Ægir - 01.03.2005, Blaðsíða 29
29
H A F R A N N S Ó K N I R
lenska lögsögu í auknum mæli.
Menn telja að á hlýindaskeiðinu
frá 1930 til 1960, þegar síldveið-
arnar stóðu í hvað mestum
blóma, hafi þessi Atlantssjór verið
ríkjandi fyrir norðan land.“
RAFOS flot
Héðinn nefnir að í síðustu túrum
hafi verið sjósett svokölluð RAF-
OS flot, en um er að ræða gler-
hólka með rafeindabúnaði sem
mara á um 200 m dýpi og berast
með straumum. „Staðsetning
þeirra fæst út frá hljóðgjöfum
sem komið hefur verið fyrir í haf-
inu austur af Íslandi. Flotum er
einnig komið í sjó af Færeyingum
norður af eyjunum. Þetta er sam-
starfsverkefni Bandaríkjamanna,
Norðmanna, Færeyinga og okkar
og miðar að því að kortleggja
flæði Atlantssjávar norður í Nor-
egshaf. Það væri gagnlegt að sjó-
menn þekktu þetta tæki, því ekki
er útilokað að það gæti komið í
troll. Slíkt hefur reyndar gerst í
eldri tilraun,“ segir Héðinn.
Yfir meðaltali áranna
1970-2005
En nánar um niðurstöður úr áður-
nefndum leiðangri Hafró.
Mælingarnar sýndu að sjávar-
hiti og selta fyrir Suður- og Vest-
urlandi voru vel yfir meðaltali
vetrargilda áranna 1970-2005
eins og verið hefur frá 1997 (6-
8°C og 35,0-35,2). Styrkur
hlýsjávarins að sunnan var með
svipuðum styrk og undanfarin
misseri, en norður af Vestfjörðum
og fyrir Norðurlandi var út-
breiðsla hlýsjávar heldur minni
en á sama árstíma síðustu tvö ár.
Hiti í efri lögum sjávar yfir land-
grunninu norðanlands var 2-5°C
og seltan 34,7-35,0, sem er áfram
vel yfir meðallagi vetrarmælinga.
Norðaustanlands og austan var
hiti á bilinu 1.7 - 2.7°C yfir land-
grunninu sem er heldur kaldara
en veturinn 2004 en samt í góðu
meðallagi þessa árstíma. Selta
sjávar var yfir 34,7 sem einnig er
yfir meðallagi að vetri.
Hitastig við botn á landgrunn-
inu umhverfis landið var 4-7 °C
fyrir Suður- og Vesturlandi, 0-4
°C fyrir Norðurlandi og 1-3 °C
fyrir Austurlandi. Norðanlands
var botnhiti á landgrunninu held-
ur hærri en á sama tíma 2004 en
norðaustan- og austanlands var
botnhiti heldur lægri en að vetri
2004.
Með þessu tæki er
mældur hiti sjávar og
selta - samfellt frá yfir-
borði og niður á botn.
Stóru gráu hólkarnir eru
til þess taka sjósýni.
aegirmars2005-3tbllaga› 8.4.2005 8:27 Page 29