Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Blaðsíða 19

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Blaðsíða 19
stétt. Og að síðustu, — þótt dæmi sjómannanna sé hér einangr- að, af því það var svo auðvelt, þá er það vitanlegt, að sjómenn- irnir eru engin sérstök mannlegund, og hið sama á í raun og veru við um alla þjóðina. Hvað er mest lesið? Og hvaða höfundar? Skáldrit. Meira en 75% af þvi, sem lesið er, eru skáldrit, — ef til vill ekki nema 70% á veturna, en sjálfsagt milli 80 og 90% á sumrin. Þó eru til fræðibækur, sem eru lesnar alveg eins og skáldsögur, t. d. hókin „Frá Malayalöndum“. Af skáldritum eru það aðallega sögurnar, sem lesnar eru. Það er ekki mikil eftir- spurn eftir kvæðum, nema eftir Davíð Stefánsson. Engar skýrsl- ur eru til um það, hverjir höfundar eru mest lesnir. Slíkar skýrslur er ekki auðvelt að halda, og þótt það væri gert, væri ekki mikið á því að græða. Þegar fátt er um bækur og allt er lesið, sem heita skáldsögur, þá standa þeir höfundarnir hezt að vígi, sem mest hafa skrifað, nema hækur þeirra séu ófáanleg- ar, eins og fleslar hækur Jóns Trausta eru nú. Við höfum haft það á tilfinningunni, að Einar Kvaran hefði metið, — að mest væri lesið eftir hann. En ef Halldór Kiljan Laxness er ekki búinn að taka það, þá er hann að minnsta kosli hættulegur keppinautur. Hefur bókasafnið ekki við ýmsa erfiðleika að stríða? Það er ekki tími til að telja upp alla þá erfiðleika, sem safnið hefur við að stríða, en næst liggur að nefna þrengslin, þegar ekki er hægt að gera nema nokkurn hluta bókasafnsins aðgengi- legan fyrir almenning, þegar stafla verður bókunum ofan á skáp- ana, á stólana og jafnvel ó gólfið, og það um hávetur, þegar nokkur þúsund bindi eru úti í umferð. Það eru líka erfiðleik- ar að þurfa að raða bókunum tvisvar á dag, i stað þess að í tilsvarandi bókasöfnum erlendis þykir þurfa að líta eftir röð- uninni einu sinni i viku. Þetta er af því, að fólkið snýr öllu öfugt og setur bækurnar í hrúgur og stafla í hillurnar, í stað þess að setja hverja bók á sinn stað i röðinni. En það er ekki hægt að kasta þungum steini á fólkið fyrir þessa óreglu, meðan þrengslin eru svo, að hver verður að seilast yfir axlir öðrum eða smjúga undir hendur annarra til að ná i bók. Og þótt ég héldi áfram i allan dag að telja upp erfiðleika safnsins, mundi það allt enda í einni stórri kröfu: Við verðum að fá bókasafnshús. 17

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.