Morgunblaðið - 03.12.2014, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 03.12.2014, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014 Fyrir sunnan söl og þara sé ég hvíta örnu fara, ber við dagsól blóðgan ara. Þessar ljóðlínur, hinar síðustu í kvæði Halldórs Kiljans, Rhody- menia Palmata, kenndi Baldur Vilhelmsson mér fyrir sextíu ár- um. Þær eru lokalínur kvæðisins en innan sviga segir skáldið þær engu að síður upphaf á nýju kvæði. Baldur var á æskuárum áhugasamur um nýjungar í skáldskap og dáði ekki síst Hall- dór og Stein Steinar. Þessi guðfræðinemi var litrík- astur okkar sem þá tróðum mar- vaðann í Félagi róttækra stúd- enta við Háskóla Íslands. Hann var bjartur yfirlitum, snar í hugs- un, orðsnjall og spaugvís. Við sumbl var Baldur hrókur alls fagnaður og líka á kjaftatörnum sem oft vildi teygjast lengur úr en góðu hófi gegndi. Ekki mun fjarri lagi að Sturl- unga hafi verið Baldri kærust bóka þegar hann var í guðfræði- deildinni. Hann kunni fleira úr þeirri bók heldur en úr Biblíunni. Einn leikur hans var sá að gefa mönnum nöfn úr Sturlungu. Sjálfur var hann Sturla, albúinn þess að taka út syndagjöldin fyrir dyrum höfuðkirknanna í Róm. Mig heiðraði hann með nafni Svarthöfða Dufgussonar. Þegar Baldur Vilhelmsson inn- ritaðist í guðfræðideild varð margur hissa og ýmsir furðu lostnir er hann tók vígslu og gerðist prestur í Vatnsfirði vorið 1956. Hann hafði hins vegar ætíð gaman af að koma á óvart og ganga fram af þeim sem jafnan fóru alfaravegi. Líka má vera að undir skálkslegu yfirbragðinu hafi ætíð leynst kenndin sem sumir kalla guðsneista. Baldur var prestur í Vatnsfirði í nær 44 ár, lengur en nokkur annar í þúsund ára sögu kristni- halds við Djúp, að frátöldum völ- undinum snjalla, séra Hjalta Þor- steinssyni málara, sem náði 50 árum. Minn gamli félagi gegndi sínu erfiða prestsembætti víta- laust, að ég hygg, og eignaðist þar vestra marga góða vini. Hann var aldrei óumdeildur og stund- um styrr í kringum hann, enda kaus hann oft storminn fram yfir lognið. Að mér læðist minning um eina af mörgum heimsóknum mínum í Vatnsfjörð. Það var síðla sumars 1966. Baldur og fjöl- skylda hans bjuggu þá enn í gamla prestbústaðnum, sem byggður var 1907. Þetta var all- stórt tveggja hæða timburhús með bröttum stiga upp á efri hæðina sem var undir súð. Í hús- inu var ekkert rafmagn en kveikt á olíulömpum þegar rökkur færð- ist yfir landið. Vatnsfjörður var öldum saman eitt besta brauð landsins og höfð- ingjasetur á fyrri tíð. Þar grípur komumann nálægð hins liðna þegar húmar að kvöldi. Á sínum fyrstu árum vestra gekk Baldur að eiga Ólafíu Salvarsdóttur, bóndadóttur frá Reykjarfirði í Vatnsfjarðarsveit. Hún stóð djúpum rótum í sinni fósturjörð við Djúpið og heyrði til því mann- lífi sem stóð þar í blóma á fyrri hluta 20. aldar. Ólafía var klett- urinn í lífi prestsins og græddi mörg mein. Hún andaðist í júlí á þessu ári. Ég kveð minn gamla æsku- félaga. Enginn kemur í hans stað en lögmálinu lútum við öll. Börn- um Baldurs og Ólafíu færi ég ein- læga samúðarkveðju frá mér og Sigurjóni Einarssyni, sem dvelur á sjúkrahúsi. Kjartan Ólafsson.  