Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 Jesúrímur eftir Tryggva Magnússon verða fluttar af Megasi og Sauðrek- unum ásamt Ágústu Evu Erlends- dóttur í salnum Gym & Tonic á Kex hosteli á föstudaginn, 19. desember, kl. 20.30. Er það í annað sinn sem rímurnar eru fluttar, skv. tilkynn- ingu en Megas flutti þær í Bústaða- kirkju 4. og 5. desember árið 2009 ásamt hljómsveit. Sauðrekana leiðir Hörður Bragason organisti og í hljómsveitinni eru m.a. hljóðfæra- leikarar úr Sinfóníuhljómsveit Ís- lands og hljómsveitunum Hr. Ingi R., Júpiters, U.X.I. og Tríói Sunnu Gunnlaugs. „Jesúrímur voru skrifaðar af Tryggva Magnússyni teiknara og myndlistarmanni og í þeim yrkir hann um lífshlaup Jesú Krists í háði og voru rímurnar mjög umdeildar þegar þær komu út. Jesúrímur er mjög langur vísnabálkur og inni- heldur í heild sinni yfir fimm hundr- uð vísur. Megas og Sauðrekarnir munu flytja þann hluta rímnanna sem fjallar um fæðingu frelsarans í bland við gömul og ný jólalög,“ segir í tilkynningu um tónleikana. Morgunblaðið/Einar Falur Jesúrímur Magnús Þór Jónsson, Megas, flytur Jesúrímur á föstudag- inn með Sauðrekunum og Ágústu Evu Erlendsdóttur söngkonu. Megas og Sauðrekarnir flytja Jesúrímur Tryggva Lokahluti þríleiksins um Hobbitann verður ekki frumsýndur hér á landi fyrr en um jólin en var tekinn til sýningar í 38 löndum um liðna helgi. Sýningar fóru vel af stað, miðar eru rifnir út og þá eru gagnrýnendur almennt frekar ánægðir með útkomuna. Þessi þriðja kvikmynd leikstjórans Peters Jacksons, sem byggist á sögu Tolkiens um ferð hobbitans Bilbós Baggins, dvergahóps og Gand- álfs inn í iður Fjallsins eina, er kennd við orr- ustu fimm herja. Gagnrýnandi breska dagblaðs- ins The Guardian er í skýjunum yfir útkomunni og segir kvikmyndina „gríðarlega spennandi“. Samkvæmt kvikmyndavefnum Rotten Tomatoes er meðaltal umsagna 70% en var 74% þegar mið- hluti þríleiksins var sýndur. Miðasalan gengur afar vel, miðar seldust fyrir 117 milljónir dala í þess- um 38 löndum fyrstu helgina. Til samanburðar seldust miðar fyrir 135 milljónir dala í 49 löndum þegar miðhluti verksins var tekinn til sýningar. Sala gekk vel á lokahluta Hobbitans Virtur Leikstjórinn Peter Jackson í sviðsljósinu. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalm@gmail.com Rökkurró er mætt á svæðið aftur með þriðju plötuna sína, Innra, eft- ir nokkurt hlé frá tónlistinni. „Við tókum okkur frí frá tónlistinni upp úr 2011 en þá voru hljómsveitar- meðlimir að fara hver í sína átt- ina, t.d. tveir til Japans og aðrir að sinna eigin hugarefnum,“ segir Árni Þór Árna- son, einn af upphaflegum með- limum hljómsveitarinnar. Síðasta plata Rökkurróar, Í ann- an heim, naut gífurlegra vinsælda og sat í 100 vikur á íslenska vin- sældalistanum. Árni segir nýju plötuna vera með örlítið aðrar áherslur enda hafi hljómsveitin bæði þroskast og þróast. „Við hitt- umst fyrir tveimur árum aftur og vildum strax gefa út plötu en að- stæður höfðu breyst og áherslur voru aðrar í tónlistinni hjá okkur. Ætli það megi ekki segja að það hafi orðið eðlileg þróun,“ segir Árni, sem bendir á að tónlistin komi úr öllum áttum innan hljóm- sveitarinnar. „Hér er allur gangur á því hvaða tónlist fólk hlustar á. Trommuleikarinn okkar hlustar sjaldan á annað en klassíska tónlist meðan aðrir hlusta mikið á pönk og þungarokk. Við höfum alltaf hlustað á mismunandi tónlist, sem gerir tónlistina okkar kannski áhuga- verða.“ Vilja nýja ímynd með Innra Rökkurró hefur iðulega verið sett í flokk með post-rock-hljómsveitum og segir Árni mikið hafa verið gert til að losna við þann „krúttstimpil“ á nýrri plötu. „Þótt persónuleikar okkar endurspegli ekki krúttstimp- ilinn fengum við hann á okkur og settum okkur því það markmið að losna við stimpilinn. Strax var því gengið út frá því að það væri ým- islegt sem við mættum ekki gera á þessari plötu en fórum svo í mót- sögn við sjálf okkur því þetta átti að vera platan sem við ætluðum að leyfa okkur það sem við vildum og kannski þorðum aldrei að gera.“ Nýja platan teygir sig inn í ýms- ar stefnur og vill Árni ekki lýsa henni öðurvísi en alternative rock til að ná utan um allt það sem leynist á plötunni. Hún er því kannski eins og konfektkassinn, ólíkir molar sem endurspegla smekk og áherslur hvers og eins. Neistinn sem þurfti! Brotthvarf Ingibjargar Turchi, sem stóð vaktina á bassanum, kom í kjölfar erfiðs tíma, skömmu eftir að hljómsveitin kom saman aftur. „Við vorum á erfiðum stað og Ingibjörg vildi fara að gera sína eigin hluti. Það kom jafnvel til tals að hætta þegar Skúli Agnarr bassaleikari mætti á eina æfingu með okkur og allt small saman á ný. Hann var neistinn sem þurfti til að kveikja bálið,“ segir Árni en allt virðist á uppleið aftur hjá Rökkurró, sem er á leið í þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu og heldur síðan í kjöl- farið útgáfutónleika í Gamla bíói í febrúar. Vilja losna við krúttið!  Þriggja vikna Evróputúr hjá Rökk- urró  Líf með nýjum bassaleikara Verslunin Tólf tónar er Árna og hljómsveitinni kær en þar segist Árni hafa alist upp á menntaskólaárunum. Tónleikar Rökkurró heldur í þriggja vikna tónleikaferðalag um Evrópu strax eftir jól en en þegar heim kemur verða útgáfutónleikar í Gamla bíói. TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is 12 16 16 -EMPIREJÓLAMYNDIN 2014 Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð POWERSÝNING KL. 10 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð L L L EXODUS Sýnd kl. 7 - 10 (P) BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 4:30 BIG HERO 6 3D Sýnd kl. 4:30 MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 7 - 10 MÖRGÆSIRNAR 2D Sýnd kl. 4:30 NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10 ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.