Morgunblaðið - 16.12.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Bankakerfið virðist lokaðra fyrir
konum en körlum og því er þörf á
sérstökum lánatryggingasjóði fyrir
konur. Þetta segir Ásdís Guðmunds-
dóttir, verkefnisstjóri Svanna, sem
er lánatryggingasjóður kvenna í eigu
Reykjavíkurborgar, velferðarráðu-
neytisins og atvinnu- og nýsköpun-
arráðuneytisins.
Sjóðurinn veitir lánatryggingar,
ráðgjöf og handleiðslu til fyrirtækja
kvenna og undir stjórn kvenna í sam-
starfi við Landsbankann. Borgarráð
Reykjavíkur samþykkti á fundi sín-
um í síðustu viku
að framlengja
starfstíma
Svanna og nú er
beðið eftir svari
ráðuneytanna
tveggja um fram-
haldið.
Ásdís segir að
frá árinu 2011
hafi 14 lánatrygg-
ingar verið veitt-
ar, um þær hafi borist um 80 um-
sóknir og yfirleitt séu lánin á bilinu
1-10 milljónir. Til að koma til greina
sem lántakandi þarf að skila fullbú-
inni viðskiptaáætlun og fjárhags-
áætlun og lánin eru veitt fyrirtækj-
unum, ekki einstaklingum, og að
sögn Ásdísar þarf ekki að leggja
fram veð fyrir láninu.
Alls konar fyrirtæki
Hún segir nýja skýrslu, sem unnin
var um starfsemi sjóðsins, gefa
fyllsta tilefni til að halda starfsem-
inni áfram og Landsbankinn hefur
lýst yfir vilja til áframhaldandi sam-
starfs. Spurð um hvers konar fyrir-
tæki hafi notið fyrirgreiðslu Svanna
segir Ásdís þau fylla fjölbreyttan
hóp. „Þetta eru alls konar fyrirtæki;
framleiðsla, hönnun, ferðaþjónusta,
nýsköpunar- og tæknifyrirtæki, svo
eitthvað sé nefnt,“ segir hún. „Flest
eru ný, eru „startup-fyrirtæki“, en
önnur hafa starfað um tíma.“
Er þörf fyrir lánatryggingasjóð
eingöngu fyrir konur? „Við sjáum að
svo er. Bankakerfið virðist því miður
enn vera lokaðra fyrir konum en
körlum og könnun sem við gerðum
meðal þeirra sem hafa fengið lán hjá
okkur staðfestir það. Nokkurra ára
gamlar rannsóknir sýna að það er
erfiðara fyrir konur að nálgast fjár-
magn, þær fá lægri lán og lægri
styrki. Þess vegna sjáum við áfram-
haldandi þörf á Svanna og teljum
þetta þarft verkefni til a.m.k. næstu
fjögurra ára,“ segir Ásdís.
Lánar bara fyrirtækjum kvenna
Lánatryggingasjóðurinn Svanni bíður svara frá tveimur ráðuneytum um fram-
hald starfsemi sinnar Segir þörf á sérstökum lánatryggingasjóði kvenna
Ásdís
Guðmundsdóttir
Byggðastofnun veitir stuðning
við fyrirtækjarekstur kvenna á
landsbyggðinni. Um er að ræða
lán á bilinu 1-10 milljónir til allt
að tíu ára og þess er krafist að
verkefnið leiði til aukinnar at-
vinnusköpunar kvenna. Lánin
eru veitt fyrirtækjum sem eru
a.m.k. 50% í eigu kvenna og
undir stjórn kvenna, sam-
kvæmt vefsíðu Byggðastofn-
unar.
Byggðastofn-
un styrkir
ATVINNUSKÖPUN KVENNA
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Bókaforlagið Bókabeitan hefur
samið við rótgróið þýskt bóka-
forlag, Arena Verlag, um útgáfu
unglingabókaflokksins Rökkur-
hæðir. Í samningnum er gert ráð
fyrir því að gefnar verði út þrjár
bækur auk þess sem vilyrði er
fyrir því að þýska fyrirtækið gefi
út fleiri bækur í bókaflokknum.
Til þessa hafa verið gefnar út sex
bækur undir hans nafni hér á
landi.
Birgitta Elín Hassel og Marta
Hlín Magnadóttir standa að baki
Bókabeitunni. Auk þess að vera
höfundar að Rökkurhæðum gefa
þær út 11 bækur í jólabókaflóðinu
í ár. Að sögn Birgittu á samning-
urinn rætur sínar að rekja til
Bókamessunnar í Frankfurt. „Þar
var stúlka frá þýska forlaginu sem
hafði uppi á okkur eftir að
hafa leitað að okkur logandi
ljósi. Við náðum að spjalla
við hana í fimm mínútur, sem
var rétt nægilega mikið til
þess að segja henni um hvað
bækurnar fjölluðu og við
skiptumst á nafnspjöldum,“
segir Birgitta. Samskiptin
héldu svo áfram eftir að
Birgitta og Marta komu til
Íslands. Úr varð samningur
þar sem gert er ráð fyrir útgáfu
15 þúsund til 30 þúsund bóka í
fyrstu prentun. Birgitta segir
samninginn góðan. „Fyrsta
greiðsla gerir ráð fyrir 15 þúsund
bókum en svo er þrepahækkun
þegar bækurnar seljast í 15-30
þúsund eintökum,“ segir Birgitta.
