Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Blaðsíða 13

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Blaðsíða 13
uni ágætum samstarfsmönnum, grundvöll að skólaskipun, sem um mörg ár var tatin til fyrirmyndar uin alla Evrópu. En eftir stjórnarskiptin í október 1920 voru umbæturnar einkum frani- kvæmdar i Vínarborg, þar seni O. Glöckel var fræðslumálastjóri um langt skeið. Umbætur þessar tóku til allra skólaflokka, frá smábarnaskólum upp i háskóla, og einnig til flestra annarra greina uppeldis- og menningarmála. Einn merkasti og þekktasti skólamanna Svisslendinga, Dr. Ro- bert Dottrens, skólastjóri barnaskóla .og háskólakennari i Genf, dvaldi i Vín veturinn 1926—27. Þegar hann kom heim skrifaði hann allstóra bók,*) mjög lofsamlega um Vínarskólana. Í inn- gangi bókarinnar segir Dottrens m. a.: „Nýkominn heim úr ferðalagi um Tékkóslóvakíu, Þýzkaland, England, Belgíu og Frakkland hika ég ekki við að fullyrða, að Vinarborg er nú sem stendur fremst borga í Evrópu um fram- farir í kennslumálum.“ Otto Glöckel átti mörgum frábærum samstarfsmönnum á að skipa. Sumir þeirra eru lieimsfrægir, eins og t. d. Búhlershjón- in, sem talin eru meðal fremstu visindamanna, sem nú eru uppi, hvort í sinni grein, liann sem almennur sálarfræðingur, hún sem barnasálarfræðingur. Borgarastyrjöldin 1934 varð til mikils hnekkis fyrir þessa um- hótastarfsemi i Vín. Þó mun flest af því, sem áunnizt hafði i skólunum, liafa fengið að vera i friði, og vísindamennirnir fengu að starfa óhindraðir áfram. Nokkra hugmynd um áhrif innlimunarinnar á þessi mál fá menn af tilskipun**) frá yfirvöldunum, sem send var s.l. vor til allra skóla og uppeldisfræðistofnana i Vín. í tilskipun þess- ari er þess krafizt, að á meðan að ekki séu fyrir liendi full- komnar bókaskrár, verði m. a. eftirfarandi bókgflokkar þegar i stað fjarlægðir úr bókasöfnum kennara og nemenda: 1) Verk Gyðinga og þeirra, sem hafa samúð með þeim, t. d. bækur um sálgrenslan (psychoanalyse), einstaklingssálarfræði (individuelle psychologie) eftir höfunda eins og Montessori, Búh- ler og aðra slika. *) L’Éducation nouvelle en Autriche. **) Verordnungsblatt des Stadtschulrates fúr Wien, 15. maí 1938, tilvitnað í Feuille Mensuelle DTnformation No. 79—80, gef- ið út i París af Fédération internationale des Associations d’In- stituteurs. 11

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.