Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Síða 21
Adrepur
Átökin framundan verða um efnahagsstefnuna og umsköpun efnalegs grund-
vallar þjóðarbúsins. Kerfið er komið í strand. Þrjár meginleiðir eru færar: Að
lœkka launin, skera niður jastafjármuni atvinnuveganna eða draga stórlega úr
tekjuöjlun ríkissjóðs.
Hin geigvænlega fjárbinding í fastafjármunum undanfarin ár — einkum í
sjávarútvegi — ásamt taumlausri óhófsstefnu í meðferð opinberra fjármuna,
leiðir af sér tekjutilfærslu verkalýðnum í óhag. Þessi tekjutilfærsla verður ekki
heimt aftur, nema með því að skera niður fjárfestingar fortíðarinnar og breyta
þar með samsetningu fjármagnsins í landinu.
Verkalýðsstéttin stendur þannig frammi fyrir tveimur valkostum: Annars
vegar að standa utan við allar stjórnir og hervæðast tii stórátaka meðan borgara-
stéttin er að koma „sínu“ jafnvægi á efnahagslífið. Hins vegar að mynda nýja
samstjórn stéttanna sem semdi frið meðan verið væri að koma á jafnvægi.
Niðurstaðan úr þeim átökum sem framundan eru, mun að öllum líkindum
hafa meiri áhrif á hvor valkosturinn verður tekinn, heldur en úrslit þingkosn-
inganna. Sigri verkalýðshreyfingin í yfirstandandi átökum, eru líkurnar á eins
konar samstjórn stéttanna meiri. Tapi verkalýðshreyfingin orusmnni, má gera
ráð fyrir óbreyttri ríkisstjórn að kosningum loknum, þrátt fyrir hugsanlegt
fylgistap stjórnarflokkanna.
Samstjórn stéttanna — eins konar ný og breytt nýsköpunarstjórn — væm
stórpólitísk tíðindi; hún hefði forsendur til að geta stjórnað landinu án þess til
alvarlegra stéttaátaka kæmi, en það eitt er ekki nægilegt til samsteypustjórnar.
Verkefni slíkrar stjórnar væri róttæk umsköpun efnahagskerfisins — eins
konar hreingerning — en það útheimti stefnugrundvöll sem ekki er fyrir hendi
enn, hjá hvorugum þeirra flokka sem hér kæmu einkum við sögu.
Hvorugur flokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn né Alþýðubandalagið, er undir
það búinn að standa að nauðsynlegum aðgerðum á sviði fiskverndunar og niður-
skurði á allt of stóriun veiðiflota. Og er verkalýðshreyfingin reiðubúin til að
standa að samdrætti á opinberri þjónustu, sem er afleiðing skuldasöfnunar ríkis-
ins undanfarin ár?
Hér verður engu spáð um það hvernig kaupin gerast á eyrinni að loknum
kosningum, en verkalýðshreyfingin verður að athuga vel sinn gang og grann-
skoða þau skilyrði sem hún semr fyrir þátttöku sinni í nýrri ríkisstjórn. Þar
verða allir hlutir að vera á hreinu.
Þ. 6.
11