Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Blaðsíða 6

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Blaðsíða 6
Myndun lesliópa. í næslsíðasta hefti var vikið a'ð myndun leshópa, þar seni félagsmenn ræddu sín á milli um efni þeirra bóka, sem Mál og menning gefur lit. Með útgáfu Efnislieimsins er verulega kominn grundvöllur fyrir myndun slíkra hópa. Þar er fræði- leg bók um efni, sem er stórbrotið og sums staðar þungskilið. Það mundi vafalaust ]>roska skilning manna á efninu, gera það minnisstæðara og léttara, ef menn færu yfir kafla í bókinni nokkrir saman og brvtu efnið til mergjar. Þá gætu menn einnig sent fyrirspurnir um einstök atriði, og mundi stjórn Máls og menningar koma þeim á framfæri við höfundinn. Það væri jafn- vel ekki óhugsandi, að höfundurinn fengist til að halda erindi fyrir leshópa Máls og menningar, ef þeir yrðu stofnaðir á mörg- um stöðum á landinu. Ég held félagsmenn ættu að athuga þetta mál og taka sig til hver á sínum stað og gangast fyrir þvi, að leshópar verði myndaðir. Fjárhagur Máls og menningar. Við vitum ekki enn þá, hvernig fjárhagsútkoman er eftir árið 1938. Endurprentanirnar á bókum fyrra árs og þar að auki 1. bindi Móðurinnar hafa orðið félaginu kostnaðarsamar í svip- inn. Árið 1938 hlýtur því að sýna há útgjökl, þótt enginn vafi sé á því, að kostnaðurinn vinnst upp mjög fljótt, þegar meginið hefur selzt af upplagi bókanna frá fyrsta árinu. í næsta hefti ættum við að geta gefið yfirlit yfir tekjur og gjöld félagsins. Vöxtur félagsins 1938. í ársbyrjun voru félagsmenn 2000, 1. marz var talan komin upp í 2000, 1. des. rúm 4000 og í árslok nokkru liærri. Mál og menning hefur því meir en tvöfaldað félagatölu sína árið 1938. Við settum okkur í haust að verða komnir um áramót upp í 5000 félagsmenn, en það takmark hefur enn ekki náðst. Það er töfin á útkomu bókanna, sem hefur dregið í svip úr hinum hraða vexti félagsins. Þó hafa menn alltaf verið að bætast við í fé- lagið, á hverjum degi. Og þegar allar bækur ársins eru komnar út og menn heyra um útgáfuna 1939, hlýtur að nýju að hefj- ast ör straumur í Mál og menningu. Og eigi rekstur félagsins að ganga verulega vel, svo við getum vandað af kostgæfni til bókanna, þá verðum við að koma félagatölunni að minnsta kosii npp í 5000 fyrir 1. mai næstk. Við megum ekki láta koma neina stöðnun i félagið. Mál og menning á stöðugt að vera vaxandi, Iifandi félag, þar sem félagsmennirnir sjálfir eru sístarfandi 4

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.