Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Blaðsíða 29

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Blaðsíða 29
Aftur á móti er búizt við, að útgáfukostnaður sæmilega full- Jtominnar mannkynssögu yrði viðráðanlegur. Væri þvi mjög æskilegt, að Mál og menning hyrfi að þvi ráði sem allra fyrst að hefja útgáfu þvílílcs merkisrits. Okkur íslenclinga vantar tilfinnnalega fræðirit, sem væru svo- litið meira en skinin beinagrind. Vitanlega er þörfin aðkallandi •á mörgum sviðum. T. d. væri ánægjulegt að fá rit á islenzka tungu á borð við Vor Tid eftir G. Bang. Síðan það ágætisrit kom út, liefur, eins og allir vita, tækninni fleygt svo fram, að full þörf væri á að fá glöggt yfirlit yíir þau efni, sem þar koma til greina. Þá væri og nauðsynjaverk, að komið væri út á islenzku einhverju um ferðir frægra landkönnuða, t. d. Sven Hedins eða úr ritum Brehms, svo bent sé á fátt eitt. Siðast en ekki sízt þyrfti svo að hraða útgáfu víðtækra fræði- rita um tungu vora, t. d. sögu hennar. Er af þessu auðséð, svo sem útgáfustjórn Máls og menningar mun ljóst vera, að úr mörgu er að velja. Sannast að segja þyk- ir mér fyrir íiiitt leyti, og ef til vill er þannig um fleiri, félag- ið leggja fullmikla áherzlu á útgáfu skáldrita. Ekki svo að skilja, að þau geti ekki verið gagnleg mörg af þeim, en þau eru sá þáttur bókmennta, sem sizt er vanræktur með þjóð vorri. Og sannleikurinn er nú sá, þótt beizkur sé, að rit ýmissa hinna heimsfrægu höfunda eiga ógreiðan aðgang að hjörtum íslenzkra lesenda. Aftur á móti lesa margir góð fræðirit i alþýðlegum búningi sér til yndis og ánægju. Að endingu vil ég geta þess, að myndir Kjarvals tel ég hafa verið mjög misheppnaða bók. Og má mikið vera, ef fleiri hafa ekki svipaða skoðun. Vildi ég óska þess, að Mál og menning legði ekki mikla áherzlu á útgáfu mynda framvegis....... Hallur Jóhannesson. Bréf frá öðrum félaga. Flateyri, 15. des. 1938. Ég þakka kærlega mótteknar bækur frá yður, og nú siðast Itauða penna. Ég las þá með mikilli ánægju, og ekki hvað sízt Kvæðið um fangann. Vildi ég óska, að þér senduð okkur lesendunum oftar slikar perlur úr lieimsbókmcnntunum, meðan við eigum annan eins snilldarþýðanda á ljcVð sem Magnús Ásgeirsson er. Hvað útgáfustarfsemi félagsins snertir, að öðru leyti, hef ég •ekki orðið var við annað en almenna ánægju manna hér með 27

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.