Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Side 8
cr um þá sögu, sem hér hefur verið valin. Hún er tvímæla-
laust, ekki sizt hvað stil snertir, ein af heztu hókum þessa höf-
undar. (Sjá umsögn Gisla Ásmundssonar hér á eftir). Nokkrir
ritdómarar hafa tekið hana fram yfir Gott land, en það er naum-
ast rétt. Vindar úr austri og veslri, þótt það sé mjög vel skrifuð
hók, þolir ekki heldur að mínu áliti samanburð við Móðurina eftir
Gorki, hvorki að dýpt né fegurð. Annars er gaman að minna
á það, að Pearl Buck hefur einnig skrifað bók, sem heitir
Móðirin, og er ekki að öllu leyti ósvipuð sögu Gorkis. Vindar
úr austri og vestri er 13—14 arkir að stærð. Þriðja bókin 1939
verður fræðirit, sem ekki hefur verið tekiu um fullnaðarákvörð-
un enn þá. Bezt hefði átt við að fá framhald af bók Björns Franz-
sonar, Efnisheiminum, þ. e. rit, sem fjallaði um þróun lifsins
á jörðinni, en það verður sennilega að bíða seinni tíma.
Fjórða bókin verður Rauðir pennar, V. bindi. Viljum við biðja
þá rithöfunda, seru óska að birta þar eitthvert efni, að hafa
sent það ekki siðar en 1. mai. Við þurfum að geta prentað bók-
ina að mestu leyti að sumrinu. Þá viljum við biðja félagsmenn
að senda okkur gagnrýni á Rauðum pennum, bæði síðasta bindi
og eins fyrri bindum, vera ófeimnir að koma fram með aðfinnsl-
og gera jafnfraiut tillögur um einhverjar breytingar, er þeir
telja æskilegar. Rauðir pennar hafa öll skilyrði lil að geta farið
batnandi með hverju ári, hinir beztu rithöfundar og skáld hljóta
að sækjast eftir að birta þar smásögur sinar, ritgerðir og kvæði,
vegna þess hvc lcsendahópurinn er geysistór á íslenzkan mæli-
lcvarða.
Sennilega gefum við ekki út neitt myndahefti af islenzkum
málverkum að þessu sinni, en okkur hefur dottið i hug að láta
taka góða ljósmynd, helzt litprentun, af einu eða tveimur mál-
verkum cftir Ásgrim Jónsson og senda félagsmönnum. Þeir gætu
þá lálið innranuna myndirnar og fesl þær upp á vegg lijá sér.
Er gaman að lieyra, hvernig mönnum lizt á þessa hugmynd.
Fimmta og sjötta bók Máls og menningar 1939 verður úrvals-
bindi úr Andvökum eftir Stcphan G. Stephansson- Það er bók,
seni við vitum, að allir félagsmenn munu taka með miklum
fögnuði. Við teljuni það eitthvert þjóðhollasta menningarstarf,
sem Mál og menning getur unnið, að gera meginið af því bezta
úr ljóðum þessa höfuðskálds íslenzku þjóðarinnar að eign alþýðu.
Við liöfum fengið prófessor Sigurð Nordal, sem er allra fslend-
inga hæfastur til þessa starfs, til að velja kvæðin og semia rit-
gerð framan við bindið um Stephan og skáldskap hans. Hér á
eftir gerir Sigurður grein fyrir því, hvernig hann lítur á þetta
6