Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 16.12.2014, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2014 ✝ Jón AuðunnViggósson fædd- ist í Reykjavík 4. september 1938. Hann andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 3. desember 2014. Foreldrar hans voru Viggó Guð- jónsson, f. 1. desem- ber 1907, d. 15. sept- ember 1996, og Lára Guðbrandsdóttir, f. 13. október 1908, d. 7. desember 1967. Fóst- urmóðir Jóns var Þórunn Jós- efsdóttir frá Grindavík, f. 6.10. 1898, d. 2.2. 1986. Alsystkini Jóns eru: Júlíana, f. 2.8. 1929, d. 14.12. 2000, Dagbjört Erla, f. 18.9. 1931, d. 26. desember 1999, Margrét, f. 25.8. 1934, d. 8.11. 1992, Þórlaug, f. 25.8. 1934, d. 1935. Sammæðra eru Jóna, f. 28.7. 1928, d. 18.12. 1992, og Guðbjörg, f. 10.9. 1936. Samfeðra er Hrafnhildur Mar- grét, f. 9.10. 1928, d. 29.3. 1987. Fóstursystir Jóns er Vigdís Lára Viggósdóttir, f. 7. 8. 1944. 30.12. 1958, maður hennar er Sigurberg Jónsson, f. 27.9. 1950. Börn þeirra eru: a) Jón Auðunn, f. 14.1. 1979, í sambúð með Sigríði Dóru Héðinsdóttur, börn þeirra eru Sigurberg, f. 29.6. 2010, og Guðrún, f. 29.11. 2012. b) Kristinn Þór, f. 5.7. 1980, í sambúð með Völu Dröfn Björnsdóttur, börn þeirra eru Eygló, f. 1.8. 2007, Egill, f. 30.6. 2009, og Friðbjörn, f. 11.2. 2013. c) Guðrún Matthildur, f. 23.8. 1991, í sambúð með Jóni Val Guðmundssyni. 3) Þórunn Jóns- dóttir, f. 11.3. 1972, maður hennar er Haraldur Helgason, f. 14.4. 1969, sonur þeirra er Brynjar Steinn, f. 14.4. 1998. Að auki eignuðust Jón og Eygló tvö börn er önduðust í frum- bernsku. Jón Auðunn ólst upp í Grindavík og Reykjavík og bjó lengst af sín uppvaxtarár hjá Þórunni fósturmóður sinni. Hann og Eygló giftu sig 13.6. 1959 og bjuggu alla tíð á höf- uðborgarsvæðinu. Jón lærði ungur til málarameistara og vann við það alla sína starfsævi og var meirihlutann sjálfstætt starfandi. Útför Jóns Auðuns verður gerð frá Langholtskirkju í dag, 16. desember 2014, og hefst at- höfnin kl. 11. Eiginkona Jóns, sem nú er látin, var Eygló Guðmunda Steins- dóttir frá Ólafs- vík, f. 15.9. 1936, d. 19.11. 2005, dóttir hjónanna Steins Sigurgeirs Kristjánssonar, f. 13.8. 1912, d. 11.5. 1988, frá Ólafsvík, og Dagbjartar Nönnu Jónsdóttur, f. 15.4. 1913, d. 18.12. 1987, frá Arnarbæli á Fellsströnd. Börn Jóns og Eyglóar eru 1) Steinn Auðunn, f. 8.1. 1956, kona hans er Ás- gerður Sverrisdóttir, f. 1.3. 1962. Börn: a) Hákon, f. 18.5.1982, sem Steinn á með fyrrverandi eiginkonu sinni, Þuríði Erlu Sigurgeirsdóttur. Hákon er í sambúð með Klöru Sveinsdóttur og eiga þau Hildi Erlu, f. 2.8. 2010, og Sindra, f. 27.3. 2014. Synir Steins og Ás- gerðar eru b) Sverrir, f. 9.3. 1990, og c) Axel, f. 14.12. 1994. 2) Dagbjört Nanna Jónsdóttir, f. Elsku pabbi minn. Ég þakka þér fyrir lífið sem þú gafst mér, án þín væri ég ekki til. Það er svo þungt að missa, tilveran er skekin á yfirþyrmandi hátt, angist fyllir hugann, örvæntingin og umkomuleysið er al- gjört, tómarúmið hellist yfir, tilgangsleysið virðist blasa við. Það er svo sárt að sakna en það er gott að gráta. Tárin eru dýrmætar daggir, perlur úr lind minninganna. Minninga sem tjá kærleika og ást, væntumþykju og þakklæti fyrir liðna tíma. Minninga sem þú einn átt og enginn getur afmáð eða frá þér tekið. Tárin mýkja og tárin styrkja. Í þeim speglast fegurð minninganna. