Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Qupperneq 10
amerísk að ætt og hefur verið búsett í Bandaríkjunum hin síð-
ari ár. Annars er hún fædd og uppalin i Kína, en faðir hennar
var trúboði þar — og fjalla allar sögur hennar um kinversk
efni, nema sú siðasta, sem er nokkurs konar sjálfsævisaga.
„Vindar úr austri og vestri“ er ein af vinsælustu bókum Pearl
Buck. Húii lýsir þeim veðramótum, þar sem vestræn og austræn
menning mælast, og speglast þessi átök aðallega í sál ungrar
konu, sem giftist Kinverja með vestræna menntun. Sagan gefur
i senn skemmtilega og fróðlega innsýn í liina ævafornu lifnað-
arhætti og hugarfar kínversks heldrafólks. Stíllinn er léttur og
Ijóðrænn, með sterkum austurlenzkum blæ, og af allri frásögn-
inni andar djúpum samúðarríkum skilningi höfundarins, enda er
hún sjálf að nokkru leyti bæði austrið og vestrið.
Gísli Asmundsson.
Úrvalsljóð Stephans G. Stephanssonar.
ViStal við Sigurð Nordal.
Fyrir nærri tveim árum kom ég, fyrir hönd útgáfustjórnar
Heimskringlu, að máli við prófessor Sigurð Nordal um útgáfu á
úrvali úr Andvökum. Var hann þeirrar útgáfu mjög hvetjandi og
gaf loforð um að taka að sér val kvæðanna og skrifa með úrval-
inu ritgerð um skáldskap Stephans. Hann skrifaði síðan dr. Rögn-
valdi Péturssyni, sem á útgáfurétt að Andvökum, og hað hann
um leyfi til útgáfunnar. Dr. Rögnvaldur taldi sér vera kærkomið
að veita leyfið, en þó með því skilyrði, að fyrst yrði lokið við
útgáfu á þeim ljóðum skáldsins, sem enn lægju í handritum og
væru næg lil að fylla heilt hindi jafnstórt hinum fyrri. Ennfrem-
ur lægi hjá sér mikið safn af bréfum skáldsins, er nauðsynlegt
væri að fá útgefip. Áttum við Sigurður Nordal þá tal við dr.
Þorkel Jóliannesson um útgáfu á hréfum Stephans. Varð það síð-
an að ráði, að Þjóðvinafélagið tók að sér útgáfu á bréfunum,
en Heimskringla varð við þeirri ósk dr. Rögnvalds að gefa út
VI. og síðasta bindi af Andvökum, áður en hún gæfi út úrvalið.
Nú er VI. bindið fyrir skönnnu komið út, og er það i raunimii
Heimskringla, sem á rétt á úrvalinu. En hún liefur afsalað sér
þeim gróðamöguleikum, sem óneitanlega væru að þessari útgáfu,
og látið hana af hendi við Mál og menningu, eingöngu með það
fyrir augum, að allur almenningur i landinu fengi kost á að eign-
8