Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 41
borðtennis gegnum árin og vann oft til verðlauna í þeirri grein. Gísli og fjölskylda hans eru mikið fyrir ferðalög. Hann minnist enn sex vikna ferðar um Evrópu á Toyota sta- tion fjölskyldubílnum með hústjald, eiginkonu og fjögur börn árið 1981. Eins ævintýraferðar til Toscana á Ítalíu með stórfjölskyldunni. Þau hjónin hafa farið í skemmtisiglingar víða um heim og undanfarin ár hafa þau farið árlega til Kanarí í svartasta skammdeginu. Gísla finnst þó mest um vert að börnin fjögur hafa öll smitast af garð- yrkjuáhuganum og eru smám saman að taka við fyrirtækinu. Fjölskylda Eiginkona Gísla er Jónína Sigríður Lárusdóttir, f. 5.5. 1947, markaðs- stjóri. Foreldrar hennar voru Lárus Jónsson, f. 25.3. 1896, d. 15.4. 1975, organisti, og Karólína Kristín Björns- dóttir, f. 22.11. 1919, d. 29.3. 1999, húsfreyja. Börn Gísla og Jónínu Sigríðar eru Sigurður Björn, f. 1.5. 1966, verkfræð- ingur í Hafnarfirði, en kona hans er Sæunn Þórisdóttir framkvæmdastjóri og eru börn þeirra Sunna Jónína, f. 1985, Tinna Þuríður f. 1990, Ester Jó- hanna, f. 1994 og Salome Lilja, f. 1996; Kristín Helga, f. 19.7. 1969, aðstoðar- framkvæmdastjóri í Kópavogi, en maður hennar er Sigurður Einar Þor- steinsson sölustjóri og eru börn þeirra Tómas Árni, f. 1989, Gísli Snær, f. 1997, og Sigríður Lilja, f. 2003; Olga Björney, f. 19.7. 1970, innkaupastjóri í Reykjavík, en maður hennar er Davíð Gunnarsson verkfræðingur og eru börn þeirra Gunnar Ingi, f. 1999, Hin- rik Örn, f. 2003, og Bjarki Brynjólfur, f. 2007; Jóna Björk, f. 17.10. 1978, markaðsstjóri í Kópavogi en maður hennar er Jens Sigurðsson verkefna- stjóri og eru börn þeirra Jósef Ýmir, f. 2005, Valdimar Jaki, f. 2009, og Matt- hías Jörvi, f. 2011. Langafabörnin eru Una Björk og Stefán Ísak. Systkini Gísla eru Rafn Halldór, f. 2.10. 1938, bifvélavirki á Akureyri; Sigurjóna, f. 14.12. 1947, læknarit- ari í Reykjavík; Ásta Þóra, f. 15.6. 1957, bankastarfsmaður í Reykjavík. Foreldrar Gísla voru Helga Guðrún Karlsdóttir Schiöth, f. 1.8. 1918, d. 21.11. 2012, húsfreyja í Kópavogi, áð- ur í Hrísey, og Sigurður Björn Brynj- ólfsson, f. 9.5. 1918, d. 9.12. 2002, dreifingarstjóri Tímans. Í tilefni afmælisins verða Gísli og fjölskylda á efri hæð Garðheima, Spír- unni, og taka þar á móti gestum milli kl. 18.00 og 20.00 í dag, 16.12. Úr frændgarði Gísla Hinriks Sigurðssonar Gísli Hinrik Sigurðsson Anna Catherine Schiöth vann að stofnun og rekstri Lystigarðsins á Akureyri Peter Frederik Henrik Schiöth athafnam. á Akureyri Carl Friðrik Schiöth kaupm. á Akureyri og síðar í Hrísey Jónína Petrína Valdimarsdóttir Schiöth gestgjafi í Ásgarði í Hrísey Helga Guðrún Karlsdóttir Schiöth húsfr. í Kópavogi Guðrún Þorkelsdóttir húsfr. á Kolgrímastöðum Valdimar Árnason b. á Kolgrímastöðum í Eyjafirði Axel Schiöth