Morgunblaðið - 16.12.2014, Síða 52

Morgunblaðið - 16.12.2014, Síða 52
ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 350. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. „Börnunum eðlilega brugðið“ 2. Gekk berserksgang á sveitabæ 3. Dóttirin mætt upp á flugvöll 4. Fékk nýja mömmu og fjórar … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Færeyska tónlistarkonan Eivør Pálsdóttir verður gestur Kórs Lang- holtskirkju á tónleikunum Jóla- söngvum sem haldnir verða kl. 23 á föstudaginn, 19. desember, og 20. og 21. desember kl. 20 í Langholtskirkju. Kór Langholtskirkju og Gradualekór Langholtskirkju syngja á tónleik- unum undir stjórn Jóns Stefánssonar en auk Eivarar koma fram Ólöf Kol- brún Harðardóttir, einsöngvari á táknmáli, Kolbrún Völkudóttir og ein- söngvarar úr báðum kórum. Jóla- söngvarnir eru þeir 37. sem haldnir eru í kirkjunni, sungnir við kertaljós og boðið upp á jólasúkkulaði og pip- arkökur í hléi. Eivør Pálsdóttir gestur á Jólasöngvum  Jóladjass verður leikinn í kvöld á djasskvöldi Kex hostels sem hefst kl. 20.30. Sérstakur JólaKexKvartett flytur jóladjassinn og skipa hann Sig- urður Flosason á saxófón, Agnar Már Magnússon á píanó, Leifur Gunnarsson á kontra- bassa og Einar Schev- ing á trommur. Fjölmörg elskuð og dáð jólalög verða sveiflunni að bráð, eins og segir í til- kynningu og er aðgangur að tónleik- unum ókeypis. JólaKexKvartett leikur jóladjass Á miðvikudag Norðaustan 13-20 m/s á Vestfjörðum og snjókoma. Mun hægari breytileg átt og víða él annars staðar, en hvöss suð- vestanátt syðst á landinu. Frost 0 til 6 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa sunn- an- og vestanlands, 15-23 m/s upp úr hádegi. Slydda eða rigning og hlánar víða seinni partinn, en suðvestan 8-13 og él í kvöld. VEÐUR 15. umferð Olís-deildar karla í handknattleik lauk í gærkvöldi. Var þar um að ræða næstsíðustu umferð- ina fyrir jólafrí og HM-hlé sem gert verður á deildinni. Afturelding sem lengi var á toppnum í haust er nú í 3. sæti eftir tap fyrir ÍR á heimavelli í gærkvöldi. Valur er á toppnum, tveimur stig- um á undan ÍR og nú fjórum á undan Mosfellingum. Val- ur vann Hauka 33:26. »2-3 Afturelding í 3. sæti deildarinnar Stjarnan skildi sig frá þéttum pakka liða um miðja Dominos-deild karla í körfuknattleik með því að vinna tor- sóttan sigur á Njarðvík í Garðabæ í gærkvöld, 87:80, og kom sér í 4. sæti deildarinnar. Stjörnumenn sýndu mátt sinn á lokamínútum leiksins og skoruðu 17 stig á þremur og hálfri mínútu. »2 Stjörnumenn komu sér upp úr pakkanum „Helsta ástæðan fyrir því að ég hef skorað svo mikið upp á síðkastið er sú breyting sem orðið hefur á leik liðsins frá því að nýr þjálfari tók við í haust. Hann leggur áherslu á hraðari leik en áður,“ segir Bjarki Már Elísson meðal annars í samtali við Morgun- blaðið í dag. Bjarki hefur skorað grimmt í síðustu leikjum Eisenach í þýsku 2. deildinni í handbolta. »4 Þjálfaraskipti höfðu góð áhrif á Bjarka Má ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Húsið var opið og hann birtist allt í einu og vildi tala við mig. Síðan hefur hann elt mig eins og hundur. Ég flauta á hann og þá kemur hann inn og gæðir sér á einhverju gómsætu. Fyrst þegar hann kom inn í eldhús var kerti á borðinu, ég var logandi hrædd um að hann myndi fara sér að voða. Hann horfði bara á ljósið og lét fara vel um sig. Þetta er hálfgerður jóla- fugl,“ segir María Erla Geirsdóttir og hlær. Hún hefur tekið ástfóstri við skógarþröst sem kíkir reglulega í kaffi til hennar