Fleiri minningargreinar um Baldur Vilhelmsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. og vináttu í gegnum tíðina og votta börnum og barnabörnum hans okkar innilegustu samúð. Guð blessi minningu Þórs Guð- jónssonar. Árni Ísaksson, Einar Hann- esson, Sumarliði Óskarsson. Látinn er Þór Guðjónsson, fyrrverandi veiðimálastjóri. Hann var Reykvíkingur en rakti ættir austur í Árnessýslu. Þór lifði tímana tvenna. Eftir stúd- entspróf sigldi hann með Detti- fossi árið 1941 til New York í fyrstu skipalest sem komst eftir að síðari heimsstyrjöldin var skollin á. Þaðan hélt ferðalagið áfram til Seattle þar sem hann nam vatnafiskafræði við Uni- versity of Washington. Hann lauk námi sínu árið 1945 og kom til Íslands eftir styrjaldarlok, þegar mikið breytingarskeið var hafið. Stofnanir voru settar á laggirnar á árunum eftir stríð og ein þeirra var embætti veiði- málastjóra. Vel menntuðum manninum var falið nýstofnað embætti sem hann sinnti til starfsloka árið 1986. Eftir að um hægðist naut Þór þess í ríkum mæli að hafa vinnuaðstöðu á sín- um gamla vinnustað. Hann hélt jafnan nákvæma dagbók, en safn þeirra var afhent Þjóðskjalasafni Íslands til varðveislu. Árið 2004 kom út hefti með grein Þórs, Þróun í gerð fiskvega á Íslandi fram til 1970, þar sem unnt er að fræðast um einn þátt hans ævi- starfs. Þór var afar vel að sér um allt sem laut að landsins gagni og nauðsynjum, þekkti hverja á og lækjarsprænu. Hann ræktaði tengsl sín við landsbyggðina og kunni góð skil á búskapar- og staðháttum sem var nauðsynlegt vegna starfans. Liðnir eru ára- tugir síðan kynni okkar Þórs hófust. Eftirminnilegt er þegar hjónin komu úr árlegum veiði- ferðum sínum í Norðurá í júní. Þá var tryggt að vænir laxar veiddust. Efnt var til veislu að veiðiferð lokinni og oft var fiskur aflögu til að gefa samferðafólki og laxaflök grafin eftir kúnst- arinnar reglum. Graflaxsósan síðan löguð með mikilli sólselju, gerð eftir uppskrift úr danskri kokkabók tengdamóður hans. Samkvæmt ákvörðun þjóð- minjavarðar var mér falið að að- stoða konu Þórs, Elsu, við frá- gang á rannsóknum hennar á íslenska refilsaumnum með það fyrir augum að safnið gæfi út rit- verk með niðurstöðunum. Það þýddi að síðustu árin urðu heim- sóknir mínar til Elsu tíðar. Marga fimmtudaga lá leiðin til þeirra í Kópavog þar sem húsið var undirlagt vinnu þeirra beggja. Þór hafði stórt skrifborð í stofu en Elsa með sinn starfs- vettvang eiginlega alls staðar annars staðar. Við konur sátum löngum stundum yfir textagerð og myndavali, neðanmálsgrein- um og spekúlasjónum um ref- ilsaum og myndrænt saman- burðarefni. Þá dró Þór sig jafnan baksviðs og sýslaði í eld- húsinu en þar kom að Elsa kall- aði: Tóti, ertu ekki með ein- hverja hressingu fyrir Lilju? Þá birtist hann með veitingar á bakka og var vel hugað að að hver fengi sitt drykkjarílát og servíettu. Á þessum stundum barst talið um víðan völl. Að því sem hæst bar í þjóðmálum, að bændum og búaliði við Hvítá á Borgarfirði, að lífinu í Reykjavík á eftirstríðsárunum og myndir af afkomendum sem bjuggu hér og þar um heiminn voru dregnar fram til að sýna mér. Gagn- kvæman áhuga sýndu þau á hög- um mínum og minna og því sem fram fór hverju sinni á safninu. Þór studdi konu sína í leik og starfi. Hann sýndi störfum og skyldum starfsmanna Þjóð- minjasafnsins vakandi áhuga. Við sem þekktum Þór þökkum samfylgd og góðvild sem hann sýndi okkur. Lilja Árnadóttir.  