Morgunblaðið - 03.12.2014, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 3. D E S E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 283. tölublað 102. árgangur
LÆKNIR
STENDUR
Á KROSSGÖTUM
MÝS
FLÝJA
MENGUN
KOMIN HEIM
EFTIR 15 ÁR Í
HJÁLPARSTARFI
SÚRT REGN FRÁ GOSI 2 HLÍN BALDVINSDÓTTIR 10FIMMTI DISKUR HELGA JÚLÍUSAR 30
Heldur er hráslagalegt þessa dagana hjá blessuðum
börnunum sem skunda í skólann í vetrarmyrkrinu
snemma á morgnana með tösku á bakinu. Eins gott að
vera með endurskinsmerki svo þau sjáist í umferðinni.
Dimmt og blautt hjá skólabörnum
Morgunblaðið/Golli
Endurskinmerkin eru nauðsynleg á þessum árstíma
Baldur Arnarson
Hörður Ægisson
Það sem af er árinu hefur Lands-
bankinn selt eignir og hlutabréf fyrir
um 14,5 milljarða króna. Bankinn
hefur fengið tilboð í 49,9% hlut í Pro-
mens að fjárhæð 18,2 milljarða.
Gangi sú sala eftir fer eignasalan í
tæpa 33 milljarða króna.
Steinþór Pálsson, bankastjóri
Landsbankans, segir eignasöluna
skoðunar sölu á 38% hlut í Valitor.
Má áætla að verðmæti hlutarins
hlaupi á milljörðum. Sú sala mun
ekki hafa neikvæð áhrif á þjónustu-
framboð bankans í greiðslukortum.
Steinþór segir að í árslok 2010 hafi
bókfært virði fullnustueigna og hluta
í félögum sem voru í eigu bankans
verið áætlað 128 milljarðar. Sú upp-
hæð stóð í 25 milljörðum um síðustu
áramót og í 19,6 milljörðum í lok
september. Við þessa upphæð bætist
hlutabréfaeign, m.a. í Valitor. Stein-
þór segir sölu á áhættumeiri eignum
styrkja fjárhagsstöðu bankans og
getu hans til að styðja við vöxt hag-
kerfisins og jafnframt greiða arð til
hluthafa.
„Það er mjög góður gangur í
þessu,“ segir Steinþór um eignasöl-
una. Hann segir sölu sum árin hafa
verið yfir væntingum.
Tugmilljarða eignasala
Hratt hefur gengið á óseldar eignir í vörslu Landsbankans undanfarið
Sala á hlutum í Promens og Valitor mun bætast við 14,5 milljarða eignasölu í ár
MEignasala styrkir »4
styrkja fjárhag
bankans, sem er
að 98% hluta í
eigu ríkisins.
„Eiginfjár-
staðan batnar
jafnt og þétt og
eignasala hefur
verið eðlilegur
og jákvæður þáttur í uppbyggingu
bankans,“ segir Steinþór.“
Til viðbótar er bankinn með til
Stefan Löfven, forsætisráðherra
Svíþjóðar, tókst ekki að ná samn-
ingum við stjórnarandstöðuna á
neyðarfundi í gærkvöldi. Löfven
hafði vonast til að semja við leiðtoga
stjórnarandstöðunnar um að bjarga
fjárlagafrumvarpi sínu og þar með
ríkisstjórninni. Stjórnarandstaðan
hyggst kjósa með eigin tillögum að
fjárlagafrumvarpi og fyrr í gær
lýstu Svíþjóðardemókratarnir því
yfir að það myndu þeir einnig gera.
„Við höfum útskýrt það sem við
sögðum áður, að við munum kjósa
með okkar tillögum og að við erum
ekki tilbúin að breyta þeim. Við
stöndum við þá trú okkar að það sé
betra fyrir Svíþjóð,“ sagði Annie
Loof, leiðtogi Miðflokksins, eftir
fundinn í gærkvöldi. Leiðtogar
stjórnarandstöðunnar voru sammála
um að Löfven gæti ekki fengið þá til
að skipta um skoðun. »17
Stjórnar-
kreppa
í Svíþjóð
Stjórn Löfvens
berst fyrir lífi sínu
Áætlað er að heildaruppskera á
korni hafi verið nálægt 10 þúsund
tonnum í haust. Er það meira en á
síðasta ári en mun minna en verið
hefur að jafnaði fimm ár þar á und-
an. Uppskera var mjög góð á Norð-
austur- og Austurlandi en vonbrigði
voru með árangurinn á Suður- og
Vesturlandi. Uppskera var ódrýgri
en lengi var útlit fyrir. »12
Kornuppskera
ódrýgðist í lokin
Uppskera Kornið er komið í hlöður.
Stjórn Faxaflóahafna og Akranes-
bær hafa nú til umfjöllunar tillögur
að landfyllingu við Akraneshöfn
vegna áforma HB Granda um að
reisa þar byggingar undir fisk-
vinnslu og tengda útgerðarstarfsemi
sína og dótturfélaga.
Landfyllingin yrði allt að 70 þús-
und fermetrar að flatarmáli og áætl-
aður framkvæmdakostnaður er á
bilinu 1,7 til 2,1 milljarður króna.
Um mikla efnistöku yrði að ræða,
sem væntanlega þyrfti að fara í mat
á umhverfisáhrifum.
HB Grandi kynnti hugmyndir sín-
ar í haust fyrir stjórn Faxaflóahafna.
Er m.a. gert ráð fyrir nýrri frysti-
geymslu á landfyllingunni og bygg-
ingum undir vinnslu á bolfiski og
uppsjávarfiski. Að auki er gert ráð
fyrir stækkun á því húsnæði sem
dótturfélög HB Granda eru í, Vignir
G. Jónsson hf. og Norðanfiskur. Þá
er reiknað með að stækka fiskþurrk-
un HB Granda sem áður var í eigu
Laugafisks.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri
HB Granda, segir að miðað við
áform um aukna fiskvinnslu á Akra-
nesi sé þörf á betri aðstöðu við hafn-
arsvæðið. Hagræði sé í því að flytja
starfsemina sem mest á einn stað.
bjb@mbl.is »14
Auka starfsemi á Akranesi
HB Grandi vill reisa byggingar á nýrri landfyllingu
Svæðið yrði allt að 70 þúsund fermetrar að flatarmáli
„Þegar við hjá Mýflugi erum að
koma suður í sjúkraflugi, jafnvel í
veðrum, þegar innanlandsflug að
öðru leyti liggur niðri , þá hefur
það gerst að við höfum orðið að
nota þessa flugbraut. Ef hún hefði
ekki verið til staðar hefðum við ein-
faldlega ekki komist suður,“ segir
Þorkell Ásgeir Jóhannsson, yfir-
flugstjóri hjá Mýflugi, um skýrslur
um nothæfisstuðul flugbrauta á
Reykjavíkurflugvelli. »6
Mikilvægið felst í
hverju einstöku tilviki
Straumur
fjárfestingabanki
stefnir að því að
ljúka hlutafjár-
aukningu fyrir
um 500 milljónir.
Jakob Ás-
mundsson, forstjóri Straums, segir
„mjög líklegt“ að bankinn nýti sér
forkaupsrétt á hlut Íslandsbanka
og ESÍ í Íslenskum verðbréfum. Við
það mun Straumur eignast ráðandi
hlut í ÍV. »16
500 milljóna hluta-
fjáraukning Straums
Tryggir
öruggan bakstur
ROYAL
Jóladagatalið er á
jolamjolk.is
dagar til jóla
21