Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Blaðsíða 5
Ég þori ekki að tilfæra meira, þvi að ég hef ekki leyfi til þess
frá skáldinu. Þannig er það: Það verður einum að (lýrmætu
yrkisefni, sem annar telur verðlaust eða hefur ekki eignazt skiln-
ing á að njóta.
Rauðir pennar hafa fengið beztu viðtökur. Ég hef heyrt marga
mennr sem gott vit hafa á, telja þetta bezta bindið af þeim fjór-
um, sem út eru komin. Má vel vera, að svo sé, þó að mér þyki
reyndar bezt fyrsta bindið. Okkur hefur aldrei tekizt að gera
ritið eins gott og við höfum óskað eftir, að það væri. Samt á
að vera miklu auðveldara nú, þegar Rauðir pennar eru orðnir
ársrit Máls og menningar, að gera þá vel úr garði. Þykir okk-
ur sérslaklega mikils vert um þau lofsamlegu ummæli, sem þeir
fá i bréfi frá Arna Hallgrimssyni, ritstjóra Iðunnar, og birt er
hér á öðrum stað. Við eigum ekki aðra ósk betri en þá, að Rauð-
ir pennar gætu að einhverju leyti orðið þjóðinni sú leiðsögn,
sem Árni talar um.
Þá er veigamesta bókin, sem félagsmenn fá í hendur um leið
og þetta hefti: Efnisheimurinn, etfir Björn Franzson. Ég trúi
ekki öðru en allur fjöldi félagsmanna verði ánægður með hana.
Það er mjög til hennar vandað af hálfu höfundarins, ln'm hefur
geysimikinn fróðleik inni að halda um efni, sem hverjum manni
ætti að leika hugur á að kynnast, og er rituð á góðu og vönd-
uðu máli, sumir kaflarnir af stílsnilld, og að því er ég hygg
af vísindalegri nákvæmni. Annars er sérfræðinga að dæma um
það, og vitna ég til umsagnar Sigurkarls Stefánssonar, Mennta-
skólakennara, hér i tímaritinu.
Þegar allar bækur ársins 1938 eru þannig komnar i hendur
félagsmanna, og þeir virða þessi bókakaup fyrir sér, þá trúi
ég ekki öðru en þeim þyki vel varið þeim 10 krónum, sem fóru
til kaupa á þeim. Og kunni einhverjum að þýkja þær ósamstæð-
ar að efni, útliti og broti, þá biðjum við þá að lita á það, að
þegar bækur margra ára koma saman, þá fellur burt þessi ósam-
kvæmni. Bækur um ákveðin efni koma í samfellda heild í sams
konar broti, og það verður fyrst eftir nokkur ár, sem verulega
skemmtilegt bókasafn myndast af bókum Máls og menningar.
Þetta bendir á nauðsynina að varðveita hverja þeirra frá byrj-
un. Það ætti því enginn félagsmaður að láta sig vanta fyrsta
árganginn, 3. bindi Rauðra penna og Vatnajökul, sizt þar sem
hún hlýtur alltaf að verða ein af glæsilegustu bókum félagsins.
En eins og félagsmenn vita, fást þessar bækur fyrir 10 krón-
ur báðar saman.
3