Morgunblaðið - 16.12.2014, Page 14

Morgunblaðið - 16.12.2014, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 hemlun, minnka slit á dekkjum og draga úr eldsneytiseiðslu þarf fjöðrunarbúnaður að vera rétt hjólastilltur Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða. 564 5520 bilajoa.is Þarf ekki að hjólastilla bílinn þinn Opið: mánud. – fimmtud. 8-17 föstudögum 8-15 með allt fyrir bílinn Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is Til að hámarka jafnvægi bílsins við Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Um 20% íbúa höfuðborgarsvæðisins hafa gott aðgengi að almennings- samgöngum miðað við strætis- vagnakerfið í dag. Væri komið á fót léttlestarkerfi að gefnum ákveðnum forsendum myndi það hlutfall hækka upp í 34% og væri hrað- vagnakerfi til staðar myndi hlutfallið hækka upp í 42%. Þetta kemur fram í greinargerð verkfræðistofunnar Mannvits, sem fylgir tillögu að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæð- isins, sem auglýst hefur verið. 32-48 milljarða hágæðakerfi Mannvit fjallaði m.a. um næstu skref í þróun samgöngukerfa og há- gæðakerfis almenningssamgangna (Borgarlínu), sem stefnt er að til ársins 2040. Í svæðisskipulaginu er út frá því gengið að íbúum á höfuð- borgarsvæðinu muni fjölga um 75 þúsund á næstu 25 árum. Tekið er fram að um frummat sé að ræða en í skýrslu Mannvits segir að í mati á samgöngusviðsmyndum fyrir höfuðborgarsvæðið 2040 var gerð gróf áætlun, byggð á erlendum reynslutölum, um stofnkostnað fyrir annars vegar hraðvagnakerfi og hins vegar léttlest. ,,Á þessu stigi eru þessar reynslu- tölur notaðar hér til að gefa hug- mynd um hve umfangsmikið há- gæðakerfi er hægt að byggja fyrir á bilinu 32-48 milljarða kr., hversu marga íbúa slíkt kerfi gæti þjónust- að og hvaða þýðingu það gæti haft fyrir uppbyggingu á svæðinu. Þessi kostnaðarmörk voru valin með hlið- sjón af áætluðum stofnkostnaði Sundabrautar, stærstu samgöngu- framkvæmdar sem stefnt er að á höfuðborgarsvæðinu (uppreiknaður kostnaður á verðlagi 2013),“ segir þar. Fjallað er m.a. um möguleika og kosti hraðvagna- og léttlestarkerfa. ,,Hraðvagnakerfi býður upp á mögu- leika á lengra kerfi en léttlestarkerfi þar sem uppbygging þess er umtals- vert ódýrari,“ segir í greinargerð- inni. Settar eru fram hugmyndir um mögulegan kostnað miðað við gefnar forsendur um hvaða umfang kerfis hægt er að fá fyrir tiltekna upphæð. Dæmi eru sýnd um hraðvagna- kerfi m.v. fjölda kílómetra fyrir ákveðinn stofnkostnað, þar sem gert er ráð fyrir að 17 km langt kerfi myndi kosta 32 milljarða og gæti sá áfangi verið frá Hafnarfirði upp í Grafarvog. Þá væri t.d. hægt að reka fjórar mismunandi hraðvagnalínur á höfuðborgarsvæðinu. Léttlestir eru dýrari ,,Léttlestarkerfi eru dýrari kerfi en hraðvagnakerfi og munar mestu um kostnað við teina og rafmagns- lagnir og leiðslur, sem ekki fylgja hraðvagnakerfi. Þrátt fyrir það eru léttlestarkerfi oft valin fram yfir hraðvagnakerfi og helgast það að mestu leyti af því að ímynd léttlesta er almennt talin sterkari og því að vagnar á teinum virðast laða fleira fólk að sér heldur en vagnar á gúmmíhjólum,“ segir í skýrslunni. Dæmi um stofnkostnað slíks kerf- is sem næði 35 km gæti numið 140 milljörðum kr. Í umfjöllun um aðgengi almenn- ings að almenningssamgöngum mið- að við núverandi íbúafjölda og þjón- ustu strætisvagna er sett upp dæmi um 12 km léttlestarkerfi með hátt þjónustustig (fjölda stoppistöðva) á öllu höfuðborgarsvæðinu, sem leysi ákveðinn hluta strætisvagnakerf- isins af hólmi. Þá myndu tæplega 30 þúsund manns búa innan göngufær- is frá léttlestarstöðvum. ,,Ef léttlestarkerfi auk strætis- vagnakerfis væri til staðar væri þjónustustig almenningssamgangna mun betra en í dag, um 34% íbúa væru með gott aðgengi miðað við 20% áður,“ segir í skýrslunni. Jafn- framt kemur þar fram að ef léttlest- arkerfi eins og í þessu dæmi væri til staðar auk strætisvagnakerfis væri um 71% alls verslunar- og skrif- stofuhúsnæðis með gott eða miðl- ungs aðgengi að almennings- samgöngum. 