Morgunblaðið - 16.12.2014, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014
Skipholt 50c • 105 Reykjavík
582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Sendum hvert
á land sem er
König USB rafhlaða
7000 mAh
Verð 6.990Verð 6.990
TILBOÐ 109.900 Verð 24.900
2 TB Verð 19.900
1 TB Verð 12.900
500 GB Verð 8.900
Verð frá 16.990 TILBOÐ 17.091
Acer 15,6 tommu V5-552 fartölva
Logitech K400
þráðlaust lyklaborð
Genius teikniborð
ICYBOX USB 3.0 fjöltengi
með 7 tengjum
Samsung Xpress M2022W
WiFi prentari
Komdu til okkar í kaffi
og prófaðu Windows 10
Harðir pakkar
undir jólatréð þitt
Genius þráðlaus
Bluetooth heyrnartól
GX-Gaming 2.1 hátalarakerfi
Toshiba USB 3.0
vasaflakkarar
Asus skjáir
í miklu úrvali
Verð 6.990
Innbyggð mús. Fullkomið
við sjónvarpstölvuna
Verð 9.500
Sterkbyggt og
engin uppsetning.
Hleðslutengi fyrir
spjaldtölvu.
Taktu aukahleðslu
með þér hvert
sem er,
styður
snjallsíma
og spjaldtölvur
Úrval vandaðra
hátalarakerfa fyrir
tölvur, sjónvörp,
snjallsíma
og fleira.
Komdu og
prófaðu í verslunÁður 119.900 kr.
Áður 18.990 kr.
Verð frá 5.990
• Örþunn og fislétt
fartölva
• Harður diskur:
1 TB SATA3 16MB
• Örgjörvi: AMD Quad
Core 3,1 GHz Turbo
• Vinnsluminni:
8 GB DDR3
1600MHz
• Skjákjarni:
ATI HD8550G
með 256 Radeon Cores
• Rafhlaða: Allt að 5 klst ending
• Annað: Bluetooth, USB 3.0, 720P
myndavél, kortalesari
• Einnig fáanleg í svörtum lit
Einfaldur, fullkominn
og hagkvæmur laser-
prentari á tilboði
Einföld, ódýr og skemmtileg leið
til að virkja
listræna
hæfileika.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fara þarf tæplega fjögur ár aftur í
tímann til þess að finna dæmi um
jafnt verð á bensíni og nú er raunin.
Dagana 7. til 9. febrúar 2011 var
ríkjandi lítraverð
á bensínstöðvum
207,80 kr. Fram-
reiknað til núvirð-
is samkvæmt vísi-
tölu neysluverðs
gera það sléttar
238 kr. Í gær-
morgun kostaði
lítrinn 212,50 kr.
en verðið hefur
lækkað nokkuð
skart að undanförnu.
„Miðað við stöðuna á heimsmarkaði
þá er enn svigrúm til frekari lækk-
unar á eldsneyti hér á landi,“ segir
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda.
Lækkun í Rotterdam
Í júní síðastliðnum kostaði tonnið
af bensíni á Rotterdammarkaði 1.044
dollara, en er nú komið niður í 578
dali. Á sama tíma hefur íslenska krón-
an gefið eftir gagnvart Bandaríkja-
dal. Meðalverðið á bensíni í júní var
247 krónur á lítra. FÍB heldur utan
um daglega þróun á heimsmarkaðs-
verði og söluverði eldsneytis hér á
landi. Álagning og flutningskostnaður
olíufélaganna á Íslandi, sem öll selja
bensínið á svipuðu verði, var um 37
krónur á hvern lítra fyrstu níu mánuði
ársins. Það sem af er desember er
meðalálagningin yfir 44 krónur á lítra
sem er 17% hækkun frá meðaltali
álagningar fram á haust.
Fylgja ekki heimsmarkaðsverði
„Þarna eru olíufélögin einfaldlega
að ganga á lagið með því að fylgja ekki
heimsmarkaðsverðinu,“ segir Runólf-
ur. Hann telur að sú lækkun á verði
sem hefur þegar orðið ætti að skila sér
betur út í almennt vöruverð í landinu.
Kostnaður vegna flutninga, bæði til
sjós og lands, sé stór breyta í allri
verslun í landinu. Með eðlilegu smiti
ætti það þá að koma fram í lækkun
vöruverðs. Það hafi hins vegar ekki
gerst, hver sem svo skýringin væri.
