Morgunblaðið - 16.12.2014, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.12.2014, Blaðsíða 40
40 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 Ég er að fara að halda fyrstu jólin heima og ligg yfir upp-skriftunum til að reyna að búa til jafn góðan mat ogmamma,“ segir Þóra Marteinsdóttir, tónskáld og tón- menntakennari. „Við ætlum að hafa hægeldað lambalæri því mér skilst að það sé erfitt að klúðra því. Börnin borða það líka með bestu lyst og það er í raun eina kjötið sem allir á heimilinu borða. Við maðurinn ól- umst upp við mjög ólíkar jólahefðir og erum ósammála um þær allar en við erum komin með tvö lítil börn og tími kominn á að prófa að halda jólin heima. Við erum rosalega spennt yfir því hvernig þetta mun ganga.“ Eiginmaður Þóru er Gunnar Benediktsson, fagstjóri hjá Listaháskóla Ís- lands og hljóm- borðsleikari Skálmaldar. Börn þeirra eru Hjörtur Martin fimm ára og Þórunn Obba eins og hálfs árs. Þóra og Gunnar eru bæði kór- stjórar, hún stjórnar Barnakór Vatnsendaskóla og hann stjórnar Árnesingakórnum í Reykjavík. „Við hlustum mest á klassíska tónlist og Skálmöld er eina þungarokkið sem ég hlusta á, mér finnst textarnir líka svo flottir og maður skilur hvað Björgvin söngvari er að segja sem mér finnst mjög gott. Vandamálið við tónlistina er að hún er bæði atvinna og áhugamál, lífið er tónlist og það er fátt annað sem kemst að. Ég vildi að ég væri gellan sem væri í fjallgöngum og matarklúbb- um, en ég er ekki þannig, en mér finnst gaman að hitta vini mína og fjölskyldu.“ Þóra Marteinsdóttir er 36 ára í dag Afmælisbarnið Þóra Marteinsdóttir. Reyna að sam- ræma jólahefðirnar Ljósmynd/Gunnar Freyr Steinsson Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Hafnarfirði Aníta Hlín Bergvinsdóttir fæddist 21. janúar 2014. Hún vó 4.196 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Ásgerður Margrét Þorsteinsdóttir og Bergvin Jónsson. Nýir borgarar Stokkhólmi Hilmar Ingi Sindrason fæddist 11. febrúar 2014 kl. 03.20. Hann vó 3.870 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Freya Magnús- dóttir Håkansson og Sindri Elfarsson. G ísli Hinrik fæddist í Hrís- ey 16.12. 1944 og ólst þar upp til 1959 er fjöl- skyldan flutti í Kópa- voginn: „Frá átta ára aldri vaknaði ég kl. 3 á morgnana til að fara með afa á handfæraveiðar. Ég dáðist oft að honum, sallarólegum, stjaka burt hákörlum sem voru of ágengir við bátinn. Einu sinni veiddum við tvær stórar hrefnur sem við bundum með miklum erfiðismunum hvora við sína síðu bátsins. Þá var verið að vinna að end- urbótum á hafnargarðinum í Hrísey svo við fengum krana til að hífa hrefnurnar í land.“ Gísli fór á millilandaskip 14 ára og kom því til Kaupmannahafnar áður en hann kom til Reykjavíkur. Hann var síðan í siglingum um árabil. Gísli stefndi á flugnám og lauk einkaflugmannsprófi 1964 en þá kom í ljós að hann var með sjóngalla og honum ráðlagt að leggja flug ekki fyrir sig. Hann hóf þá nám í radíósím- virkjun hjá Landssíma Íslands og lauk þar meistaraprófi. Gísli vann við mælingar fyrir sjón- varpsútsendingar víða um land, flutti með fjölskyldu sína að Gufuskálum á Snæfellsnesi 1969 og starfaði þar við Lóranstöðina í þrjú ár, flutti síðan í Hafnarfjörðinn 1972, varð tæknimað- ur og síðar tæknistjóri við Sjónvarpið og síðar deildarstjóri rekstrardeildar Stöðvar 2. Hefst handa í garðyrkjunni Þáttaskil urðu á starfsferli Gísla er hann festi kaup á Verslun Sölufélags garðyrkjumanna 1991. Hann stofnaði þá Gróðurvörur ehf.: „Ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á garðyrkju og ræktun en hún langamma, Anna Cat- harine Schiöth, hafði forgöngu um Lystigarðinn á Akureyri og veitti honum forstöðu.“ Gísli stofnaði svo Garðheima við Stekkjarbakka 2.12. 1999 en fyrir- tækið er hvort tveggja heildsala og smásala á ræktunarvörum og tækj- um til bænda, verslana og almenn- ings, auk plöntudeildar, gjafa- og heimilisvöru, gæludýravöru og blómabúðar. Nýjasta viðbótin er svo veitingastaðurinn Spíran bistró á efri hæð Garðheima. Gísli sat í stjórn JC Borg um skeið, sat í stjórn Starfsmannafélags Sjón- varpsins, hefur haft mikinn áhuga á skák og tefldi oft fyrir hönd Sjón- varpsins á skákmótum, hefur verið virkur félagi í Oddfellowstúku nr. 11, Þorgeiri, um árabil, er félagi í Garð- yrkjufélagi Íslands og Dalíu- klúbbnum. Einnig stundaði hann Gísli Hinrik Sigurðsson framkvæmdastjóri – 70 ára Á Ítalíu 2007 Gísli Hinrik og Jónína Sigríður með stórfjölskyldunni sem hefur nú stækkað töluvert frá árinu 2007. Úr sjónvarpi í garðyrkju Heima á verönd Gísli og Jónína hafa ferðast mikið í gegnum árin en hér láta þau fara vel um sig á tröppunum við veröndina heima í garðinum sínum. sem gleður Rennibekkir, standborvélar, bandsagir, hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar, röravalsar, legupressur, fjölklippur, sandblásturstæki og margt fleira. Sýningarvélar á staðnum og rekstrarvörur að auki - fyrir fagfólk í léttum iðnaði og lítil verkstæði IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.