Tímarit Máls og menningar - 01.03.1978, Qupperneq 87
Bandaríkin og mannréttindi í þriðja heiminum
iðnverkamanna við ferrónikkelverksmiðju í erlendri eigu á síðastliðnu ári,
sendi hr. Balaguer herinn á vettvang til að aðstoða við að koma hlutunum
í rétt horf. Meðan hermennirnir héldu uppi reglu, ráku forráðamenn fyrir-
tækisins 32 menn, sem sagt var að væru vinstri sinnaðir leiðtogar... Verk-
fallinu var hrundið á 8 dögum.“ Mannréttindaskýrsla bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins inniheldur eftirfarandi „upplýsingar“ um verkalýðssamtök:
„Verkalýðssamtökum er leyft að starfa og eru allmörg starfandi, þar á
meðal nokkur sem tengd eru stjórnarandstöðuflokkum, en eru þó að hluta
undir eftirliti yfirvalda.“ Þetta er allt og sumt.
Við að ná tangarhaldi á verkalýðssamtökunum og gera þau auðsveip
hefur dóminíska stjórnarforystan notið mikils stuðnings frá bandarísku
verkalýðssamsteypunni AFL-CIO, sem hefur löngum haft náið samstarf
með CIA og ýmsum fjölþjóðafyrirtækjum við þetta ógeðslega verkefni.
Og það er staðreynd, að armur þeirra, CONATRAL, hjálpaði til við að
fella hina verkalýðssinnuðu stjórn Juan Bosch árið 1963 og hefur æ síðan
smtt einræðissinnaða arftaka hans. Líklega hefur blint hatur George
Meany og samstarfsmanna hans á kommúnisma og yfirleitt allri róttækni
leitt þá út í það að fórna kerfisbundið hagsmunum verkalýðsins í Dóminíska
lýðveldinu og öðrum leppríkjum Bandaríkjanna. Þeir Meany og næstráðandi
hans, Lane Kirkland; Alexander Barkan, sem er forseti COPE, stjórnmála-
deildar AFL-CIO, og Edward J. Carlough, forseti sambands málmiðnaðar-
manna, eiga allir hlutabréf í hinni 15000 ekra ferðamannanýlendu og
plantekru Punta Cana í Dóminíska lýðveldinu. Til þess að undirbúa jarð-
veginn fyrir þetta fyrirtæki hinna fögru og ríku var herinn látinn hrekja
burtu mikinn fjölda óboðinna landseta.15
Fimmta einkenni dóminísku fyrirmyndarinnar leiðir af hinu fjórða hér
á undan, en það er að lífskjör alls þorra almennings hafa versnað til muna.
Til að þjóna hagsmunum hefðbundinna og hálfútlendra forystuafla hefur
Dóminíska lýðveldinu verið breytt í paradís fyrir ferðamenn og iðnað með
„25 centa lágmarkslaunum á tímann og vinnusömu og auðsveipu vinnu-
afli“ og með fjögur skattfrjáls landsvæði „þéttsetin iðnverkafólki sem
framleiðir bursta, brjóstahöld, rafhlöður, rafmagnstæki, hárkollur, nærföt,
varahluti og neysluvörur“.lc Wall Street Journal segir þann 9. september
1971 á eftirfarandi hátt, hvaða áhrif gagnbyltingin 1965 hefur haft á
tekjudreifingu og almenn lífskjör:
Miðstéttir og hærri stéttir búa við þægileg efni, meðan láglaunastéttirnar mega
73