Morgunblaðið - 16.12.2014, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.12.2014, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 ✝ Reinharð Vil-helm Sigurðs- son, Harrý, fæddist á Linnetstíg 9 í Hafnarfirði 20. desember 1927. Hann lést á Drop- laugarstöðum 10. desember 2014. Foreldrar hans voru Ásta Júl- íusdóttir, f. 16.4. 1900, d. 14.5. 1970, og Sigurður Kristinn Ólafsson, f. 12.8. 1901, d. 18.8. 1955, sjó- maður á Dalvík. Fóstri Harrýs var Þorlákur Þorkelsson skip- stjóri, f. 1897, d. 1980. Systkini Harrýs sammæðra: Unnur Sig- urðardóttir, f. 1919, d. 2000, Brynhildur Olgeirsdóttir, f. 1921, Stella Erna Hansen, f. 1923, d. 1931, Sigurður Þor- láksson, 1930, d. 2009, Stella Þorláksdóttir, f. 1931, Valbjörn Þorláksson, f. 1934, d. 2009, Hanna Þorláksdóttir, f. 1937, d. 1995, Anna Þorláksdóttir, f. 1937, d. 2006, og Róbert Þor- láksson, f. 1943. Systkini Har- rýs samfeðra: Baldur, f. 1929, d, 2013, Birgir, f. 1931, d. 2004, Örn, f. 1932, d. 2008, Rafn, f. 1937, d. 1967, Verna, f. 1937, Gísli, f. 1939 og Steinþór, f. 1953. gift Kára Snæ Guðmundssyni og eiga þau Kötlu Ósk, f. 2010, og Ketil Mána, f. 2012. Börn Reinharðs og fv. eiginkonu, Sigríðar Albertsdóttur, eru Þóra Kristín, f. 1991, Margrét Sól, f. 1994, og Helgi Albert, f. 1998. Harrý ólst upp á Siglufirði og var kenndur þar við móður sína, „Harrý Ástu“. Hann var elstur í systkinahópnum, og hjálpaði móður sinni við að halda utan um heimilið þegar allt snerist um síldina. Hann fór til sjós þrettán ára hjá fóstra sínum og varð sjómennska og farmennska hans starfsvett- tvangur. 1948 réð hann sig á sænskt síldarflutningaskip sem kom til Siglufjarðar. Síðar var hann bátsmaður hjá norska kaupskipaflotanum og sigldi á stórum kaupskipum. Árin 1954 bjó fjölskyldan á Jótlandi en flutti heim aftur 1955 og bjó í Kópavogi til ársins 1960. Harrý fór í Sjómannaskólann og út- skrifaðist með stýrimannsrétt- indi 1958. Á árunum 1960 til 1964 bjuggu þau í Ólafsvík þar sem Harry var stýrimaður á Sæfellinu og Steinunni SH. Hann réð sig til Eimskipafélags Íslands 1964 og starfaði lengst af sem bátsmaður á Lagarfossi og Reykjafossi. 1974 varð hann verkstjóri í Sundahöfn og síðan yfirmaður frílagers Eimskips þar til hann lét af störfum 1994. Útför hans fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 16. desember 2014, kl. 13. Harrý kvæntist 1955 Kristínu Helgadóttur, f. 1.8. 1931. Foreldrar hennar voru Helgi Kristjánsson vél- stjóri, f. 1904, d. 1976, og k.h. Krist- ín Jónsdóttir, f. 1909, d. 2002. Börn: 1) Helga Margrét, f. 24.3. 1949, gift Benedikt Benediktssyni, f. 16.4. 1945. Dætur Helgu Margrétar eru Hildur Margrétardóttir, f. 1968, gift Jóhannesi Bjarna Eðvalds- syni, börn þeirra Una, f. 1991, og Hafsteinn Snorri, f. 2001; Ásdís María Helgudóttir, f. 1974, sonur hennar og Þórðar Inga Guðnasonar er Eiríkur Ingi, f. 1997. Börn Benedikts og fyrri konu hans Guðrúnar Erlu Þormóðsdóttur eru Laufey, gift Tómasi Tómassyni, börn Tómas Aron, Erla Mjöll og Haukur Már, og Benedikt, kvæntur Rut Þorgeirsdóttur, börn Ástrós Erla og Benedikt. 2) Stúlka, f. 23.2. 1953, d. 24.2. 1953. 3) Sig- urður, f. og d. 8.2. 1954. 4) Ósk, f. 23.8. 1955, d. 1.9. 1955. 5) Reinharð Vilhelm, f. 19.3. 1960, dóttir hans og Þóru Álfþórs- dóttur er Þórhildur, f. 1981, Mágur okkar, Reinharð W. Sigurðsson, er látinn, 86 ára að aldri. Hann hafði glímt við veik- indi undanfarin ár en var andlega hress allt fram í það síðasta. Við kynntumst Harry, eins og hann var daglega nefndur, á ung- lingsárum okkar á Siglufirði. Hann var sterkur, lipur og snar í snúningum. Harry fór ungur til sjós hjá fóstra sínum Þorláki frá Landamótum, var bæði á síld og síðan í ferðum upp í Hvalfjörð á vegum breska hersins. Hann fór ungur í siglingar á norskum skip- um. Var þetta á þeim tímum þeg- ar skip sigldu til þeirra hafna sem frakt bauðst en ekki eftir föstum áætlunum Hann sigldi þrisvar kringum jörðina á þessum árum og kynntist löndum og þjóðum. Þegar siglingum lauk kom hann heim, giftist systur okkar og fór að vinna hjá Eimskip og var þar í mörg ár, bæði til sjós og síðan í landi. Harry var bóngóður með afbrigðum og vildi allra manna vanda leysa og