Morgunblaðið - 16.12.2014, Síða 20

Morgunblaðið - 16.12.2014, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 MIKIÐ ÚRVAL AF SMUREFNUM OG OLÍUM FYRIR ALLAN IÐNAÐ. KÍKTU Í KEMI OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! SMUROLÍUR OG SMUREFNI Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000 Opið: Mánudag - immtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. FRÉTTASKÝRING Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Allur gangur er á því hvort sveitar- félög hafa sett sér eigin reglur um kirkjuheimsóknir á skólatíma og samkvæmt upplýsingum frá nokkr- um sveitarfélögum er lítið um að for- eldrar geri athugasemdir við þær. Heimili og skóla, sem eru lands- samtök foreldra, berast fá erindi sem þetta varða. Kirkjuferðir á skólatíma hafa verið talsvert í umræðunni að undanförnu eftir að Líf Magneudóttir, formaður mannréttindaráðs Reykjavíkur- borgar, gagnrýndi slíkar heimsóknir og sagði „algerlega ólíðandi“ að skól- ar hefðu milligöngu um trúarinnræt- ingu barna. Þessu er Halldór Hall- dórsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, ósammála og hyggst taka málið upp á borgar- stjórnarfundi í dag. „Við teljum ekki að heimsóknir sem þessar stangist á við reglur Mannréttindaráðs um samskipti skóla og trúfélaga. Ég veit ekki betur en að það sé ákvæði í reglum Mannréttindaráðs um að fornar hefðir beri að virða. Sam- kvæmt því hljóta jólahefðir í skólum að vera leyfilegar,“ segir Halldór. Kærkomin kirkjuferð Að mati Halldórs er full þörf á að ræða þessi mál. „Það á ekki að tak- marka frelsi allra barna þótt for- eldrar sumra barna ákveði að þau eigi ekki að fara í kirkju.“ Er ekki hægt að virða þetta frelsi barnanna á ann- an hátt en að þau fari í kirkju á skóla- tíma? „Það er mikilvægt að foreldr- arnir og börnin sjálf hafi eitthvað um þetta að segja. Þetta er val og for- eldrar geta látið vita ef þeir vilja þetta ekki.“ Halldór segist hafa rætt við fjölda foreldra grunnskólabarna í Reykja- vík og flestir séu á því að kirkjuferð sé kærkomin í jólaundirbúningnum. Spurður um hvort hann hyggist leggja fram þá tillögu í umræðunum í dag að skólabörn sæki önnur trúfélög heim og kynnist þeim segist Halldór munu gera það. „Já, mér finnst það sjálfsagt, við búum við trúfrelsi.“ Til að gæta þess að halda reglur um samskipti skóla og trúfélaga leggja sumir skólar kapp á að kirkju- heimsóknin sé eins laus við trúarboð- skap og mögulegt er. T.d. sendi skóli í Reykjavík nýverið tölvupóst til for- eldra þar sem áréttað var að prest- urinn sem tæki á móti börnum í við- komandi skóla hefði verið beðinn um að tala ekki um trú. Haft var sam- band við nokkur af stærstu sveitar- félögunum á landinu og í ljós kom að afar mismunandi er hvernig staðið er að heimsóknum sem þessum. „Þetta er hugsað sem sögustund,“ segir Sig- urlás Þorleifsson, skólastjóri Grunn- skólans í Vestmannaeyjum, um kirkjuheimsóknir nemenda skólans og segir engar athugasemdir hafi borist frá foreldrum. Tveir af fimm grunnskólum í Garðabæ fara í kirkju- ferð á aðventunni. Í öðrum þessara skóla er farið í kirkju þar sem æsku- lýðsfulltrúi tekur á móti börnunum og boðið er upp á bókasafnsheimsókn í sömu ferð fyrir börnin sem fara ekki í kirkjuna. „Við leggjum áherslu á að þetta séu tveir jafngildir valkostir,“ segir Katrín Friðriksdóttir, deild- arstjóri skóladeildar Garðabæjar, sem segir að nú sé rætt um að bærinn setji sér eigin reglur um slíkar heim- sóknir. Hjá skóladeild Akureyrar fengust þær upplýsingar að kirkjuheimsóknir á aðventu væru ákvörðun hvers og eins skóla. Jón Baldvin Hannesson, skólastjóri Giljaskóla á Akureyri, segir að þar fari einstaka bekkir í slíkar heimsóknir. Hann segir engar umkvartanir hafa borist frá for- eldrum vegna kirkjuferðanna. Í Hafnarfirði er stuðst við viðmið- unarreglur bæjarins um samskipti leik- og grunnskóla við trúar- og lífs- skoðunarfélög. Kirkjuheimsóknir á skólatíma eru tilkynntar foreldrum með góðum fyrirvara, rétt eins og all- ar aðrar vettvangsferðir. Engar formlegar kvartanir eða athugasemd- ir hafa borist vegna slíkra heimsókna í ár, að sögn Steinunnar Þorsteins- dóttur, upplýsingafulltrúa bæjarins. Í Seltjarnarnesbæ fara börn í leik- og grunnskólum í kirkju á aðvent- unni, segir Baldur Pálsson, fræðslu- stjóri bæjarins, sem segir langa hefð vera fyrir slíkum heimsóknum og að þær séu skipulagðar í samræmi við viðmið mennta- og menningar- málaráðuneytisins. Börnum sem ekki fara í kirkjuferðina er boðið upp á dagskrá. „Það hefur verið sátt um þetta fyrirkomulag,“ segir Baldur. Ekki eitt af stóru málunum Frá Kópavogsbæ fengust þær upp- lýsingar að nemendur í átta af 19 leik- skólum og 5 af 9 grunnskólum þar í bæ sæki kirkjur heim á aðventu. Þeim börnum sem ekki fari í kirkjuna sé boðinn annar valkostur. Mennta- sviði bæjarins hafa ekki borist um- kvartanir vegna þessa í ár. Hrefna Sigurjónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, segir samtök- unum ekki hafa borist nein erindi varðandi kirkjuheimsóknir skóla- barna. „Þetta virðist ekki brenna mikið á foreldrum,“ segir Hrefna. Hún sagðist telja að ef svo væri hefðu samtökin fengið fleiri erindi þessa efnis. „Þetta virðist ekki vera eitt af þessum stóru málum,“ segir hún. Fáar kvartanir vegna kirkjuferða  Fyrirkomulag kirkjuferða skólabarna á aðventu er mismunandi eftir sveitarfélögum  Lítið er um athugasemdir foreldra  Málið verður tekið upp á borgarstjórnarfundi í Reykjavík í dag Morgunblaðið/Ernir Helgileikur í kirkju Skiptar skoðanir eru um hvort börn eigi að fara í kirkju á starfstíma skóla. Mismunandi er hvernig staðið er að slíkum heimsóknum. Framför, krabbameinsfélag karla, hefur lagt 1,5 milljónir króna í kaupin á línuhraðlinum á Landspít- ala. Þeir Guðmundur Örn Jóhanns- son formaður, Hinrik Greipsson gjaldkeri og Einar Benediktsson stjórnarmaður afhentu styrkinn formlega 12. desember síðastliðinn. „Margir hafa lagt sitt af mörkum til þess að tryggja að Landspítali réði yfir slíkum tækjabúnaði, af nýj- ustu tegund, til geislameðferðar krabbameinssjúkra og bættist Framför nú í þann hóp. Línuhraðallinn hefur reynst mjög vel síðan þetta nýja tæki var tekið í notkun,“ segir í tilkynningu frá spítalanum. Gjöfin var afhent í minningu Odds heitins Benediktssonar prófessors, stofnanda Framfarar, krabbameinsfélags karla. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, tók við peningagjöfinni. Framför gefur fjárhæð til línuhraðals Málþing verður haldið í Þjóðmenningarhús- inu við Hverfisgötu í dag, 16. desember, kl. 14:30-16:30 undir yfirskriftinni „Lýðheilsa – Heilsa í allar stefnur. Hvar standa Íslendingar í samanburði þjóða?“ Að málþinginu standa forsætisráðuneytið, embætti landlæknis og velferðarráðuneytið. Tveir erlendir gestafyrirlesarar flytja erindi á málþinginu, þau Timo Ståhl, sviðs- stjóri Lýðheilsustofnunar Finnlands, og Tone Poulsen Torgersen, sérfræðingur hjá Heil- brigðismálastofnun Noregs. Þriðja erindið á málþinginu flytur Dóra Guðrún Guðmunds- dóttir, sviðsstjóri hjá embætti landlæknis. Að erindunum loknum verða pallborðsumræður. Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor og formaður lýðheilusnefndar, stýrir umræðunum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flytur ávarp í upphafi málþingsins, en málþingsstjóri er Anna Lilja Gunnarsdóttir, ráðuneyt- isstjóri í velferðarráðuneytinu. Málþing um stöðu lýðheilsu á Íslandi STUTT Hvort og hvernig gera eigi jóla- hefðum skil í grunnskólum sem reknir eru af opinberum aðilum hefur verið talsvert til umræðu í nágrannalöndum okkar undan- farin ár. Á vefsíðu danska menntamálaráðuneytisins segir að það sé í fullu samræmi við dönsk grunnskólalög að jólahefðir séu hluti af skólastarfi. Það sé m.a. vegna ákvæðis í þarlendum grunnskólalögum um að nem- endur skuli öðlast þekkingu á danskri menningu og sögu. Á vefsíðu norska mennta- málaráðuneytisins segir að hafi skólar hug á að fara með nem- endur sína í kirkju á skólatíma skuli það gert í samráði við for- eldra. Lögð er áhersla á að sá val- möguleiki, sem stendur þeim til boða sem ekki fari í kirkjuna, sé svipaður að gæðum og þá er áréttað að börnin skrái sig sér- staklega í kirkjuferðina. Ekki eigi að líta á það sem sjálfsagðan hlut að þau fari í kirkjuferðir á skóla- tíma. Gert í samráði við foreldra EKKI BARA Í UMRÆÐUNNI Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.