Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Side 20

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Side 20
Tímarit Máls og menningar skynsemi séS að annað hafi vakað fyrir ríkisstjórninni en styrkleikaátök við verkalýðshreyfinguna. Ríkisstjórnin vill ekki að kosningarnar í júní snúist um það hvernig stjórn landsins var undanfarin ár, því þar stendur hún höllum fæti — þann slag óttast hún. Henni er kappsmál að flýta kosningunum og láta kjósa um það hver stjórni landinu — hún eða verkalýðshreyfingin. Til þess að svo geti orðið þarf að egna verkalýðshreyfinguna til verknaðar sem réttlætir þing- rof. Efnahagslögin voru því ekkert annað en pólitísk hólmgöngukvaðning. Eftir þessa stríðsyfirlýsingu þarf verkalýðshreyfingin að þaulhugsa sinn gang, því hér er alltof mikið í húfi. Tapi hún þessari orustu er hinn pólitíski eftir- leikur glataður, en hann er að mynda ríkisstjórn vinveitta verkalýðshreyfing- unni, sem hafi þau þjóðfélagslegu völd að geta umskapað efnalegan grundvöll þjóðarbúsins. En sú aðgerð ein er forsenda bættra lífskjara. Að mati þess sem þetta skrifar er með stéttaátökum þeim sem nú eru að hefjast að upphefjast meiriháttar uppskipti í íslensku þjóðfélagi. Þau eru próf- steinn á valdahlutföll milli stéttanna um næsta árabil. Allt frá stríðsbyrjun, þegar bændastéttin leið undir lok sem valdamesta stétt íslenska samfélagsins, hefur komist á eins konar valdajafnvægi stéttanna. í reynd má rekja marga megindrætti samfélagsþróunar þessa tímabils til ofangreinds valdajafnvægis, m. a. verðbólguna. Þegar á reyndi hefur ekki reynst gerlegt að stjórna landinu í andstöðu við annaðhvort verkalýð eða auðvald. Nýsköpunar- stjórnin var undirskrift beggja aðila undir þessi nýju og breyttu valdahlutföll í landinu. Hins vegar mistókust báðar vinstri stjórnirnar þrátt fyrir mörg merk mál- efni sem náðust fram, báðar urðu þær að leggja árar í bát áður en kjörtímabili þeirra lauk. Ástæðurnar voru ekki þær að viljaleysi mætti um kenna, heldur rákust þær á þá óþyrmilegu staðreynd, að þjóðfélagslegt vald borgarastéttarinn- ar var þyngra á metunum en þingrceðislegt vald ríkisstjórnanna. Þjóðfélagslegt vald Framsóknarflokksins er einfaldlega of veikt til að standast ágjöf frá hægri. Það nægir til að halda uppi kaupmætti í fáein ár, gera smá- vægilegar réttindabreytingar hér og þar, en síðan ekki söguna meir. Verkefnin framundan eru verkalýðsstéttinni of mikilvæg til að fara í stjórn með veikum bandamanni. Sú uppskrift, sem notuð var við myndun tveggja vinstri stjórna, hefur gengið sér til húðar. Slík andvana tilraun leiðir ekki til neins annars en efasemda um stjórnmálaþroska verkalýðshreyfingarinnar og skapar eftirvæntingu sem bregst. Viðreisnarárin voru velmektartímabil borgarastéttarinnar. Henni hefur aldrei tekist að móta þjóðfélagið betur að hugmyndum sínum, enda studdist hún þá við verkalýðsflokk sem veikti baráttumátt verkalýðsins. Næsta ólíklegt er að sú stjórn rísi endurnýjuð, til þess er Alþýðuflokkurinn þjóðfélagslega of veikur og því gagnslaus í pólitískum stórátökum. 10
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.