Tímarit Máls og menningar - 01.03.1981, Blaðsíða 12
Ádrepur
Sverrir Hólmarsson
Um karlrembuhátt
í síðasta Timaritshefti skrifar Svala Sigurleifsdóttir reiðiþrungna ádrepu um
karlveldiseinkenni TMM. Ekki ætla ég að blanda mér í almenna umræðu um
það mál, en þar sem Svala notar örstuttan pistil sem ég lét fylgja þýðingum á
kvæðum eftir Ted Hughes sem höfuðdæmi um ofríki karlrembunnar í Tíma-
ritinu get ég ekki látið undir höfuð leggjast að fara nokkrum orðum um þann
þátt greinar hennar.
Aðfinnslur Svölu varða annars vegar kynningu mína á skáldinu Ted Hughes
en hins vegar túlkun mína á kvæði hans Haukur á grein. Hún segir: „kynningin
á Ted Hughes í blaðinu finnst mér gefa einhliða mynd af honum og aðra en þá
sem ber fyrir augu í „Letters Home“, úrvali bréfa sem Sylvia Plath skrifaði
móður sinni og bróður.“ Varla getur farið hjá því að skáldakynning sem nær yfir
eina blaðsíðu verði annað en einhliða, enda var það ekki ætlun mín að skrifa
ævisögu Hughes heldur einvörðungu að staðsetja hann lítillega í veröldinni og
nefna nokkur einkenni hans sem skálds til glöggvunar íslenskum lesendum sem
hann er að mestu ókunnur.
I endurbættri útgáfu sinni á kynningunni leggur Svala höfuðáherslu á
samskipti Hughes og konu hans, Sylviu Plath. Það var alls ekki ætlun mín í
kynningunni að rekja hjónabandssögu Ted Hughes né ræða um einkalíf hans
yfirleitt, enda þykir mér slíkt heldur ósmekklegt meðan fólk er enn ofar moldu.
En mér skilst að með þessu hafi ég heldur betur villt um fyrir lesandanum, þar
sem þessi náttúruunnandi sé í rauninni hin versta karlskepna sem fór illa með
konuna sína og auk þess „skortir hann tilfinnanlega tilfinningu fyrir þeim
manneskjum sem hann umgengst.“
Eiginlega fallast manni hendur gagnvart svonalöguðu. Þessi dómur Svölu
um Ted Hughes er svo ruddalegur að engu tali tekur, auk þess sem hann er
algerlega úr lausu lofti gripinn. Heimild Svölu um Hughes eru bréf Sylviu, sem
Svala segir að gefi aðra mynd af honum en ég geri, og þá væntanlega þá mynd
sem hún dregur upp, af tilfinningalausri karlskepnu sem kúgaði konu sína og
nánast rak hana í dauðann. Nú vill svo til að bréfin gefa alls ekki þessa mynd af
2