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þín verður sárt saknað hjá okkur öllum í fjölskyldunni, en við getum yljað okkur við góðar og yndislegar minningar um ykkur mömmu. Þín dóttir, Dagbjört. Jón Auðunn Viggósson, tengdafaðir minn, var harðdug- legur og réttsýnn maður og ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst honum. Jón var víðsýnn og fylgdist vel með, hafði sterk- ar skoðanir og vissi ótrúlegustu hluti. Hann var alltaf hjálpsam- ur og þegar við vorum að byggja okkar hús var hann bæði með ráðleggingar og einnig hjálplegur við málun o.fl. Hann var alltaf góður við barnabörnin sín og fylgdist vel með þeim. Hann var líka alltaf tilbúinn til að passa þau, sækja ef á þurfti að halda og keyra í alls konar viðburði. Barnabörnin sóttust líka eftir því að vera hjá honum og Eygló. Ég man sérstaklega eftir ferðinni okkar til Spánar á 60 ára afmælinu hans, en þau höfðu aldrei komið þangað og höfðum við mjög gaman af þess- ari ferð. Síðan fóru þau nokkrar ferðir þangað og einnig ferð- uðust þau um Evrópu þar sem keyrt var víða. Þau höfðu gam- an af því að ferðast og hann sá eftir að hafa ekki byrjað fyrr á því. Jón hafði gaman af bílum og átti að sögn alltaf besta bíl- inn þangað til hann fann ein- hvern betri, þá varð hann að kaupa hann. Hann varð eflaust ungur fullorðinn enda byrjaði hann að vinna fyrir sér snemma og þau áttu fyrsta barnið þegar hann var 17 ára. Hann lærði síðan til málarameistara og vann við það alla ævi. Það hefur eflaust ekki alltaf verið gott vinnuumhverfi þar sem í þessu fagi er oft unnið með sterk efni. Man ég eftir því þegar ég kom til að segja honum að fyrsta barnabarnið væri fætt og hann var að vinna í stóru fyrirtæki að mér fannst eins og ég gengi á vegg þegar ég kom þar inn. Ár- in eftir að Eygló lést voru hon- um erfið því þau voru mjög samrýnd og hann missti þá mik- ið. Hann hélt þó áfram að vinna meðan hann gat, en síðustu árin var erfitt að horfa á hann fjara svona út og reyndum við eins og við gátum að gera honum lífið bærilegt. Undanfarið eitt og hálft ár var hann á Sóltúni þar sem vel var um hann hugsað og þakka ég fyrir það. Sigurberg Jónsson. Í dag er til moldar borinn elskulegur móðurbróðir minn, Jón Auðunn Viggósson. Nonni, eins og hann var ætíð kallaður, var yngstur systkina sinna, næstur móður minni, Bíbí, í aldri. Þau voru afar sam- rýnd strax sem börn og miklir vinir alla tíð. Það eru til margar skondnar sögur af því þegar mamma var að passa litla bróð- ur sinn og voru hverjum sem gerði honum hina minnstu skrá- veifu veitt makleg málagjöld. Barnæskunni eyddu þau systkin í Reykjavík og einnig í Grinda- vík þar sem þau bjuggu í nokk- ur ár. Það var hrein unun að hlusta á þau systkinin rifja upp gamla tíma og var þá oft mikið hlegið. Nonni var sérstaklega vel máli farinn og með mikla frá- sagnarhæfileika. Hann var leik- ari af Guðs náð og gat hermt eftir hverjum sem var. Mér er minnisstætt þegar Nonni og Eygló kona hans komu í heim- sókn til foreldra minna hversu glatt var oft á hjalla. Það eru engar ýkjur að segja að þau hafi verið afskaplega skemmtilegt og fyndið fólk bæði tvö. Eygló, sem var ættuð úr Ólafsvík, hafði til að bera það besta sem einn „Ólsara“ getur prýtt, þ.e.a.s. að geta gætt hverja frásögn lífi af hreinskilni og