Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Síða 83
Bandaríkin og mannréttindi í þriðja heiminum
fasistastjórn Donald Reid Cabral yrði leyst af hólmi af Stjórnarskrárflokki
Juan Bosch, sem herinn hafði steypt með valdaráni árið 1963 án þess að
Bandaríkin sæju ástæðu til að grípa í taumana til að bjarga honum og
hinni skammlífu tilraun hans til lýðræðislegs stjórnarfars. Theodore Draper
og fleiri hafa lýst því á sannfærandi hátt að afbatanir Lyndon Johnson og
talsmanna hans, sem staðhæfðu að kommúnisminn væri yfirvofandi, hefði
aðeins verið hræsni og skálkaskjól þeirra sem kusu fremur fasisma en
óáreiðanlega og miður stýranlega stjórn lýðræðissinnaðra umbótamanna.11
Innrásin 1965 endurnýjaði hin sterku tök Bandaríkjanna á eynni. Eða eins
og Bosch komst að orði í júní 1975: „Þetta land er ekki bandarísk-sinnað,
það er bandarískt, það er eign Bandaríkjanna.“12 Hver hafa þá verið
megineinkennin á hinni dóminísku fyrirmynd um þróun í þriðja heim-
inum, eins og hún lítur út í landi sem hefur verið undir nánu eftirliti og
stjórnun Bandaríkjanna?
Fyrsta einkennið eru víðtæk og kerfisbundin hryðjuverk. I Dóminíska
lýðveldinu, Guatemala og Brasilíu, þrem löndum, þar sem fasískir skjól-
stæðingar komust til valda með óduldum stuðningi Bandaríkjanna, komu
morðsveitir fljótlega fram á sjónarsviðið. Þær hafa heraga innbyrðis og af
einhverri tilviljun komu þær fram í öllum löndunum þremur og tóku að
hamast gegn skoðanaandstæðingum, gegn smábófum og hverjum sem var.
Amnesty International segir í skýrslu um Dóminíska lýðveldið: „Arið 1970
var fullyrt að á hverjum 34 klukkutímum dæi eða „hyrfi“ einn maður.“
I júlí 1971 komst Norman Gall að þeirri niðurstöðu að á tímabilinu eftir
1965 hefði fjöldi pólitískra morða í Dóminíska lýðveldinu farið fram úr
því sem var á nokkrum öðrum sambærilegum tíma í valdatíð Trujillo.
Ennfremur segir Gall: „Dagblaðið El Nacional í Santo Domingo fyllti
þann 30. desember sl. eina og hálfa prentaða síðu með ýtarlegri frásögn
af 186 pólitískum morðum og 30 mannshvörfum á árinu 1970. Hryðju-
verkunum í Dóminíska lýðveldinu svipar til pólitísku morðöldunnar í
Guatemala núna ... að því leyti að hinar hernaðarkenndu morðsveitir eru
skipulagðar af her og lögreglu, sem í báðum löndum hafa um árabil fengið
mikið magn af vopnum og notið ríkulegrar hernaðarráðgjafar bandaríkja-
manna.“ Gall gat þess einnig að eitt meginmarkmið hermdarverkanna í
Dóminíska lýðveldinu væri að halda íbúum fátækrahverfanna í skefjum,
en þeir voru skæðustu andstæðingar dóminíska hersins í byltingunni árið
1965.“13
Wall Street Journal sagði 9. september 1971: „Hinir íhaldssömu ka-
69