Fleiri minningargreinar um Þór Guðjónsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. ✝ Kristjana El-ísabet Jóhanns- dóttir fæddist í Reykjavík 17. mars 1921. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Mörk 22. nóv- ember 2014. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jó- hann Bjarni Hjör- leifsson, vegaverkstjóri og þingskrifari í Reykjavík, f. 1893 á Hofsstöðum í Miklaholts- hreppi í Hnappadalssýslu, d. 1959 í Reykjavík og Sigríður Jó- hanna Sigurðardóttir húsmóðir, f. 1897 á Ystu-Görðum í Kol- beinsstaðahreppi í Hnappadals- sýslu, d. 1975. Systkini Krist- jönu Elísabetar voru: 1) Sigurður, verkfræðingur og vegamálastjóri, f. 1918, d. 1976. Kona hans var Stefanía Guðna- dóttir húsmóðir, f. 1924, d. 1997. Þeirra sonur er Skúli, f. 1958, doktor í vísindasagnfræði. 2) Kristjana Elísabet, f. 1919, d. 1920. 3) Dóra húsmóðir, f. 1930, d. 2004. Maður hennar var Magnús Gíslason tannlæknir, f. 1930. Þeirra börn eru Jóhann, f. Hildur Björk Hörpudóttir, guð- fræðingur og framkvæmda- stýra, f. 1980. Þau eiga þrjú börn, Auði Emilíu, f. 2001, Markús Pál Bjarma, f. 2002 og Bjart Stefán, f. 2008. 3) Stefán Erlendsson, f. 1986, bókavörður og frístundaleiðbeinandi. Kristjana Elísabet, alltaf köll- uð Ella, ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík. Hún stundaði nám í Miðbæjarskólanum, Verslunar- skóla Íslands og seinna í hús- mæðraskóla í Svíþjóð. Hún var mikil íþróttakona og æfði fim- leika hjá ÍR í mörg ár og var meðal annars í hópi fimleika- fólks sem sýndi á Lýðveldishá- tíðinni á Þingvöllum 1944. Að námi loknu starfaði hún í Har- aldarbúð í Reykjavík. Eftir að Ásta, dóttir þeirra Friðjóns, fæddist vann hún í mörg sumur sem ráðskona í vegavinnu og tók Ástu þá með sér. Annars var hún heimavinnandi. Fjölskyldan bjó í nokkur ár í Kaupmanna- höfn og þá tengdist Ella borg- inni ævarandi tryggðaböndum. Seinni árin vann hún sem að- stoðarkona hjá tannlækni og móttökuritari í Domus Medica. Síðustu árin átti hún heimili í Dúfnahólum 4 í Reykjavík en síðasta árið dvaldi hún á hjúkr- unarheimilinu Mörk. Útför Ellu verður gerð frá Seljakirkju í dag, 3. desember 2014, og hefst athöfnin klukkan 11. 1955, rafmagns- verkfræðingur, Sigríður Dóra, f. 1959, yfirlæknir, og Gylfi, f. 1966, dósent í HÍ og fv. ráðherra. Sam- feðra systkini Kristjönu Elísabet- ar voru: Sigurður Kristinn tækni- fræðingur, f. 1943 og Gréta ritari, f. 1953. Móðir þeirra er Svein- björg Kristinsdóttir, f. 1919, d. 2007. Kristjana Elísabet giftist 1949 Friðjóni Ástráðssyni, að- alféhirði hjá Eimskipafélagi Ís- lands, f. 1926, d. 1993. Þau skildu 1985. Kristjana og Frið- jón eignuðust eina dóttur, Ástu, fulltrúa, f. 1953. Maður hennar er Erlendur Jóhannsson fóður- fræðingur, f. 1950. Synir þeirra eru: 1) Birgir Friðjón hugbún- aðarsérfræðingur, f. 1974. Kona hans er Anna Jóhannesdóttir, dýralæknir og heilbrigðis- fulltrúi, f. 1973. Dætur þeirra eru Ásta Elísabet, f. 2008 og Lilja Jóhanna, f. 2012. 