Morgunblaðið - 19.12.2014, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 9. D E S E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 297. tölublað 102. árgangur
DULARFULLUR
HEIMUR SKÓGAR-
STÚLKUNNAR JÓLASVEINALEIKAR
KRAFTAVERKIN
GERAST ENN
UM JÓLIN
BÖRNIN Í VATNSENDASKÓLA 14HÁLFSNERT STÚLKA 44
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gjöf sem lifnar við
dagar til jóla
5
Bjúgnakrækir kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Bæjaryfirvöld í Kópavogi stefna að
því að uppbygging nýs íbúðahverfis í
Auðbrekku hefjist þegar á næsta ári.
Hulunni er svipt af vinningstillögu
ASK arkitekta um endurgerð hverf-
isins í Morgunblaðinu í dag og geng-
ur hugmyndin út á að byggðar verði
400 nýjar íbúðir í hverfinu. Það er
milli Hamraborgar og Nýbýlavegar.
Uppbyggingin er hluti af þeirri
stefnu Kópavogsbæjar að þétta
byggðina og kemur m.a. til viðbótar
nýrri Smárabyggð, sunnan Smára-
lindar, sem kosta mun tugi milljarða.
Áætla má að kostnaður við bygg-
ingu 400 íbúða í Auðbrekku verði á
þrettánda milljarð og að söluverðið
verði 15-16 milljarðar. Til saman-
burðar verða 252 íbúðir í Skugga-
hverfinu í Reykjavík fullbyggðu.
Íbúar hverfisins verða um þúsund.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
Kópavogs, segir að samhliða þessari
uppbyggingu verði götur í Hamra-
borg endurnýjaðar og verslunargat-
an þar tengd við hið nýja hverfi.
Ármann segir að huga þurfi að
mörgu þegar gróið hverfi er endur-
byggt. Það sé ekki útilokað að upp-
byggingunni verði lokið að lang-
mestu leyti í lok þessa áratugar.
Kynna 400 íbúða hverfi
Uppbygging nýs hverfis í Auðbrekku hefst á næsta ári 400 íbúðir skipulagðar
Kostar á annan tug milljarða Bæjarstjóri Kópavogs segir verkefnið flókið
MAuðbrekkan »6
Sex stofur tóku þátt
» Sex arkitektastofur tóku
þátt í hugmyndasamkeppni á
vegum Kópavogsbæjar og
Lundar fasteignafélags ehf.
» Vinningstillagan verður
kynnt opinberlega í dag.
Vetrartíðin getur verið hryssingsleg og falleg í
senn. Eftir tíð fárviðris undanfarna daga lét snjór-
inn sér það nægja að falla lóðrétt í höfuðborginni í
gær. Vegfarendur gátu því hvílt sig á inniverunni
og notið þess að virða fyrir sér lauflaus trén
íklædd hvítri jólahulu á Austurvelli.
Trén klæðast í fannhvítan jólaskrúða
Morgunblaðið/Ómar
Ákvörðunarvald giftra ein-
staklinga þegar kemur að fjármála-
ákvörðunum heimilisins ræðst af
atvinnumöguleikum þeirra utan
heimilis. Þetta er niðurstaða dokt-
orsritgerðar hagfræðinganna Örnu
Varðardóttur og Tomas Thörn-
quist. Í samtali við Morgunblaðið
sagði Arna niðurstöðurnar ýta und-
ir mikilvægi þess að fólk mennti sig
og geti staðið á eigin fótum fjár-
hagslega. »22
Atvinnumöguleikar
ráða ákvörðunar-
valdi á heimilum
Sala á jóla-
vörum hefur
ekki gengið
betur í mörg ár
en miklu getur
munað á verð-
inu hvort versl-
að er í byrjun
desember eða
síðustu dagana
fyrir jól.
Verslanir
bjóða nú allt að
65% afslátt af jólavörum en oft á
tíðum borgar sig frekar að selja
vörurnar á lægra verði en að
geyma þær, þar sem lagerpláss get-
ur verið dýrt. »16
Borgar sig að gefa
afslátt af jólavörum
Skraut Jólavörur
lækka í verði.
Björgunar-
sveitir hafa sinnt
rúmlega 900
verkefnum í des-
embermánuði og
farið í tvær stór-
ar leitaraðgerðir
að auki. 885
björgunarmenn í
85 björgunar-
sveitum hafa
sinnt þessum
verkefnum en formaður Lands-
bjargar segir að erfitt sé þó að full-
yrða hvort um met sé að ræða. »21
Nærri þúsund verk-
efni björgunarsveita
Björgunarsveitir
Næg verkefni.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Horfur eru á að slegið verði met í
sölu neftóbaks á árinu, samkvæmt
upplýsingum frá ÁTVR. Fyrstu 11
mánuði ársins jókst neftóbakssalan
um 20% og seldust 29.649 kg. Á
sama tímabili 2013 seldust 24.710 kg.
Árið 2011 var slegið met í sölu nef-
tóbaks en þá seldist 30.231 kg af nef-
tóbaki á heilu ári. Tóbaksgjald á nef-
tóbak hækkaði um 75% í ársbyrjun
2012 og um 100% í ársbyrjun 2013 og
hafði það mikil áhrif á verð tóbaks-
ins. Sala á neftóbaki dróst saman ár
frá ári 2012 (28.763 kg) og 2013
(27.616).
„Við höfum haft áhyggjur af
þessu,“ sagði Viðar Jensson, verk-
efnisstjóri tóbaksvarna hjá Embætti
landlæknis, um aukna sölu á neftób-
aki. Hann sagði mælingar á meðal
ungs fólks á árunum 2009-2011 hafa
sýnt að aukningin byggðist á neyslu
ungra karlmanna sem tóku neftóbak
í vörina. Hann sagði að hækkanirnar
á tóbaksgjaldi 2012 og 2013 hefðu
dregið úr neyslu en áhrif þeirra
væru að dvína. Neftóbakið hefði t.d.
lítið hækkað í verði frá hækkuninni í
ársbyrjun 2013. Ítarleg könnun á
tóbaksneyslu í fyrra sýndi að eig-
inleg neftóbaksneysla, þ.e. að taka
daglega í nefið, var mest á meðal
3-4% miðaldra karlmanna.
Embætti landlæknis og velferð-
arráðuneytið, auk fulltrúa fjár-
málaráðuneytis, menntamálaráðu-
neytis og heilbrigðiseftirlits, vinna
nú að stefnumótun í tóbaksvörnum.
Viðar kveðst eiga von á að vinnunni
ljúki í upphafi næsta árs.
Stefnir í met í neftóbaki
Unnið er að
nýrri stefnumótun
í tóbaksvörnum
Morgunblaðið/RAX
Neftóbak Sala á neftóbaki hefur
aukist mikið á þessu ári.
JÓLIN HANS HALLGRÍMS 10