Ægir - 01.07.2009, Page 23
23
V I Ð T A L
kvæmlega hvar skip eru
stödd hverju sinni. Þetta
skiptir miklu.“
Menn með raunhæfar
hugmyndir
Á starfsstöðvum Fiskistofu úti
á landi starfa í dag um 20
manns á sex stöðum, þaðan
sem sinnt er daglegu veiðieft-
irliti. Því starfi sinna nær ein-
vörðungu reyndir skipstjórn-
armenn, sem Árni Múli telur
mikilvægt.
„Þetta eru menn með
mikla reynslu sem vita ná-
kvæmlega hvernig kaupin
gerast á eyrinni. Hafa þekk-
ingu, sjálfstraust og raunhæfar
hugmyndir í eftirlitsstarfinu.
Við lítum fyrst og fremst á
sjómenn sem samherja okkar.
Og viðhorf velflestra í þeirra
hópi gagnvart Fiskistofu trúi
ég að sé hið sama. Þannig
reynum við sem kostur er að
leiðbeina mönnum og gefa
þeim tækifæri til úrbóta, sé
eitthvað með öðrum hætti en
vera ber. Vissulega þurfa
stofnanir alltaf að hafa bit og
mátt til aðgerða en hörð við-
urlög eru alltaf síðasta úrræð-
ið.“
Metnaður og sanngirni
Stundum fara á flot miklar
sögur um ofurfjölda starfs-
manna hjá Fiskistofu. Starfs-
mennirnir eru í það heila talið
um 80 en á góðum degi -
þegar sagnamenn eru í ham -
verða þeir á bilinu 200 til 300.
„Ég kannast við þessar
sögur,“ segir Árni Múli. „Því er
kannski ekki auðvelt að svara
hvernig þær verða til. Við
þekkjum auðvitað öll að lengi
hefur verið deilt um kvóta-
kerfið og andstæðingar þess
freistast þá til að persónugera
málið í okkur Fiskistofufólki,
sem þeir telja mun fleira en
raunin er. Um þetta er í sjálfu
sér lítið að segja og ekki
kveinkum við okkur undan
gagnrýni. Hún verður hins
vegar að vera sannleikanum
samkvæmt og byggð á rök-
semdum rétt eins og við hjá
Fiskistofu sinnum starfinu af
metnaði og sanngirni gagnvart
umbjóðendum okkar.“
Frá Ísafirði.