Morgunblaðið - 19.12.2014, Page 2

Morgunblaðið - 19.12.2014, Page 2
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Blásið hefur hressilega á Norð- austur-Atlantshafinu í allt haust með stórsjóum og töfum fyrir millilandaskip Eimskips og Sam- skipa. Álag hefur verið á áhöfnum skipanna og stundum lítið um svefn þegar lætin hafa verið hvað mest. Anna Guðný Aradóttir, upplýsingafulltrúi Samskipa, segir að í haust hafi verið algengt að skipin hafi tafist um 1-2 sólar- hringa, sem yfirleitt hafi tekist að vinna upp. „Það sem stendur þó upp úr er að við höfum ekki misst gáma og ekki orðið fyrir verulegu tjóni á farmi,“ segir Anna Guðný. „Það hefur hins vegar verið mikið álag á áhöfnum skipanna og svakalegur sjór á leiðinni yfir haf- ið, samkvæmt lýsingum skip- verja.“ Misstu fjóra gáma Ólafur William Hand, upplýs- ingafulltrúi Eimskips, segir að í allt haust hafi orðið töluverðar taf- ir á siglingum. „Nú síðast lenti Goðafoss í miklu vestanbáli og tólf metra ölduhæð norðan við Fær- eyjar í vikunni, fékk á sig brot og missti fjóra gáma,“ segir Ólafur. Í gámunum voru dagvara, fóð- ur, umbúðir og fleira. Goðafoss og Dettifoss eru stærstu skip Eim- skipafélagsins og taka 1.400 gámaeiningar, en Goðafoss var ekki fulllestaður í þessari ferð. „Menn hafa alltaf að leiðarljósi að fara með gát og þrátt fyrir erfiðleika hefur þetta að mestu gengið upp,“ segir Ólafur. Reynt er að vinna upp tafirnar með því að auka hraða við uppskipun og lestun skipanna. Ýmist af austri eða vestri „Annars hefur verið nánast óslitin lægðaröð á hafinu í allt haust,“ segir Ólafur. „Þetta gerð- ist einnig síðasta vetur og svo virðist sem reikna megi með þessum djúpu, miklu lægðum sem ýmist blása af vestri eða austri um þetta leyti árs. Framan af hausti töfðu austanáttir fyrir skipunum á leið sinni til Evrópu með fisk og annan útflutning. Nú undanfarið hafa þrálátar vestanáttir gert mönnum lífið leitt og skipin hafa lent í miklum barningi á móti. Þau taka á sig mikinn sjó og höggva mikið, en um leið er hætta á brotum,“ segir Ólafur. „Í vestanbáli og tólf metra ölduhæð“  Tafir á millilandasiglingum í haust  Mikið álag á áhöfnum og svakalegur sjór Ljósmynd/Sigurður Jónsson 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Erfið fjárhagsstaða RÚV veldur því að ekki er bolmagn til að greiða 190 milljóna króna afborgun af láni hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Í til- kynningu sem barst frá Kauphöll Íslands í gærkvöldi segir að RÚV hafi sent kauphöllinni tilkynningu um samkomulag á milli stjórnar RÚV og Lífeyrissjóðs verslunar- manna um frest á greiðslu lánsins. Þetta er í annað sinn sem samið hef- ur verið um frest á greiðslunni því hið sama var gert 1. október sl. en þá var samið um frest til 31. desem- ber nk. Að sögn Magnúsar Geirs Þórðarsonar, útvarpsstjóra RÚV, eru engir fleiri stórir gjalddagar á næstunni. „Þetta er það sem liggur fyrir og búið er að semja um. Á meðan verður farið yfir stöðuna heildstætt og unnið úr þessum mál- um. Þetta gamla lífeyrissjóðslán er stærsti hlutinn af skuldum Ríkisút- varpsins,“ segir Magnús Geir. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að stjórn RÚV vinni að und- irbúningi á sölu eigna félagsins með það að markmiði að minnka skuld- setningu. Var ákvörðunin staðfest á stjórnarfundi í gær. Þar segir jafn- framt að borgarráð hafi samþykkt í október að hefja vinnu með RÚV með það að markmiði að endur- skipuleggja svæðið, m.a. fyrir íbúða- byggð. „Stjórnin samþykkti sölu- ferlið og stefnt er að því að gera það rösklega,“ segir Magnús Geir. Ræddu uppstokkun á rekstri Að sögn Ingva Hrafns Óskars- sonar, formanns stjórnar RÚV, voru engin stórtíðindi af fundinum í gær. Fyrst og fremst hafi verið horft á stöðuna út frá framlögum í fjárlögum næsta árs. „Á fundinum í dag [í gær] vorum við fyrst og fremst að horfa á það og lækkun út- varpsgjaldsins á næsta ári. Til þess að mæta því þarf að eiga sér stað uppstokkun í rekstrinum,“ segir Ingvi. Morgunblaðið/Eggert RÚV Stjórnarfundur var haldinn í húsakynnum RÚV í Efstaleiti í gær. RÚV getur ekki greitt af láni  Samið um frest á 190 millj- óna kr. greiðslu Veður verður nokkuð mismun- andi á milli landshluta í dag og verður það einna verst fram að hádegi á Vest- fjörðum og Ströndum þar sem búist er við stormi, sam- kvæmt upplýs- ingum frá Veðurstofu Íslands. Spáð er að hann muni færast inn á allt norðanvert landið um hádegisbil og fylgir því snjókomubakki og hvass- viðri. 