Forlag þeirra Mörtu fær bæði ein-
greiðslu og hlutfall af hverri seldri
bók.
Mjög góður samningur
„Samningurinn er mjög góður
miðað við það sem ég þekki. Fín
upphafsgreiðsla og mjög ásættan-
legar prósentur af seldum eintök-
um.
Þetta er sérstaklega góð viður-
kenning fyrir einhvern sem stend-
ur sjálfur í að gefa út bækur. Við
höfum ekki þurft að ganga í gegn-
um þá síu sem fer fram inni í
forlögunum því við gefum þetta út
sjálfar. Þess vegna erum við sér-
staklega stoltar af að stórt þýskt
forlag hafi ákveðið að gefa út
bækurnar okkar,“ segir Birgitta.
Rökkurhæðir eru spennu-
hrollvekjusögur fyrir unglinga.
Rökkurhæðir Birgitta Elín Hassel og Marta Hlín Magnadóttir hafa nú selt útgáfurétt á Rökkurhæðum til þýsku
bókaútgáfunnar Arena Verlag. Tilefni myndarinnar var þegar Rökkurhæðir fóru í sölu á Amazon-vefnum.
Hittust í fimm mínút-
ur á Bókamessunni
Sömdu við þýskt bókaforlag um útgáfu Rökkurhæða
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis
lagði í gær til breytingartillögur á
gjaldahlið fjárlagafrumvarpsins og
fela tillögurnar í sér aukningu
ríkisútgjalda upp á 325,2 milljónir.
Meðal þess sem nefndin leggur til
er að ljúka átaki við að tryggja skil-
virk úrræði fyrir þolendur kynferð-
isbrota, einkum barna, og fá tvö
embætti tíu milljónir króna hvort
um sig. Annars vegar ríkissaksókn-
ari og hins vegar lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu.
Þá gengur tillaga nefndarinnar
út á að styrkja rekstrargrunn heil-
brigðisstofnana á landsbyggðinni
þar sem lagt er til 100 milljóna
króna framlag til málaflokksins.
100 milljóna króna framlagið kem-
ur til viðbótar 80 milljóna króna
framlagi sem þegar hefur verið
samþykkt og er því um rúmlega
tvöföldun framlags ríkisins til
málaflokksins að ræða nái tillögur
nefndarinnar fram að ganga.
50 m. kr. vegna hælisleitenda
Nefndin leggur til rúmlega 50
milljóna króna fjárveitingu vegna
málefna hælisleitenda og er fjár-
veitingin tvískipt.
Annars vegar er um að ræða 21
milljón króna til nýrrar kæru-
nefndar útlendingamála til þess að
standast viðmið um 90 daga máls-
hraða við afgreiðslu mála. Nefndin
tekur við kærumálum nú um ára-
mótin en gert var ráð fyrir því að
hún yrði mönnuð tveimur mönnum
auk formanns.
Hins vegar verður 29 milljónum
króna varið til Útlendingastofn-
unar vegna úrvinnslu eldri mála
vegna hælisleitenda, skv. tillögum
nefndarinnar. Í skýringu segir að
ekki hafi tekist að ná utan um þau
mál sem verði afar kostnaðarsöm
takist ekki að tryggja nauðsyn-
legan mannafla til afgreiðslu
þeirra. Því telji nefndin það hag-
kvæmasta kostinn fyrir ríkissjóð að
fjölga lögfræðingum árið 2015.
Útgjöld aukin um
325 milljónir kr.
100 milljónir til heilbrigðisstofnana
Morgunblaðið/Þórður
Fjárlaganefnd Meirihluti nefnd-
arinnar lagði fram tillögur í gær.
Bókabeitan er smátt forlag sem Birgitta og Marta stofnuðu árið 2011
og rekur starfsemi sína í Dugguvogi 17 í Reykjavík. Arena Verlag hóf
hins vegar starfsemi árið 1949 og sérhæfir sig í útgáfu
barna- og unglingabóka. Rökkurhæðir eru spennu-
hrollvekjusögur fyrir unglinga og gefnar hafa verið út sex
bækur í bókaflokknum sem nýtur mikilla vinsælda hér á
landi.
Að sögn Birgittu hafði þýska forlagið lengi leitað að sög-
um líkum þeim sem finna má í bókaflokknum. „Svo sagði
mér stúlka á vegum þýska bókaforlagsins að þau hefðu
lengi verið með augun opin fyrir íslensku efni og hún var
afskaplega glöð að fá hvort tveggja í einum pakka,“ segir
hún. Bækurnar verða útgefnar um gjörvallt Þýskaland.
„Hvort tveggja í einum pakka“
ARENA VERLAG VILDI GEFA ÚT BÓK EFTIR ÍSLENDING
1. PRENTUN UPPSELD
2. PRENTUN
Á LEIÐINNI Í VERSLANIR
holabok.is | holar@holabok.is