50 þúsund innan göngufæris Hraðvagnakerfi kemur hins vegar enn betur út en léttvagnarnir í þeim dæmum sem sett eru upp í skýrslu Mannvits. Ef það yrði byggt upp myndu rúmlega 50 þús. manns búa innan göngufæris frá hraðvagna- stöðvum. ,,Ef hraðvagnakerfi auk strætis- vagnakerfis væri til staðar væri þjónustustig almenningssamganga mun betra en í dag, um 42% íbúa væru með gott aðgengi miðað við 20% áður,“ segir þar. Alls væru 72% verslunar- og skrif- stofuhúsnæðis með gott eða miðl- ungs aðgengi. Samandregið segir að aukningin í aðgengi íbúa að léttlestar- og hrað- vagnastöðvum yrði veruleg eins og íbúadreifingin er í dag og ef reiknað er síðan með heildarfjölgun íbúa um 75 þúsund til ársins 2040 þá eykst fjöldi íbúa með beint aðgengi að léttlestarstöðvum úr 29.700 íbúum upp í 42.600 íbúa á meðan fjöldi íbúa með aðgengi beint að hraðvagna- stöðvum myndi aukast úr 50.700 íbúum í 74.200 íbúa, að því er fram kemur í greinargerðinni. ,,Þrátt fyrir að nokkrum einföld- unum hafi verið beitt í þessu verk- efni er engu að síður ljóst að upp- bygging hágæðakerfis myndi hafa veruleg áhrif á þjónustustig og að- gengi að góðum almennings- samgöngum á höfuðborgarsvæðinu í dag,“ segir m.a. í samantekt verk- fræðistofunnar, sem er hluti af for- sendum svæðisskipulagstillög- unnar. Hraðvagnakerfi virðist henta best  Uppbygging léttlestar- eða hraðvagnakerfis á höfuðborgarsvæðinu á næstu 25 árum myndi hafa mikil áhrif á aðgengi að góðum almenningssamgöngum, skv. tillögu um svæðisskipulag til 2040 „Í stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040 er lögð sérstök áhersla á tutt- ugu mínútna hverfi,“ segir í nýju tillögunni að svæðisskipulagi höf- uðborgarsvæðisins til 2040, sem auglýst hefur verið til kynningar. Þar er það markmið sett að íbú- ar eigi ekki lengra að sækja í kjarna en sem nemur tuttugu mín- útna göngu frá heimili og að svo- nefnd nærþjónusta dreifist víðar svo íbúar eigi kost á nauðsynleg- ustu þjónustu eins og leikskóla, grunnskóla, íþrótta- og tómstunda- starfsemi og matvöruverslun innan 5-10 mínútna göngufjarlægðar. Innan 20 mínútna hverfisins á að verða gott framboð af fjölbreyttum húsakosti og öll helsta þjónusta. Í tillögunni segir að þéttbýlið á höfuðborgarsvæðinu sé nú orðið nær samfellt frá Hafnarfirði í suðri til Mosfellsbæjar í norðri og spáð er yfir 70 þúsund íbúa fjölgun til 2040. Tekið er fram að svæðisskipulag sé rétthærra en aðalskipulagsáætl- anir og skulu sveitarfélög höfuð- borgarsvæðisins hafa innleitt stefnu Höfuðborgarsvæðisins 2040 í aðalskipulagsáætlanir innan 18 mánaða frá samþykki þess. Morgunblaðið/Kristinn Áætlanir Innan 20 mínútna hverfisins á að vera gott framboð af fjöl- breyttum húsakosti og öll helsta þjónusta skv. tillögunni að svæðisskipulagi. „20 mínútna hverfi“  Markmið um nærþjónustu til 25 ára Stefnt er að því að öll uppbygg- ing og þróun þéttbýlis á höfuð- borgarsvæðinu verði til ársins 2040 almennt komið fyrir innan núverandi þéttbýlis eða í þéttu og samfelldu framhaldi af byggð sem fyrir er, eftir því sem staðhættir leyfa. Meginþunga vaxtar verður beint á miðkjarna og önnur „samgöngumiðuð“ þróunarsvæði og á hlutfall íbúðabyggðar á þeim svæðum að vaxa úr 30% í 66% á næstu 25 árum. Þetta kemur fram í til- lögunni að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Svæðisskipulagið er skipu- lagsáætlun 7 sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Frestur til að gera athugasemdir við tillög- una rennur út 2. febrúar. Vexti beint að miðkjarna SVÆÐISSKIPULAGHraðvagnakerfi Heimild: Greinargerð Verkfræðistofunnar Mannvit Næstu skref í samgönguverkefnum Fylgirit tillögu að nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins ~35 KM möguleg borgarlína f. ~60 milljarða ~17 KM kerfi fyrir ~30 milljarða ~22 KM kerfi fyrir ~40 milljarða ~25 KM kerfi fyrir ~50 milljarða Dæmi um umfang hraðvagnakerfis m.v. ákveðinn stofnkostnað á frumstigi greiningarvinnu. Þessar hugleiðingar um legu borgarlínu hafa ekki fengið rýni hjá sveitarfélögum eða Strætó bs., þeim er einungis ætlað að hjálpa til við að sjá möguleika á legu hennar. Þörf er á mun ítarlegri greiningu á bestu legu og áfangaskiptingu kerfisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.