Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Page 46

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Page 46
Tímarit Máls og menningar í hinu hefðbundna hlutverki auðsveipninnar. Bóndi hennar sér að vísu að sér einnig, en þegar á heildina er litið hafa hans karlmennskusyndir að mestu verið afsakaðar með göllum konunnar eins og hún áður var. Sið- ferðilegur sigur hefur unnist, vonargleði hinna farsælu málaloka blasir við. Þjóðfélagið kemur þessum málum harla lítið við og ber enga ábyrgð á því hvort vel eða illa fer. Ættarböndin við afþreyingarskáldsöguna koma og fram í því, að persón- urnar eru fremur einfaldar að gerð og óbreytanlegar. Hver þeirra bregst jafn- an með einum og sama hætti við þeim endurteknum dæmum um afleitan heimilisbrag sem er meginefni sögunnar. Um leið eru sálfræðilegar for- sendur fyrir orðum og athöfnum einatt í mjóslegnara lagi. Sérkenni þessarar sögu koma m. a. fram í því, að spennu er uppi haldið ekki hvað síst með leik höfundar að sögusamúð. Þetta getur gerst með því að um skeið hefur höfundur haldið að lesendum einungis neikvæðum upplýsingum um feril og framkomu persónunnar, en allt í einu snýr hann við blaðinu og kemur fram með eitthvað það sem henni verður til máls- bóta. Þessi aðferð kemur skýrast fram í lýsingu Sigurborgar, sem fyrr segir. Skömmu eftir að hún hefur fallið dýpst í vitund lesanda (þegar hún vildi drepa „hórbarnið") fáum við í fyrsta sinn að heyra verulegar máls- bætur í hennar þágu. Það er minnt á erfiða daga hennar hjá vandalausum í bernsku: „Þetta var óttalegur kulda- og harðneskjubragur á heimilinu þar sem Borga mín ólst upp. Sífellt rifrildi og barsmíð meira að segja“ (115) segir móðir hennar, Rakel, við Hannes. En rétt á eftir er þessi samúð með Sigurborgu aftur frá lesanda tekin: hún sér eftir því að hafa ekki kæft Jóa litla! (117). Nú mundu sumir ætla að sveiflur af þessu tagi setji Guðrúnu frá Lundi niður í nokkurri fjarlægð frá reyfaranum, hún sjái persónur sínar „aldrei algóðar eða úrhrök, en mannlegar“ (Þorsteinn M. Jónsson í formála að „Gulnuðum blöðum', 1968). En þetta skiptir litlu, flestir afþreyingarhöfundar hafa eins og kunnugt er rænu á að nota fleiri liti en svart og hvítt. Hinar sérstæðu sveiflur í sögusamúð hjá Guðrúnu frá Lundi eru að líkindum tengdar því, að hún þekkir lítt til áætlanagerðar atvinnuhöfunda um framvindu sögu. Aðferð hennar er líkust daglegum sveiflum í rabbi fólks um kunningja og nágranna, sveiflum sem tengdar eru nýjum fréttum eða orðrómi í byggðarlagi — en orðrómur er einmitt einkar veigamikil sögupersóna hjá Guðrúnu. En víkjum þá nánar að þeim þáttum sem draga fram mun á sögu Guð- rúnar frá Lundi og alþjóðlegri eða skandinavískri afþreyingarsögu. I 34
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.