2) Egill Rúnar hugbúnaðarsérfræð- ingur, f. 1978. Kona hans er Hvernig er hægt að þakka, það sem verður aldrei nægjanlega þakkað. Hvers vegna að kveðja, þann sem aldrei fer. Við grátum af sorg og söknuði en í rauninni ertu alltaf hér. Höndin sem leiddi mig í æsku mun gæta mín áfram minn veg. Ég veit þó að víddin sé önnur er nærveran nálægt mér. Og sólin hún lýsir lífið eins og sólin sem lýsti frá þér. Þegar að stjörnurnar blika á himnum finn ég bænirnar,sem þú baðst fyrir mér. Þegar morgunbirtan kyssir daginn, finn ég kossana líka frá þér. Þegar æskan spyr mig ráða, man ég orðin sem þú sagðir mér. Vegna alls þessa þerra ég tárin því í hjarta mínu finn ég það, að Guð hann þig, amma mín, geymir á alheimsins besta stað. Ótti minn er því enginn er ég geng áfram lífsins leið. Því með nestið sem amma mín gaf mér, veit ég að gatan hún verður greið. Og þegar sú stundin hún líður að verki mínu er lokið hér. Þá veit ég að amma mín bíður og með Guði tekur við mér. (Sigga Dúa) Takk fyrir allt, elsku amma mín. Stefán. Það var fyrir níu árum að ég kynntist ömmu Ellu, eða ömmu löngu eins og við kölluðum hana. Auðvitað var hún ekki alvöru amma mín, heldur amma manns- ins míns, en ég var svo heppin að með okkur tókst afar góð vinátta þrátt fyrir töluverðan aldursmun. Það var kannski ekki svo skrítið því að Ella var ung í anda, hress og kát, og vildi hafa líf og fjör í kringum sig. Hún var alltaf á ferðinni, strætó var hennar einka- bíll og hún var ekkert að seinka því verki til morguns sem átti að gerast í dag. Það var ekki henni að skapi. Þótt amma Ella væri ekki há- vaxin kona lét hún ekki vaða yfir sig, enda ákveðin í framgöngu og hrein og bein í samskiptum. Það var hægt að treysta því að hún léti skoðun sína í ljós. Hún var mikil húsmóðir og naut þess að eiga fallegt heimili, með fallegum gripum sem aldrei féll á og var gaman dást að, enda var hún afskaplega hirðusöm og velvirk. Það voru ófáar ferðirnar sem við skruppum á kaffihús að skoða mannlífið og spjalla um daginn og veginn. Þar sköpuðust ómetan- legar minningar, ekki síst fyrir litlu nöfnu hennar, Ástu Elísa- betu, en hún var svo lánsöm að fá að hafa ömmu hjá sér í sex ár og virðist ætla að verða kaffihúsa- kona eins og amma langa. Það er með söknuði að ég kveð ömmu Ellu með sömu orðum og hún kvaddi mig fyrir nokkrum dögum: Hjartans þakkir fyrir allt. Anna. Á kveðjustund er ljúft að líta til baka og rifja upp góðar minning- ar. Ella frænka var mikilvægur hlekkur í lífi okkar systkinanna í æsku og síðar þegar við eignuð- umst okkar börn og fjölskyldur var Ella áfram mikilvæg í okkar lífi. Fyrir alla hennar umhyggju í okkar garð verður seint fullþakk- að. Þær systur Dóra og Ella voru um margt ólíkar og aldursmunur nokkur en á milli þeirra var mjög góð vinátta og nær daglegt sam- band. Ekki spillti fyrir að í mörg ár bjuggu þær í sama húsi, á æskuheimili þeirra að Vestur- vallagötu 10 og 12. Mikill sam- gangur var milli fjölskyldna Ellu og Dóru, jól og áramót haldin há- tíðleg saman, það voru ljúfar stundir. Vissulega tók borðhaldið styttri tíma hjá Ellu, það var eng- in ástæða til að dvelja of lengi yfir hátíðarmatnum, sem bragðaðist þó alltaf mjög vel. Ella og Friðjón voru höfðingj- ar heim að sækja. Ella bauð í mat, eða réttara sagt sótti okkur systkinin þegar foreldrar okkar voru að heiman. Þegar við systk- inin höfðum óljósar hugmyndir um að fara út í búð og kaupa eitt- hvað að borða kom Ella, búin að elda og allt tilbúið. Auðvitað þáð- um við matinn með þökkum. Ljúft var síðar að heimsækja Ellu, alltaf var boðið upp á pönnukökur og í veislum fjöl- skyldunnar kom Ella jafnan fær- andi hendi með kúfaða diska af pönnukökum. Ella var alltaf boðin og búin að passa dóttur okkar