Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Side 51

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Side 51
Um fínar bókmenntir og ófínar greinar séu jafnréttháar, hvort sem er um að ræða epískar sögur, þráð- leysur, Ijóð, útvarps- eða sjónvarpsleikrit, klámsögur, fyndnisögur, barna- sögur eða aðrar sögur. Aftur á móti er hér ekki verið að mótmæla þeirri ágætu kenningu að góðar bækur séu yfirleitt betri en vondar bækur. Sagt er að átvögl og kringilvambar í Rómaborg fornu, sem höfðu melt- ingarfærin fyrir guð, hafi látið bera fyrir sig hrúkuð föt með kólibrí- tungum til að árétta að þeir væru löngu hundleiðir orðnir á venjulegum alþýðumat, jafnvel sunnudagsmat. Margt er líkt með skyldum, segir mál- tækið — eða klisjan — bókmenntasmekkur fagurkera hefur einkum á síðustu áratugum fjarlægst smekk og venjur allrar alþýðu ekki síður en kólibrítungnaát fornrómverskra sælkera; með tímanum kemur þetta náttúr- lega niður á fagurkerunum en ekki alþýðunni. A Islandi hafa glæpasögur löngum þótt sú lesning sem ekki hæfði öðrum en ómenntuðum ruddum, og svo einstöku stressuðum gáfumanni, sýslumanni eða prófessor. Það var fyrir tíð innhverfrar íhugunar sem gáfnaljós og framámenn lásu léttmeti sér til hvíldar og þá væntanlega fínar bókmenntir sér til þrautar; léttmeti er kurteist nafn á ófínum bókmenntum, sorpritum og jafnvel klámi. Hér hafa aldrei verið skrifaðar góðar bókmenntir ófínar, það er að segja frambærilegar bókmenntir úr þeim greinum bókmennta, sem teljast ófín- ar. Alminlegar íslenskar glæpasögur eða reyfara má telja á fingrum ann- arrar handar, en orsök fátæktar þessarar bókmenntagreinar er fráleitt sú að íslenskir glæpir og glæpamenn séu svo lítilfjörlegir að enginn nenni um slíkt að fást, heldur miklu fremur að fá skáld hafa þorað að tengja nafn sitt svo fyrirlitinni bókmenntagrein sem glæpasagnagerð. Þó hafa nokkrir orðið til þess að skrifa glæpasögur, gamansögur, ástarsögur, vís- indasögur og aðrar ófínar sögur undir dulnefnum, en slíkt er skammgóður vermir í landi þar sem allir þekkja alla. Það er raunar skiljanlegt að skáld séu ófús til að leggja nöfn sín við þann hégóma sem ófínar bókmenntir, léttmeti ellegar afþreyingarbók- menntir kallast. I besta falli selst afþreyingarbók sæmilega, það er að segja nær þeim lesendahópi sem annars les ekki annað en þýddar afþreyingar- bókmenntir, stjörnuspár og sorprit. Bókmenntaritin hundsa útkomu bókar- innar; gagnrýnendur blaðanna birta stutta klausu í yfirlætislegum tón — þyki þeim bókin sæmileg heitir það, að í henni séu liprir sprettir og ekki laust við að hafa megi gaman af vissum köflum. Sjaldan er reynt að skyggnast nánar eftir því hvað þarna sé á ferðum, heldur látið nægja að 39
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.