Morgunblaðið - 16.12.2014, Side 27

Morgunblaðið - 16.12.2014, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 Fjaðrafok við Tjörnina Sum dýr finna veðurbreytingar á sér og hvort sem það á við um fuglana á Reykjavíkurtjörn eða ekki er víst að í gær höguðu þeir sér eins og óveður væri í aðsigi. Ómar Hvað hugsar læknir sem hefur starfað í hartnær 40 ár þegar hann í fyrsta sinn á ævinni er í verkfalli? Hver hefði trúað því að fyrir honum ætti að liggja að sjá sterkt og öflugt heilbrigðiskerfi á Íslandi, sem áratugi hefur tekið að byggja upp, liðast í sundur? Hann hugsar svo sitt- hvað meira, sumt skilur hann en í öðru botnar hann ekki. Önuglyndi í verkfalli Í fyrsta lagi hugsar hann hve ön- ugt og illt það er að vera í verkfalli. Það gengur gegn hugsjón og heitum lækna að sinna ekki sjúklingum sín- um hvenær sem er og á hverju sem gengur. Þetta sýnir e.t.v. betur en margt annað hve læknum er mikið niðri fyrir þegar 98% þeirra telja nauðsyn- legt að halda verkfalli til streitu áfram og að harðara skuli það vera. Læknirinn í verkfalli hugsar að öll göngum við nauðug til þessa leiks, en mikið er í húfi, ekki einungis launakjör lækna, heldur og ekki síður framtíð mann- sæmandi heilbrigð- isþjónustu í þessu landi. Ef ungt fólk kemur ekki til að taka við af okkur sem eldri erum eða fer úr landi, er þetta búið hjá okkur, svo einfalt er það. Ætlum við þá að senda sjúklinga með kransæðastíflu, krabbamein eða lungnabólgu úr landi til að fá bót meina sinna? Eitt- hvað mun það kosta. Hætta í verkfalli Í öðru lagi hugsar læknir í verk- falli hve hættulegt ástandið er, og hve hratt það versnar, ekki síst ef til hvassara verkfalls kemur eftir ára- mót. Læknirinn sem hefur ásamt fá- einum kollegum unnið verkfallsdag- ana finnur vel hve þjónustan sem hann veitir er óörugg og ónóg. Vissu- lega reynum við að gera okkar besta, en það er einfaldlega ekki satt að við séum að veita trausta og örugga þjónustu. Þessar kringumstæður bjóða hættunni heim, bjóða upp á slys. Við vonum að svo verði ekki. Við dáumst reyndar að langlund- argeði sjúklinga okkar, sem allir eru kjósendur, þegar við segjum þeim að ekki sé unnt að sinna vanda þeirra núna, það verði að bíða vegna verk- falls. Ég veit ekki hvenær þessi þol- inmæði kjósenda verður á þrotum, sú stund nálgast. Fögur fyrirheit Í þriðja lagi hugsar læknir í verk- falli til síðustu alþingiskosninga. Heilbrigðisþjónustan átti svo sem ekki úr háum söðli að detta við hrun- ið að því er fjárframlög varðar, en þá fyrst kastaði tólfunum. Engu líkara var en að stjórnmálamenn hefðu tal- ið sjálfum sér trú um að heilbrigð- isþjónustan væri fremur léttvæg, skipti ekki miklu máli, svo hart var fram gengið í niðurskurði framlaga á meðan illa reknum bönkum og ýms- um fyrirtækjum var bjargað á þurrt. Þá fór heilbrigðisþjónustan fram af títtnefndri bjargbrún. Í aðdraganda alþingiskosninga var bent á að heil- brigðismál yrðu að vera kosninga- mál. Stjórnmálamenn í framboði töldu okkur trú um að svo væri, og fögur fyrirheit höfð í frammi. Við trúðum því að eyðimerkurgöngu væri lokið og margir kusu þá sem þannig töluðu. Því miður hefur það ekki gengið eftir, við höfum sjaldan eða aldrei verið jafn illa stödd, komin langt fram af bjarginu í frjálsu falli. Stjórnmálaleiðtogar stígi fram Kannski er nóg hugsað á einum degi. Hins vegar er tíminn á þrotum, læknar hóta ekki lengur upp- sögnum, þeir láta af þeim verða hver á fætur öðrum, jafnvel eftir áratuga starf. Slík ákvörðun er ekki tekin nema að vel ígrunduðu máli. Íslensk þjóð verður