taldi ekki eftir sér sporin í þeim efnum. Harry og Stína systir eignuðust tvö börn, Helgu Margréti og Reinharð, og eru afkomendurnir orðnir margir. Alltaf var gott að koma til Harrys og Stínu, einkum fannst afabörn- unum það. Harry og Stína keyptu sér hús á Spáni og dvöldu þar á vetrum í mörg ár og undu glöð við sitt í sólinni og hitanum og innan um nýja kunningja og vini. Nú er komið að kveðjustund og er margs að minnast gegnum ár- in. Við bræður vitum að sigling mágs okkar yfir móðuna miklu verður farsæl og lending á strönd Sumarlandsins verður góð, þar sem vinir hans og burt farnir ætt- ingjar taka honum tveim höndum. Við bræður sendum systur okkar, börnum þeirra og ættingj- um bestu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hans. Jón, Kristján og Jóhannes. Elsku Harrý frændi. Núna þegar að leiðarlokum er komið þá getur maður ekki annað en hugs- að til þín. Þó þú værir ekki blóðskyldur okkur, maðurinn hennar Stínu frænku, þá varstu samt Harrý frændi og þannig ertu enn í huga okkar. Þú varst nefnilega enginn venjulegur frændi, sigldir um heimsins höf, færandi gjafir og gersemar þegar þú komst í land. Fallegur og flottur, með tattú og yfirvaraskegg eins og kvik- myndastjarna og þannig varstu alla tíð þó árin færðust yfir. Ljóm- inn og kærleikurinn, áhuginn og gleðin geislaði frá þér alla tíð. Mig langar til að minnast þeirra forréttinda sem við systk- inin nutum í uppvextinum. Á þessum árum þegar skólagangan hófst þá var ekki mikið um fjár- muni á okkar heimili. Það vissir þú og alltaf hafðir þú samband við mömmu hvert sumar og bauðst að kaupa handa okkur úlpur, skó eða hvað annað sem okkur gæti vant- að. Mamma var snögg að mæla fótstærð og láta þig vita hvað vantaði og svo bara sigldir þú til ókunnugra landa og keyptir handa okkur skólaföt. Það áttu ekki margir svona flott föt eins og við. Ég man t.d. þegar þú keyptir fermingarkáp- una hennar Sigríðar úr vínrauðu gervileðri, stígvél og stuttbuxur við. Hún var flottust og þannig er hægt að telja upp, hvítu leður- kuldaskórnir, nælonúlpur með skinnkraga, lappaúlpurnar, peys- urnar. Ég get heldur ekki gleymt dúkkuvagninum hennar Unu sem var eins og alvöru barnavagn. Það er minnisstætt þegar þú hringdir í mömmu og bauðst henni landburði af grænum bön- unum sem óvart höfðu lent í frystigámi á skipinu þínu og átti að henda. Þá varð þér að sjálfsögðu hugs- að til okkar barnanna. Mamma var snögg að samþykkja þetta góða boð, enda mikill hvalreki fyr- ir svona stóra fjölskyldu. Vikum saman héngu þessir bananar á þvottahússsnúrunum og þroskuð- ust með tíð og tíma og þá var svo sannarlega hátíð í bæ. Að heimsækja ykkur Stínu frænku var alltaf ævintýri fyrir okkur. Þar bar fyrir augu alls kyns dót sem þú hafðir keypt í út- löndunum, sem okkur dreymdi um að komast til einhvern daginn, endalaust sælgæti og svo sögurn- ar og myndir frá ferðunum sem gerðu heimili ykkar svo framandi fyrir okkur systkinin. Elsku Harrý frændi, það er hægt að segja svo margar góðar og skemmtilegar sögur um þig. Mestu skiptir er minningin um góðan dreng sem gaf af sér kær- leika og hlýju alla sína ævi. Elsku Stína, Helga og Harrý og fjölskylda, okkar dýpstu sam- úðarkveðjur til ykkar allra. Sigríður, Björg, Olgeir, Una og Trausti. Reinharð Vilhelm Sigurðsson Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest, að fegursta gjöf sem þú gefur, er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki hjartað sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til, gef þú úr sálarsjóði sakleysi fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Sigríður Jónsdóttir ✝ Sigríður Jóns-dóttir fæddist 18. janúar 1932. Hún lést 24. nóv- ember 2014. Útför Sigríðar Jóns- dóttur fór fram 8. desember 2014 Með innlegu þakklæti fyrir allt sem þú gafst okkur. Fyrir hönd bæna- hringsins í Hvera- gerði, Sunna Guðmundsdóttir. Já, óþarft er að kvíða því er koma skal, þín kærir vinir bíða í glæstumhimnasal. Meðal þúsund engla nú lífsins ljós þitt skín, já, lýsir eins og stjarna fögur minning þín. Þessar laglínur Labba (Ólafs Þórarinssonar) komu upp í huga mér þegar ég frétti að hún Sigga móðursystir mín væri öll. Hug- urinn leitaði í brunn