5-8 m/s verða suðvestan til á landinu framan af morgni. Vind mun taka að lægja og dregur úr úr- komu á norðanverðu landinu þegar líða tekur á daginn og léttir til sunnan- og vestanlands. Hitastig verður við frostmark við ströndina sunnan til en allt að 12-14 stiga frost í innsveitum norðan til. Hitastig verður við frostmark sunnan til Veður Hvessir um hádegi fyrir norðan. Fimm klukkustunda fundi samn- inganefnda lækna og ríkisins lauk um klukkan þrjú í gær. „Það eina sem ég vil segja um fundinn er að það er annar boðaður á morgun,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands. Hann segir að ekki sé tímabært að svara spurningum um það hvort jákvæð- ur gangur sé á viðræðum en eins og fram kom í fyrradag lögðu læknar fram nýjan flöt á eldri hug- myndum á þriðjudaginn. „Menn lögðu þetta fyrir samninganefnd ríkisins og menn hafa verið að ræða það,“ segir Þorbjörn. Fundað verður klukkan 11 í dag. Atkvæða- greiðslu LÍ um verkfallsboðun lækna fyrstu þrjá mánuði ársins 2015 lauk fyrr í mánuðinum en um 98% þeirra sem kusu sam- þykktu fyrirhug- aðar verkfallsað- gerðir. Gert er ráð fyrir að þær hefjist 5. janúar næstkomandi ef samningar hafa ekki náðst fyrir þann tíma. Um er að ræða aðgerð- ir sem eru umfangsmeiri en þær sem þegar hefur verið gripið til. Verkfallsaðgerðir lækna hófust 27. október og haldnir hafa verið rúm- lega þrjátíu fundir í kjaradeilunni. vidar@mbl.is Fundað í fimm tíma og aftur í dag  Ræða nýjan flöt á eldri hugmyndum Þorbjörn Jónsson Ófærðin á götum Reykjavíkur og nágrennis hefur leikið mörg púst- kerfi undir bifreiðum ansi grátt. Svo slæmt er ástandið að púst- þjónustur höfuðborgarsvæðisins hafa varla undan. Snjó hefur kyngt niður og oft myndast djúp hjólför sem litlir fólksbílar ráða illa við. Í litlum hliðargötum og þar sem ekki er rutt skrapa undirvagnar fólksbíla glerharða miðjuna á veginum og þá fær púströrið að kenna á því. Púströr hristast einnig mun meira í snjónum og á svellinu sem ein- kennir götur höfuðborgarsvæð- isins. Þau pústþjónustufyrirtæki sem Morgunblaðið hafði samband við voru öll sammála um það að meira væri að gera hjá þeim nú en yfir- leitt svona nálægt jólahátíðinni. Að skipta um púströr væri ekkert endilega á dagskrá hjá flestum fjölskyldum á þessum árstíma. Þau lélegu fara fyrst Hjá Fjöðrinni pústþjónustu í Dugguvogi fengust þær upplýs- ingar að yfirleitt væri síðasta vika fyrir jól frekar róleg en nú væri staðan önnur. Sömu sögu sögðu þeir hjá pústþjónustu BJB í Hafn- arfirði. Elvar Magnússon hjá púst- fyrirtækinu Púst - hjá Einari í Kópavogi varð að gera tvisvar hlé á samtali sínu við blaðamann vegna anna. „Það er mjög mikið að gera núna – eiginlega allt brjálað. Þau púströr sem voru léleg fyrir fara fljótt í svona færð og þetta geta verið tjón sem kosta nokkra þús- undkalla og upp í hundrað þúsund – allt eftir því hvað þarf að gera.“ Púströr í flesta bíla er yfirleitt gert úr fjórum til fimm hlutum og ef allir hlutarnir fara undan bíln- um þá rýkur kostnaðurinn eðlilega upp. „Kostnaðarbilið getur verið mjög mikið og það er því stundum erfitt að segja við fólk í símann hver áætlaður kostnaður sé,“ segir Elvar og þarf að kveðja – það er kominn viðskiptavinur. benedikt@mbl.is Ófærðin leikur pústkerfin grátt  Kostnaður frá 5 til 100 þúsund Morgunblaðið/Árni Sæberg Púst Nóg að gera í vetrarfærðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.