Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Qupperneq 12
Þá bað ég Sigurð að skýra örlitið frá því, hvernig hann hugs-
aði sér ritgerðina framan við kvæðin. Orð hans voru á þessa leið:
í formála bókarinnar verður einkum gerð grein fyrir skáld-
skap og lífsskoðun skáldsins, í þvi skyni að gera lestur kvæð-
anna auðveldari og frjósamari. Þar verður ekki rúm fyrir ræki-
lega ævisögu, enda skortir enn fullar heimildir um hana. Merk-
asta ævisaga Stephans verður jafnan i kvæðum hans sjálfs, og
til þess mun m. a. verða tekið tillit, þegar kvæðin eru valin,
að mynd skáldsins komi þar sem skýrast fram.
Kr. E. A.
Sigurður Thorlacius: Um áramótin.
í greinarkorni þvi, sem hér fer á eftir, verður vikið að nokkr-
um erlendum stórviðhurðum ársins 1938. Tilgangurinn er þó
ekki sá, að gefa neitt heildaryfirlit.
Engir atburðir, sem gerðust í Evrópu á árinu 1938 munu hafa
vakið jafnmikla heimsathygli og orðið eins afleiðingaríkir og
innlimun Austurríkis og limlesting Tékkóslóvakiu. Allir, sem unna
lýðræði og rétti smáþjóða til sjálfstæðis, urðu harmþrungnir og
skelfingu lostnir við atburði þessa. Öryggisleysi smáþjóðanna og
virðingarleysi stórveldanna fyrir rétti þeirra til sjálfsákvörðun-
ar blasti við heiminum í allri sinni nekt og óskammfeilni.
Þjáningar fólksins í hinum herteknu löndum er erfitt að skilja
til fulls. Sumir munu mæla, að fögnuður þeirra, sem breyting-
anna óskuðu, vegi þar eitlhvað á móti. Sú staðreynd, að ca. 122
þúsundir manna í Tékkóslóvakiu einni urðu landflótta, heim-
ilis- og eignalausir, segir sina sögu í þessu sambandi.*) Þó mun
mega lelja víst, að ýmsir þeir, sem ekki komust yfir landamær-
in, hafi hlotið hið versta hlutskiptið. Hilt er og víst, að marg-
visleg og merk menningarþróun hefur á ýmsan hátt verið tor-
velduð eða stöðvuð í báðum þessum löndum. Hér verða nefnd
dæmi frá uppeldis- og kennslumálum.
í ÁustuiTÍki, einkum í Vínarborg, urðu gagngerðar og stór-
merkar endurbætur á uppeldis- og kennslumálum á tímabilinu
1919—1934. Umbótastarfið hófst með þvi að jafnaðarmaðurinn
Ottó Glöckel varð kennslumálaráðherra i samsteypuráðuneyti
ihalds- og jafnaðarmanna i marz 1919. Á þeim 19 mánuðum, sem
Ottó Glöckel var kennslumálaráðherra, lagði hann, ásamt mörg-
*) Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytisisins í Prag, tilvitn-
að af The Schoolmaster 8. des. 1938.
10