minning- anna, ég var komin í Hlaðbrekk- una. Þvílíkt ævintýri fyrir litla stelpu sem ferðaðist með mömmu af Smáragötunni og alla leið suð- ur í Kópavog í strætó. Það var svo langt að hann gekk bara tvisvar á dag og það var svo leiðinlegt að ég fékk alltaf cheer- ios í nesti hjá Siggu áður en hald- ið var heim. Systurnar hittust gjarnan hjá Siggu og amma stundum líka. Mikið var talað og stundum sungið. Þær höfðu svo gaman af því að syngja saman. Á meðan prjónaði Sigga eina vett- linga. Féll ekki verk úr hendi enda heimilið stórt. Stundum fékk ég að gista hjá Ingu frænku og jafnöldru meðan foreldrar mínir voru í veiðitúr og það var sko gaman. Alltaf fjör, fullt af krökkum, ekki bara systkinin heldur líka nokkrir aukagemling- ar. Munaði ekki um nokkra í við- bót. Það voru hestar uppi á hæð- inni fyrir ofan Hlaðbrekkuna sem hægt var að klappa og stundum kindur, lakkrísgerð í sandgryfj- unum, brjóstsykursgerð í hina áttina, fullt af nýbyggingum sem hægt var að klifra í, berjamór langt í burtu þar sem nú er Breið- holtið og loftkökur fyrir jólin. Svo var líka hægt að fara til ömmu í Lundarbrekkuna sem var ekki leiðinlegt og einstaka sinnum í bíltúr með Skúla á stóra vöru- bílnum. Við vorum ekki alltaf hreinar þegar við komum úr æv- intýraleit en ég man aldrei eftir að það væri neitt mál. Kannski ekki hennar stíll að vera að fjasa yfir svoleiðis smámunum. Þegar árin liðu minnkaði samgangurinn þótt alltaf sæi ég öðru hvoru eða frétti af þessari ljúfu, kærleiks- ríku móðursystur minni. Ein- staka sinnum lagði hún leið sína hingað til okkar í Flóann og alltaf fylgdi henni þessi gleði, hlýja og góðir straumar. Það er alltaf sárt þegar ein- hver kveður þetta líf en það er huggun að Sigga er örugglega komin í blómabrekkuna sína þar sem bíður hennar hópur horfinna vina og fjöldi verkefna. Stefanía Geirsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÁRNI SIGFÚSSON húsasmíðameistari, Sléttuvegi 19, áður Heiðargerði 34, lést á hjartadeild LSH þann 8. desember. Útförin fer fram frá Grensáskirkju miðvikudaginn 17. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. . Margrét Guðvaldsdóttir, Ólafur S. Guðmundsson, Elísa N. Puangpila, Sigfús Árni Guðmundsson, Eva Geirsdóttir, Valdimar G. Guðmundsson, Valgerður Marinósdóttir, Birgir Guðmundsson, Ágústa María Jónsdóttir, afa- og langafabörn. Innilegar þakkir til allra sem hafa sýnt okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS WILLIAMS MAGNÚSSONAR, Krossholti 6, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á krabbameinslækningadeild 11E á Landspítalanum við Hringbraut. Guð blessi hjartahlýju ykkar. . Magnús Jónsson, Steinþór Jónsson, Guðlaug Helga Jónsdóttir, Davíð Jónsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til ykkar allra sem komuð til að vera með okkur fjölskyldunni þegar við kvöddum HLAÐGERÐI ODDGEIRSDÓTTUR frá Grenivík og Raufarhöfn. . Börn Hlaðgerðar og fjölskyldur þeirra. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ERLA GESTSDÓTTIR, Svöluhrauni 8, Hafnarfirði, lést miðvikudaginn 3. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á 4. hæð á Sólvangi fyrir einstaklega góða umönnun og hlýju. . Viðar Þórðarson, Birgir Viðarsson, Emelía Dóra Guðbjartsdóttir, Sigurlína Ellertsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, HELGA THORS, Hamarsgötu 8, Seltjarnarnesi, er látin. Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Kári Thors. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA JÓNSDÓTTIR frá Geitabergi, Einigrund 1, Akranesi, lést laugardaginn 29. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum samúð og hlýhug. Einnig sendum við þakkir til allra þeirra sem önnuðust hana í veikindunum. Sigríður Jóhannesdóttir, Eyþór Þórðarson, Pálmi Jóhannesson, Jón Jóhannesson, Einar Stefán Jóhannesson, Bryndís Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á út- farardegi verður greinin að hafa borist eigi síð- ar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birt- ing dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morg- unblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5- 15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.