bakarameistari á Akureyri Anna Schiöth húsfr. í Rvík Agnar Kl. Jónsson sendiherra Oddur Carl Thorarensen apótekari á Akureyri Stefán Thorarensen stofnandi Laugavegsapóteks og Efnagerðar Rvíkur Oddur Carl S. Thorarensen forstj. Efnagerðar Rvíkur og apótekari í Laugavegsapóteki Oddur Carl Thorarensen apótekari á Akureyri Aage Schiöth lyfsali og konsúll á Siglufirði Svanhildur Jörundsdóttir húsfr. í Hrísey Hallfríður Sigvaldadóttir húsfr. á Hillum Sveinbjörn Björnsson b. á Stærri-Hillum á Árskógsströnd Sigurveig Guðrún Sveinbjarnardóttir húsfr. í Hrísey Brynjólfur Jóhannesson útgerðarm. í Hrísey Sigurður Björn Brynjólfsson dreifingarstj. Tímans Jórunn Jóhannsdóttir húsfr. í Hrísey Jóhannes Jörundsson athafnam. og kaupm. í Hrísey, sonur Hákarla-Jörundar Jónssonar útvegsb. í Hrísey Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra Gunnar Pálsson skrifstofustj. í Rvík Hreinn Pálsson óperusöngvari og forstjóri BP Eva Pálsdóttir Kröyer húsfr. Haraldur Kröyer sendiherra Gestur Pálsson lögfr. og leikari í Rvík Anna Agnarsdóttir prófessor í sagnfræði við HÍ Bjarni Agnarsson læknir Alma Clara Margrethe Thorarensen húsfr. á Akureyri ÍSLENDINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 Eyþór Helgi fæddist á Bústöð-um í Austurdal í Skagafirði16.12. 1906. Foreldrar hans voru Tómas Pálsson, bóndi og odd- viti þar, og k.h., Þórey Sveinsdóttir húsfreyja. Eyþór var af Kjarnaætt í Eyja- firði og Skeggstaðaætt í Húnavatns- sýslu. Eyþór var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Laufey Sveinsdóttir frá Norðfirði og eignuðust þau fjögur börn, en Eyþór og Laufey skildu. Síðari kona hans var Hildur Eiðs- dóttir frá Sæbóli í Grýtubakka- hreppi og eignuðust þau tvo syni. Eyþór var í hópi þeirra íslensku iðnrekenda af aldamótakynslóðinni sem hófust til metorða af eigin rammleik. Hann stundaði nám í húsasmíði við Iðnskólann á Akur- eyri, lauk þaðan sveinsprófi 1928 og öðlaðist síðar meistararéttindi. Að námi loknu hóf Eyþór rekstur trésmíðaverkstæðis og sá jafnframt um líkkistusmíðar og útfarir á Akur- eyri í 15 ár. Hann starfrækti vefn- aðarvöruverslun á Akureyri 1941-61 og saumastofu um nokkurra ára skeið frá 1942. Það var þó fyrst og síðast Súkkulaðiverksmiðjan Linda, sem hann stofnaði 1948, sem lagði grunninn að farsælum iðnrekstri hans. Hann var yfirleitt kenndur við þá verksmiðju enda veitti hann henni forstöðu til dauðadags og þar störfuðu margir tugir starfsmanna. Með Lindu náði Eyþór sterkri markaðsstöðu á íslenskum sælgæt- ismarkaði, ekki síður á höfuðborg- arsvæðinu en norðan heiða. Eyþór stofnsetti Lionsklúbba á Akureyri og Dalvík og var fyrsti for- maður Lionsklúbbs Akureyrar. Hann var hvatamaður að stofnun Hjarta- og æðaverndarfélags Akur- eyrar 1964 og gjaldkeri þess um ára- bil, stjórnarformaður Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri 1962-70 og stjórnarformaður Akurs hf. sem rak Sjálfstæðishúsið á Akureyri. Eyþór var ráðdeildarsamur og út- sjónarsamur iðnrekandi og fjár- málamaður, vel metinn stjórnandi, næmur og stundum örgeðja en hjartahlýr og umhyggjusamur. Eyþór lést 29.11. 