Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Side 23

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1938, Side 23
rétt, Enda sýnir það sig, ef betur er að gáð, að þeir, sem hneyksl- ast mest á svokölluðum pólitiskum áróðri rithöfunda og rita, eru venjulega sjálfir þrælpólitískir. Vandlætingin stafar þannig eng- an veginn af óbeit þessara manna á pólitík yfirleitt, heldur af hinu, að þeir þola illa að heyra túlkaða aðra pólitíska stefnu en sína eigin. — Árið, sem nú er að kveðja, er liklega að öllu samanlögðu það svartasta, sem yfir mannkynið hefur gengið á þessari öld. Hvar- vetna sýnist lieimskan, ofstækið og ribbaldahátturinn hrósa sigri. Það er ekki lystilegt um að litast i heiminum við ])essi áramót. Hið likamlega ofbeldi, ofsóknir, fangelsanir og pyndingar, sem nú eiga sér stað í mörgum löndum, er ekki einu sinni það versta. Hið andlega ofbeldi, sem fólkið er beitt, er ef til vill enn skelfilegra. Sennilega hefur aldrei í veraldarsögunni verið rekin jafn-samvizkulaus og ósvífin blekkingapólitik eins og á okkar dögum. Allri töfratækni nútímans er beitt af hamslaus- um ofsa til þess að rugla dómgreind fólksins, glepja því sýn um þess raunverulegu liagsmuni, villa um heilbrigða skynsemi þess. Það þarf enga sérlega bölsýni til þess að efast um, að heil- brigt vit alþýðunnar muni standast slíka eldraun. Kannske tekst það að gera hana að algerum skynskiptingi og hrekja hana aft- ur í svartnætti frumstæðrar villimennsku. Og við skulum ekki gera okkur sek um þann ydirdrepsskap, að ljúga þvi að sjálf- um okkur, að það sé bara úti í stóru löndunum, sem þetta eigi sér stað. Það er kominn tími til að skyggnast um okkar eigin sveit. Mestallur blaðakostur okkar vinnur að þvi, vitandi eða óvitandi, að ryðja villimennskunni braut hér heima, þó ekki væri með öðru en þvi að misþyrma andlegri heilbrigði og skyn- samlegu viti lesendanna með daglegum inntökum af þvaðri þeirra vitsmunalegu og siðferðilegu dusilmenna, sem kalla sig forustu- menn þjóðanna nú á dögum — þvaðri, þar sem einn frasinn stangast við annan og ekki er svifist að liafa endaskipti á stað- reyndum, hausavixl á réttu og röngu, sönnu og lognu. Og ekki bætir það mikið úr skák, þegar skriffinnar blaðanna diska upp með viðlika þvætting frá eigin brjósti. Allt miðar þetta að þvi að heimska fólkið, í stað ])ess að upplýsa það, svifta það ráði og rænu um þau mál, sem því er fyrst og fremst lífsnauðsyn að átta sig á. Hér er vissulega þörf leiðsagnar út úr völundar- húsi lyganna og blekkinganna. Þessa leiðsögn virðist mér þú, hr. ritstjóri, og flestir samverkamenn þinir taka alvarlega, og fyrir það eigið þið þökk skilið. Heilir að verki, og haldið fram eins og nú stefnir! Það er ánægjulegt til þess að vita, að þetta

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.