Í umræðum á Alþingi í síðustu viku
bar bensínverð á góma. Þar kom fram
í máli Þorsteins Sæmundssonar,
þingmanns Framsóknarflokks, að svo
virtist sem olíufélögin væru nú með
um það bil 6 kr. hærri álagningu á
lítra en í janúar í fyrra. Hver króna í
eldsneytisverði á Íslandi kosti ís-
lenskar fjölskyldur 360 millj. kr., svo
krónurnar sex þýða í heild tvo millj-
arða kr. á ári.
Bensínverð ekki verið
lægra í nær fjögur ár
Álagning ekki lækkað Olíufélögin sögð ganga á lagið
Morgunblaðið/Þórður
Áfylling Bensínverð hefur lækkað að undanförnu, en margir telja svigrúm
til frekari lækkana með tilliti til gengisþróunar og heimsmarkaðsverðs.
Runólfur
Ólafsson
Eldsneytiskostnaður er stór út-
gjaldaliður hjá mörgum fyrir-
tækjum. Af því tilefni kannaði
Morgunblaðið hvort svigrúm
væri til að lækka verð á ýmissi
þjónustu.
Ingi Þór Hermannsson, for-
stöðumaður Landflutninga hjá
Samskipum, segir olíugjald
leggjast ofan á almennt flutn-
ingsgjald. „Samningar okkar við
viðskiptavini gera ráð fyrir að
greitt sé olíugjald. Þannig að
tekjur okkar og kostnaður sveifl-
ast í takt með breyttu olíuverði.
Þetta er tvískipt. Gjaldskráin
sem slík tekur ekki breytingum
heldur er sérstakt olíugjald ofan
á gjaldskrá sem sveiflast. Því er
heildarkostnaðurinn á flutning-
unum að lækka.“
– Hvaða áhrif hefur þetta á
ykkar viðskiptavini?
„Það veltur á því hvert er ver-
ið að flytja og hversu mikið.
Álagið er ákveðin prósenta ofan
á gjaldskrá. Það var tæp 17% í
upphafi árs en er komið niður í
tæplega 14% í byrjun desember.
Við miðum álagið við olíuverð
eins og það stendur um mán-
aðamót hverju sinni. Miðað við
þær verðbreytingar sem hafa
orðið í desember má búast við
frekari lækkunum,“ segir hann.
Spurður hvort svigrúm sé að
skapast til þess að lækka matar-
verð segir Kristinn Skúlason,
framkvæmdastjóri Krónunnar, að
fyrirtæki hans hafi hvorki fundið
fyrir lægra olíuverði í verði á að-
föngum né í
kostnaði við
dreifingu.
Hann segir að
til tíðinda geti
dregið í þeim
efnum um ára-
mótin og
nefnir einnig
lækkun syk-
urskatts og
hækkun mat-
arskatts.
Finnur Árnason, forstjóri
Haga, segir aðspurður að mikil
lækkun olíuverðs skapi svigrúm
til að lækka vöruverð. Hversu
mikið sé erfitt að segja. „Flutn-
ingskostnaður er hluti af vöru-
verðinu. Það er ekki spurning.
Við erum með töluverðan rekst-
ur úti á landi og erum svo með
umfangsmikla dreifingu sjálfir
innanbæjar,“ segir Finnur og
bendir á að á móti komi að nýtt
útblástursgjald á olíu leggist á
skipafélögin um áramótin. Telur
hann það gjald munu vega
þyngra í flutningskostnaði Haga
en lækkandi olíuverð. Vísar hann
til þess að 1. janúar nk. taka nýj-
ar reglur um brennisteins-
útblástur skipa gildi. Snúa þær
að því að draga úr brennisteins-
magni í brennsluolíu. Leyfilegt
innihald brennisteins í brennslu-
olíu er nú 1% en verður 0,1%.
Eimskip áætlaði 20.11. sl. að
aukakostnaður á 40 feta gám
yrði 124 dalir, um 15.400 krónur.
baldura@mbl.is
Ódýrari olía lækkar kostnað
við flutninga landleiðina
SAMSKIP LÆKKAR OLÍUGJALD
Ingi Þór
Hermannsson