1988. Merkir Íslendingar Eyþór H. Tómasson 95 ára Ólöf Guðjónsdóttir 90 ára Snorri Jónasson 85 ára Anna Hjálmarsdóttir 80 ára Guðmundur Guðjónsson Sigrún Ásdís Ragnarsdóttir 75 ára Bragi Ingiberg Ólafsson Sigrún Brynjólfsdóttir 70 ára Barði Ólafsson Björn Jónsson Hlíf Pálsdóttir Ingibjörg K. Geirmundsdóttir Ingibjörg Símonardóttir Málfríður Vagnsdóttir Örn Jónsson 60 ára Anna Fossberg Kjartansdóttir Börkur Helgi Sigurðsson Dadda Guðrún Ingvadóttir Drífa Harðardóttir Garðar Guðmundsson Hilmar Jónsson Hugrún Valgarðsdóttir Jón Þorláksson Ólafur Magnússon Páll Melsted Pétur Björgvin Stefánsson Rakel Móna Bjarnadóttir Steinn Jóhann Jónsson Svava Benediktsdóttir 50 ára Alfreð Baldursson Anna Sjöfn Jónasdóttir Ásthildur Kristjánsdóttir Björn Zoéga Björnsson Guðrún Halla Benjamínsdóttir Guðrún Helga Þórisdóttir Halldór Þorvaldsson Hallfríður H. Hafsteinsdóttir Heiðar Friðjónsson Hörður Harðarson Jón Rúnar Jónsson Ólafía Guðrún Lóa Bragadóttir Sólborg Erla Ingadóttir Þóra Björg Guðjónsdóttir 40 ára Björn Jakob Björnsson Björn Óttarr Jónsson Harpa Björg Sævarsdóttir Hermóður Jón Hilmarsson Ragnar Jónasson Róbert Ragnar Skarphéðinsson Winai Bunmasen 30 ára Agnieszka Malgorzata Klinkosz Alda Kristinsdóttir Andrea Stefania Aucatoma Coloma Böðvar Valgeirsson Einar Ólafsson Elín Mjöll Lárusdóttir Elísabet Björnsdóttir Elísabet Sigrún Valsdóttir Lukasz Wozniak Til hamingju með daginn 30 ára Lára er búsett í Reykjavík, lauk BSc-prófi í viðskiptafræði frá HA og er nú sérfræðingur í vísi- töludeild á Hagstofu Ís- lands. Maki: Sigurður Ragnar Helgason, f. 1984, bif- reiðasmiður. Foreldrar: Jónas Pétur Bjarnason, f. 1961, verka- maður, og Brigitte Bjarna- son, f. 1959, bókavörður. Þau eru búsett í Hafnar- firði. Lára Guðlaug Jónasdóttir 40 ára Sævar ólst upp á Akureyri, býr í Kópavogi, lauk prófi í hárskurði og er hársnyrtir í Garðabæ. Dætur: Aníta Eir, f. 1997, og Árný Dögg, f. 2004. Systkini: Heiðdís, f. 1966; Hjördís, f. 1967; Jónas, f. 1971, og Jóhann- es Karl, f. 1979. Foreldrar: Sigursteinn Kristinsson, f. 1949, vél- stjóri, og Elsa Jónasdóttir, f. 1948, húsfreyja. Þau eru búsett á Akureyri. Sævar Jóhann Sigursteinsson 30 ára Hjalti ólst upp í Reykjavík, er þar búsett- ur, lauk stúdentsprófi frá FG og er nú flugfjar- skiptamaður hjá Isavia. Systur: Steinunn María Sigurðardóttir, f. 1975, flugfreyja og Hildur Sig- urðardóttir, f. 1977, graf- ískur hönnuður, Foreldrar: Sigurður Björgvinsson, f. 1947, tannlæknir, og Sigurbjörg Björgvinsdóttir, f. 1951, flugfreyja. Hjalti Sigurðarson Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.