Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Qupperneq 3
I. árg. 4. tbl. 1938.
MÁL OG MENNING
Til félagsmanna.
Árið 1938 er liðið á enda. Ég vil fyrir hönd litgáfustjórnar
Máls og menningar bjóða öllum umboðsmönnum og félagsmönn-
um gleðilegt nýtt ár, um leið og við þökkum þeim ágœtt sam-
starf á liðna árinu. Við biðjum afsökunar á þeim mistökum,
sem orðið bafa, og við vonum, að allir félagsmenn sé'u sáttir
við okkur, þótt við böfum stundum reynt fullmikið á umburð-
arlyndi þeirra.
Yfirlit.
Mál og menning hefur nú lokið öðru starfsári sinu með út-
gáfu 5 bóka, sem eru til samans (iO arkir að stærð. Þar að auki
hafa komið út 4 hefti af þessu tímariti, samtals (i arkir. Þessi
útgáfa er fullum þriðjungi meiri en gert var ráð fyrir í áætl-
un ársins. Auk þess njóla félagsmenn þeirra hlunninda að fá
15% afslátt af öllum útgáfubókum Heimskringlu, og hefur fjöldi
þeirra notað sér þau. Kostirnir við það, að vera félagsmaður
í Máli og menningu, geta því engum dulizt. Árið 1938 hefur
slaðfest þá fullkomlega.
Ég held, að öllum þorra félagsmanna hafi likað bækúrnar
mjög vel. Reyndar getur það aldrei orðið i jafn fjölmennu fé-
lagi, sem telur þúsundir, að allir verði ánægðir með hverja bólc,
sem það gefur út. Smekkur manna er misjafn og eins áhuga-
efnin. Þess vegna þarf fjölbreytni i bókavalinu til þess að geta
fullnægt kröfum allra. Sumir vilja fræðibækur um ákveðin efni,
aðrir skáldsögur o. s. frv. Félag eins og Mál og menning, sem
vill hefja ]>roska íslenzkrar alþýðu á hærra stig, getur ekki
heldur valið bækurnar eingöngu með tilliti til þess, að þær
falli almenningi sem bezt i geð. Ruslið væri þá ekki jafn mikið
keypt, ef smekkur fjöldans mætti vera mælikvarði á gildi bók-
mennta. Jafnframt því að Mál og menning hugsar um að verða
sem bezt við óskum allra félagsmanna úm bókavalið, hefur fé-
lagið sett sér það markmið að gefa eingöngu út góðar bækur,
i trausti þess að félagsmenn læri að meta þær og eignist við
lestur þeirra með hverju ári fullkomnari bókmenntasmekk.
háíogmehming
■I !■
1