óborganlegri fyndni. Það var því mikið hlegið hvar sem þau hjón komu og voru þau sérstakir aufúsugestir á bernskuheimili mínu þar sem við systkinin gættum þess að missa ekki af heimsóknum þeirra. Það var eftir því tekið hversu glæsileg hjón þau voru, Eygló og Jón, bæði dökkhærð, sér- staklega lagleg og hávaxin. Þau nutu barnaláns, eignuðust þrjú börn, Stein Auðun, Dagbjörtu Nönnu og Þórunni, sem öll hafa stofnað fjölskyldur og eignast afkomendur. Eygló lést langt um aldur fram og varð mörgum harm- dauði. Það var mikill missir að Eygló, en mestur var missir Nonna og barnanna og barna- barna þeirra hjóna. Fyrstu árin eftir lát hennar voru Nonna af- ar erfið og var eins og lífið hefði að mörgu leyti glatað lit sínum og gleði. Þeir sem best þekktu Eygló skilja hversu mikill miss- ir er að slíkri konu, konu sem var svo sterkur persónuleiki að hún bar af, hvar sem hún fór. Það var því ekki að undra að Nonni saknaði hennar. Nú er Nonni kominn til Eyglóar sinnar og eflaust er glatt á hjalla hjá þeim. Ég er viss um að Steini og Dæja, for- eldrar Eyglóar, eru þarna líka, ásamt ömmu Tótu. Þau hafa öll tekið vel á móti honum Nonna, það er alveg víst. Við kveðjum Nonna frænda með miklu þakklæti. Þakklæti fyrir þann stóra þátt sem hann hefur átt í lífi okkar allra, og óskum honum velfarnaðar á nýjum slóðum. Mömmu, börn- um hans og fjölskyldum þeirra sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð að gefa þeim styrk á sorgar- stundu. Fyrir hönd systkinanna frá Norðurbraut 17 í Hafnarfirði, Guðný Þórunn Magnúsdóttir. Jón Auðunn Viggósson Guðbjörg eða Guja eins og hún var ávallt kölluð var fædd og uppal- in á Ósi í Breiðdal, fjórða barn foreldra sinna en fyrir voru systurnar Hulda og Anna og bróðirinn Bergur. Yngst er systirin Nanna. Á þessum árum var tvíbýli á Ósi en þar bjó einnig móðurbróðir þeirra systkina, Sigurður Jónsson, ásamt fjölskyldu sinni. Guja og systkini hennar töl- uðu oft um atburði frá uppvaxt- arárum sínum á Ósi en þar ríkti mikil samstaða og gleði með Guðbjörg Sigurpálsdóttir ✝ Guðbjörg Sig-urpálsdóttir fæddist 9. nóv- ember 1926. Hún lést 1. desember 2014. Útför Guð- bjargar fór fram 5. desember 2014. þessum mörgu frændsystkinum, en á Ósi ólust upp 14 börn á þessum árum. Árið 1937 flutti fjölskyldan frá Ósi að Hóli í Breiðdal en þar þurfti að endurbyggja allan húsakost. Á þess- um árum tóku allir fjölskyldumeðlimir fullan þátt í þeim störfum sem til féllu, hver eftir sinni getu. Guja var glæsileg kona og var góðum kostum búin, hún vakti athygli samferðafólks síns. Hún var dul um sín mál og aldrei heyrði ég hana kvarta en hún hafði gaman af að skemmta sér í góðra vina hópi. Guja hafði frábært minni sem entist henni allt til hinstu stundar. Á hennar æskuárum var ekki algengt að ungt fólk hefði kost á að fara í nám eftir að barnaskólanum lauk. Hennar helsti skóli var skóli lífsins og stóðst hún það próf með miklum ágætum. Ung að árum kynntist hún mannsefninu sínu Sigtryggi Runólfssyni frá Innri-Kleif í Breiðdal. Þau hófu búskap þar árið 1946. Á þeim tíma hafði vélvæðingin ekki hafið innreið sína, öll störf í sveitinni voru unnin með gamla laginu, slegið var með orfi og ljá og heyið flutt heim á hestum. Af miklum dugnaði byggðu þau sér nýtt íbúðarhús sem var mikið afrek á þeim tíma. Haustið 1954 ákváðu