á heimili hennar í Borgarnesi. Þrösturinn flýgur um í eldhús- inu, gæðir sér á eplum og rúsínum á milli þess sem hann tyllir sér á gardínustöng eða á brún blóma- pottanna og fylgist með. Fyrst hélt María Erla að mögu- lega væri eitthvað að fuglinum því hann var svo gæfur miðað við aðra fastagesti sem koma fljúgandi í garðinn til að næla sér í æti en svo reynist ekki vera. „Hann er sprell- fjörugur og eldklár,“ segir María Erla. Skógarþrösturinn kom fyrst í garðinn fyrir sjö dögum og gerði sér strax dælt við húsfreyjuna. Hann var einsamall og eini skógar- þrösturinn í fuglahópnum. Bjöllur á háls kattanna Hún fylgist þó vel með þrestin- um góða þegar hann flögrar um garðinn, og vill minna kattaeigend- ur í hverfinu á að setja bjöllur á háls katta sinna. Kettirnir í hverfinu mega þó vara sig ef þeir ná að hremma smá- fugl og María Erla verður vör við það. „Þá hleyp ég út alveg brjáluð og reyni að bjarga þeim, þó að ég sé berfætt,“ segir hún og brosir að eigin innræti og eðli kattarins. María Erla ber nafn með rentu því hún hefur alltaf haft mikinn áhuga á fuglum. Hún segir hlæj- andi að hún hafi oft velt því fyrir sér hvers vegna hún heiti ekki hreinlega Maríuerla. „Ég ólst upp fyrir norðan hjá afa og ömmu. Þar var mikið fuglalíf, bæði sjó- og mó- fugl.“ Hún hefur gaman af því að dást að fuglunum og fóðrar þá stóra sem smáa í garðinum á bók- staflega öllu sem til fellur á heim- ilinu, t.d. afgöngum af rjómasósu. Hún er mikill dýravinur og skipt- ir ekki sköpum hvaða dýr er um að ræða. Fjölskyldumeðlimir vilja meina að hún hafi einstakt lag á öllum dýrum. Spurð hvort hún hafi sérstakar gáfur á þessu sviði segist María Erla ekki gera mikið úr því. „En ég náði einu sinni að klappa kampsel sem var í fjörunni. Seinna var mér sagt að þetta hefði getað farið illa því þeir geta bitið. Maður hugsar ekki alltaf,“ segir hún kím- in. Teistan tignarleg Uppáhaldsfuglinn hennar fyrir utan þröstinn er sjófuglinn teista, því hann er svo einstaklega fal- legur. Hún hefur einnig gaman af auðnutittlingnum því hann er gæf- ur og mjög félagslyndur fugl sem hún nær oft að strjúka léttilega. Þá hefur hún alveg einstaklega gaman af starranum því hann er mjög fljótur að læra og hermir eft- ir alls konar hljóðum, t.d. lóukvaki og símhringingum. „Ef ég set brauðsneið með smjöri og sný henni öfugt þá er starrinn ekki lengi að snúa henni við og gæða sér fyrst á smjörinu.“ Kært með Maríu Erlu og þresti  Flautar á skóg- arþröst sem kíkir inn í kaffi Ljósmynd/Theódór Kr. Þórðarson Þröstur minn góði María Erla Geirsdóttir spjallar við skógarþröstinn. „Í eitt skipti átti ég dýrindis rjómatertu sem var aðeins farið að slá í. Ég skellti henni út á blett og stuttu seinna kom bróðir minn í heimsókn. Hann hélt að ég væri gjörsamlega bú- in að missa vitið,“ segir María Erla Geirsdóttir. Hún segist þó ekki gefa fuglunum rjóma á hverjum degi. Hún minnir fólk á að mikil- vægt sé að gefa fuglunum, sér- staklega núna þar sem árferðið er erfitt. Fuglarnir eru sólgnir í epli og rúsínur. Í sláturgerðinni hefur hún gefið þeim fitu sem þeir éta með bestu lyst. Hún bendir fólki á að kaupa stóra sekki af fuglafóðri. Auðnutitt- lingarnir eru mjög sólgnir í salt- hnetur sem hún gefur þeim í sérútbúnum staukum. „Starr- inn er ansi gráðugur, við þurft- um að losa einn um daginn sem hafði troðið sér ofan í stauk- inn.“ Rjómaterta og sósa FÓÐRIÐ SMÁFUGLANA Flottur Þrösturinn kann að láta fara vel um sig á heimilinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.