Björgvins, Margréti Erlu, það þurfti bara að hringja nógu snemma í hana við tilfallandi veikindi, annars var Ella farin út úr húsi á morgn- ana. Hún kom með okkur til Sví- þjóðar í einn mánuð þegar Mar- grét Erla var 5 mánaða. Passaði barnið, og köttinn sem fylgdi húsinu, af sama krafti og ánægju og annað sem hún tók sér fyrir hendur. Strax fyrsta daginn í Gävle var hún komin í bæinn, með barnavagninn í strætó, rölti um, kíkti í búðir og á kaffihús enda engin ástæða til að sitja heima og bíða. Ella var rösk og drífandi í öllu sínu lífi og við munum eftir henni á hraðferð um bæinn, gjarnan í strætó. Lífið var ekki laust við áföll, hún tókst á við þau af krafti, bognaði aðeins, en rétti jafnan við og hélt síðan ótrauð áfram og fann sér ný viðfangs- efni. Ásta dóttir hennar og strák- arnir hennar voru Ellu allt. Hún tók þátt í þeirra lífi af miklum áhuga, fylgdist með og gladdist yfir góðum árangri þeirra. Hún vildi allt fyrir strákana gera, gaf þeim ást, umhyggju og tíma. Auraráðin voru aldrei mikil en Ella bætti það upp með prjóna- skap og pönnukökubakstri fyrir drengina. Síðustu ár bættust langömmubörn í hópinn og voru miklir gleðigjafar. Missir Ástu og fjölskyldu er mikill, sér í lagi Stefáns en þau voru miklir fé- lagar og studdu hvort annað. Umhyggja Ellu fyrir einka- dótturinni var ríkulega endur- goldin á síðustu árum. Ásta og strákarnir hennar voru stöðugt að gæta að Ellu, til að tryggja góð og farsæl ævilok. Við fylgd- umst með daglegum heimsókn- um þar sem nægur tími var gef- inn til að líta yfir farinn veg og rifja upp góða tíma. Við Björgvin og Margrét Erla þökkum Ellu samfylgdina og kveðjum með þakklæti í huga. Sigríður Dóra Magnúsdóttir. Kristjana Elísabet Jóhannsdóttir  Fleiri minningargreinar um Kristjönu Elísabetu Jó- hannsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, ÞORVALDUR HEIÐDAL JÓNSSON, fyrrum bóndi á Tréstöðum, Víðilundi 16a, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 5. desember kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð. . Þórunn Jóhanna Pálmadóttir, Gerður G. Þorvaldsdóttir, Hermann A. Traustason, Rósa K. Þorvaldsdóttir, Ólafur Jósefsson, Jón Á. Þorvaldsson, Gyða H. Sigþórsdóttir, Gestheiður B. Þorvaldsdóttir, Hermann H. Kristjánsson, afabörn, langafabörn og systkini hins látna. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SAMÚEL ANDRÉS ANDRÉSSON skipasmiður og kafari frá Færeyjum, Gullsmára 9, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landakoti fimmtudaginn 13. nóvember. Jarðarför verður gerð frá Digraneskirkju kl. 15.00 föstudaginn 5. desember. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir; þeim sem vilja minnast hans er bent á hjartadeild Landspítalans. Bergþóra Ásgeirsdóttir, Sigurður Samúelsson, Rósa Hansen, Davíð Samúelsson, Kristján Stefánsson, Ragnheiður Samúelsdóttir, Anna Berg Samúelsdóttir, Stefán Hrafnkelsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, bróðir okkar og mágur, DANÍEL GUNNAR SIGURÐSSON leigubifreiðastjóri, Nýbýlavegi 104, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 25. nóvember. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 8. desember kl. 15.00. . Elsa Gísladóttir, Sigurrós Sigurðardóttir, Lilja Sigurðardóttir, Sigurður Jónsson og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.