að huga að því núna hvers kyns heilbrigðisþjónustu hún vill, þjónustan stefnir því miður í að verða eins og hún er í löndum sem við viljum ekki bera okkur saman við. Við kjósum stjórnmálamenn yfir okkur til að sinna erfiðum málum af þessu tagi, því þetta er vissulega erf- itt. Nú þurfa raunverulegir leiðtogar í þeirra hópi að stíga fram. Annars mun illa fara. Eftir Sigurð Guð- mundsson »Ef ungt fólk kemur ekki til að taka við af okkur sem eldri erum eða fer úr landi, er þetta búið hjá okkur, svo ein- falt er það. Sigurður Guðmundsson Höfundur er læknir á Landspítalanum. Verkfallsdagar Sífellt er klifað á því að stjórnvöld séu að skerða fé til reksturs Ríkisútvarpsins. Aldr- ei fyrr í sögunni hefur meira fjármagni verði varið í rekstur stofn- unarinnar, eins og sjá má á meðfylgjandi grafi. Í greinargerð frumvarps til laga nr. 23/2013, um Rík- isútvarpið, segir „að rökin fyrir mörkun útvarpsgjalds til Ríkisútvarpsins lúti einkum að því að tryggja stöðugleika fjárveit- inga en jafnframt sé eðlilegt að binda þá mörkun ákveðnum skil- yrðum til að draga úr sveiflum til lækkunar og hækkunar“. Einnig kemur þar fram að mikilvægt sé talið að tryggja Ríkisútvarpinu fjárhagslegt sjálfstæði að því marki sem unnt er, óháð hinu pólitíska og efnahagslega valdi. Hér birtist glöggt vilji löggjafans til algjörs aðskilnaðar – að fjárveitingavaldið bindi upphæð útvarps- gjaldsins/„nefskatts- ins“ í lög og skili allri upphæðinni til RÚV, en hafi ekki áhrif á fjárhagslegt sjálfstæði stofnunarinnar með því að ráðstafa gjald- inu til annarra verk- efna. Með öðrum orð- um að fyrirbyggja freistnivanda stjórn- valda eins og gerðist í tíð síðustu ríkisstjórnar þar sem gjaldinu var ráðstafað í stórum stíl í önnur verkefni. Í fjárlagagerð ár- ið 2013, fyrir fjárlagaárið 2014, var sáttabreytingatillaga að í stað þess að gjaldið fyrir árið 2015 skyldi fara í 17.800 kr. í stað 16.400 kr. eins og gert var ráð fyrir sam- kvæmt lögunum. Stjórnvöld gáfu stjórnendum RÚV aukið svigrúm að trappa niður reksturinn og um leið að skila gjaldinu öllu og óskiptu til stofnunarinnar. Ná- kvæmlega ár er liðið frá þessari þinglegu ákvörðun – að RÚV ætti að miða rekstur sinn við að gjaldið yrði 17.800 kr. Þessu er framfylgt í fjárlagagerðinni nú. Í fjárlögum fyrir árið 2015 er gert ráð fyrir að heildarframlag til RÚV verði 3.498 milljónir og við 2. umræðu fjárlaga var lögð til hækkun um 181,9 millj- ónir til viðbótar. Ríkið er því að innheimta af skattgreiðendum 3.680 milljónir kr. og færa þær óskertar yfir til stofnunarinnar. Nemur það um 9% hækkun á fjár- framlögum ríkisins. Það eru dylgj- ur og ósannindi að halda því fram að stjórnarmeirihlutinn sé að skera RÚV niður eins og hrópað er í þinghúsinu, á torgum og í fjöl- miðlum. Ég vonast eftir hófstilltri umræðu, umræðu sem byggð er á staðreyndum, sannleika og lagafyr- irmælum en ekki tilfinningasemi, blekkingum og ósannindum. Eftir Vigdísi Hauksdóttur » Í fjárlagagerð síð- asta árs var ákveðið að útvarpsgjaldið fyrir árið 2015 skyldi vera 17.800 kr. í stað 16.400 kr. eins og gert var ráð fyrir í lögum Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og formaður fjárlaganefndar Alþingis. Sannleikurinn um RÚV Ríkisframlag til RÚV frá 2005 til 2015 M ill jó ni rk ró na 2005 20112006 20122007 20132008 20142009 20152010 4.000 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 Heimild: Fjármálaráðuneytið (byggt á töflu sem birtist í Morgunblaðinu 5. desember 2014, e. Baldur Arnarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.