“
Ýmis störf
„Ég fann mig strax í útgerðar-
tækninni og strax að því námi
loknu, árið 1978, þá 28 ára gam-
Sigurbjörn Svavarsson,
framkvæmdastjóri
landvinnslu Brims hf.:
Sóknar-
færin eru
í ferska
fiskinum
Sigurbjörn Svavarsson: „Ég er einhvern
veginn þannig gerður að ég vil alltaf
hafa eitthvað ögrandi að takast á við.“
aegirmars2005-3tbllaga› 8.4.2005 8:27 Page 22