þau að bregða búi og flytja til Reykjavíkur með sína stóru fjölskyldu en þá höfðu þau eignast átta börn. Þau festu kaup á húsi í svokölluðum Múlakampi sem þau urðu að stækka svo fjölskyldan kæmist þar fyrir. Í febrúar 1958 kviknaði í hús- inu að næturlagi þegar öll fjöl- skyldan var í fasta svefni. Svo blessunarlega tókst til að fjöl- skyldan komst öll út án þess nokkur hlyti skaða af. Húsið brann til kaldra kola, þar var ekkert eftir. Fjölskyldan missti þar allar sínar eigur. Mér er það mjög minnisstætt þegar lögreglubílar komu heim til for- eldra minna í Melgerði 15 og út úr bílunum kom fjölskyldan öll á nærklæðunum einum saman. Með miklum dugnaði tókst þeim að koma sér aftur upp heimili og um haustið 1958 keyptu þau sér hús í Heiðar- gerði 11 þar sem þau bjuggu í áratugi. Þau hjónin eignuðust alls ellefu börn en yngsta barn- ið dó á fyrsta ári. Þegar börnin fóru að stálpast fór Guja út á vinnumarkaðinn og vann hún hjá Sjóklæðagerðinni. Eftir fráfalls Sigtryggs í september 1988 hélt Guja heim- ili með frumburði sínum, Jóni Guðlaugi. Mér finnst það vera aðdáunarvert hvað Jón Guð- laugur hefur verið natinn við móður sína. Að leiðarlokum vil ég og fjöl- skylda mín þakka Guju fyrir all- ar samverustundir liðinna ára og bið henni Guðs blessunar. Við sendum börnum hennar og fjölskyldum þeirra samúðar- kveðjur. Páll R. Magnússon og fjölskylda. Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 ALLAR SKREYTINGAR UNNAR AF FAGMÖNNUM ✝ Faðir okkar og sambýlismaður minn, ÓLAFUR GUNNAR SIGURJÓNSSON Sólvangi, Blönduósi lést á Heilbrigðisstofnun Blönduóss fimmtudaginn 11. desember. Útför fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 20. desember kl. 14.00. Börn hins látna, Ragna Rögnvaldsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og elskulegur sambýlismaður, JÓNAS ÞÓRIR DAGBJARTSSON fiðluleikari, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. desember kl. 14.00. Margrét Linda Þórisdóttir, Guðmundur Þórðarson, Kristín Þórisdóttir, Karl Jóhannes Karlsson, Jónas Þórir Þórisson, Rósa Einarsdóttir, Laufey Karlsdóttir, barnabörn og langafabörn. ✝ Ástkær móðir mín, amma okkar og langamma, MARÝ VALDÍS JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Grensásvegi 56, lést sunnudaginn 7. desember á Hrafnistu Boðaþingi. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 19. desember kl. 15.00. Anna Steinunn Jónsdóttir, Gylfi Steinar Gylfason, Einar Örn Gylfason, Marý Valdís Gylfadóttir og langömmubörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BALDVIN STEINDÓRSSON rafvirkjameistari, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 13. desember. Útförin verður auglýst síðar. Lilja Magnúsdóttir, Lilja Baldvinsdóttir, Þorbjörn Viggósson, Kristján Baldvinsson, Bryndís Ottósdóttir, Magnús Baldvinsson, Bettina Wilhelmi, Halldór Baldvinsson, Katrín Garðarsdóttir, Guðbjörn Baldvinsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAFÍA S. HELGADÓTTIR sjúkraliði, Sléttuvegi 29, lést föstudaginn 12. desember. Hrólfur Guðmundsson, Anna Helga Hannesdóttir, Bo Ralph, Ásdís Eva Hannesdóttir, Jónas Kristinsson, Jón Hafsteinn Hannesson, Birna Björnsdóttir, Ólöf Röfn, Rakel Linda, Jónas Óli, Andrea Röfn, Aron Kristinn, Hera Björk, Hannes Björn og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.