Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 10
Malín Brand malin@mbl.is Nóttin var sú ágæt ein,í allri veröld ljósiðskein,“ eru upphafsorðbókarinnar Jólin hans Hallgríms eftir Steinunni Jóhann- esdóttur. Þetta eru fyrstu tvær línurnar í Vöggukvæði Einars Sig- urðssonar í Eydölum en Vísnabók- in eftir hann kom út árið 1612. Flest börn þekkja þennan texta og syngja við lag Sigvalda Kaldalóns undir nafninu Nóttin var sú ágæt ein. Vísnabókin kom út tveimur ár- um áður en Hallgrímur Pétursson fæddist og í bók Steinunnar hefst sagan af hinum unga Hallgrími þar sem móðir hans syngur kvæð- ið fyrir börnin sín. Skemmtileg mynd er dregin upp af systk- inunum Hallgrími, Páli, Pétri, Guðríði og ungbarninu Guðmundi í bókinni sem gerist á aðventunni í Gröf á Höfðaströnd árið 1621. Anna Cynthia Leplar mynd- skreytti bókina og skapaði þar með barnið Hallgrím Pétursson og um leið jólaumhverfið árið 1621 þegar drengurinn var 7 ára gam- all. Þá var hann, rétt eins og börn í dag, að læra textann við Vöggu- kvæði Einars Sigurðssonar. Óbilandi áhugi á Hallgrími Eftir Steinunni liggja bæði leikrit og bækur og er Hallgrímur Pétursson mikilvæg persóna í fjór- um verkum hennar. „Fyrst í Heimi Guðríðar sem er leikrit um síðustu heimsókn Guðríðar Sím- onardóttur í kirkju Hallgríms, hann kemur líka við sögu í Reisu- bók Guðríðar, svo í Heimanfylgju sem fjallar um uppvöxt hans á Höfðaströndinni og á Hólum í Hjaltadal og nú í þessari bók, Jól- in hans Hallgríms,“ segir Stein- unn. Leikárið 1983-1984 lék Stein- unn Guðríði Símonardóttur, eig- inkonu Hallgríms Péturssonar, í Þjóðleikhúsinu í leikritinu Tyrkja- Gudda eftir Jakob Jónsson. Þá kviknaði áhuginn á Hallgrími og Guðríði fyrir alvöru og hefur hann ekkert dvínað á þeim rúmlega þrjátíu árum sem síðan eru liðin. Kraftaverkin gerast enn um jól Síðustu áratugi hefur rithöfundurinn Steinunn Jóhannesdóttir unnið að ýmsum rannsóknum sem tengjast Hallgrími Péturssyni og konu hans Guðríði. Hún heillaðist fyrst af sögu þeirra þegar hún fór sjálf með hlutverk Guðríðar á leiksviði í verkinu Tyrkja-Guddu fyrir rúmum þrjátíu árum. Út er komið fjórða verk hennar um Hallgrím og fjölskyldu en þessi bók er sérstaklega skrifuð fyrir börn. Undirbúningur Jólabaðið hefur án efa verið mikilvægur þáttur í jólaund- irbúningi áður fyrr og þá með töluvert frábrugðnu sniði og er í dag. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Magimix matvinnsluvélar, blandarar og safapressur. Kaffivélar fyrir Nespresso og kaffi frá Caffé Vergnano fyrir Nespressovélar. vi lb or ga @ ce nt ru m .is Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is J Ó L AT I L B O Ð Ekki er sami bragur á jólahaldi um allan heim og getur verið áhugavert að kynna sér siði og venjur þessarar hátíðar annars staðar. Á vefsíðunni www.whychristmas.com er hægt að flakka um heiminn í huganum eftir korti og fjallað er um jólahefðir hvers staðar. Í Brasilíu, til dæmis, skilja börn stundum sokk eftir í námunda við glugga og sé heppnin með þeim tekur jólasveinninn sokkinn og skilur eftir gjöf í staðinn. Íslensk börn eru því eflaust fegin að sveinki taki ekki skóinn hér á landi heldur stingi ein- hverju ofan í hann í staðinn. Á síð- unni segir að í Rússlandi neyti fólk sjaldnast kjöts eða fisks í jólamáltíð- inni og þar nefnist jólasveinninn Frost afi. Iðulega er barnabarn hans með honum í för og færa þau börn- unum gjafir. Athyglisvert er að lesa um íslenskar hefðir á síðunni því þar er engu sleppt! Vefsíðan www.whychristmas.com/cultures REUTERS Frost Í Rússlandi gegnir Frost afi svipuðum skyldum og jólasveinninn víða. Jólahefðir um víða veröld Fram að þrettándanum er sýning á Torgi Þjóðminjasafnsins um jólin fyrr og nú. Sýningin er byggð á bók Stein- unnar Jóhannesdóttur, Jólin hans Hallgríms, sem fjallað er um hér til hliðar. Stækkaðar myndir úr bókinni eru til sýnis ásamt gömlum leik- föngum og fleiri munum fyrri tíma. Endilega … … skoðið jól fyrri tíma Morgunblaðið/ Ólafur K. Magnússonar Jól Margt er svipað í jólahaldinu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Verkefnið Vor í lofti er á vegum Matís og er styrkt af Rannsóknar- og ný- sköpunarsjóði Vestur-Barðastrand- arsýslu og Vöruþróunarsetri sjáv- arútvegsins. Það hófst á síðasta ári og lýkur innan skamms en því var ætlað að styrkja smáframleiðendur á sunnanverðum Vestfjörðum til að koma upp fullvinnslu matvæla í smáum stíl og tóku alls átta aðilar þátt í verkefninu að einhverju eða öllu leyti. Út er komin lokaskýrsla þátttakenda og er hægt að nálgast hana á vefnum www.matis.is. Í nið- urstöðum skýrslunnar má meðal ann- ars lesa um aukinn áhuga neytenda á að vita um uppruna þeirra vara sem keyptar eru auk þess sem þeir telja, að því er fram kemur í verkefninu, „að bændur og matvælaframleið- endur í næsta nágrenni séu betur til þess fallnir að hafa á boðstólum vandaða vöru sem tengist uppruna sínum heldur en kæliborð í stórmark- aði með vöru frá öllum heims- hornum“. Þennan aukna áhuga neyt- enda má meðal annars sjá á vin- sældum ýmissa matarmarkaða á borð við Matarmarkað Búrsins sem haldinn hefur verið undanfarin ár. Verkefnið Vor í lofti Áhugi á upp- runa matvara Vestfirðir Verkefnið Vor í lofti tengist matvælaframleiðslu á Vestfjörðum. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kraftaverk Hér má sjá hinn unga Hallgrím ásamt nýbornu lambinu á jóla- nótt. Teikningarnar í bókinni eru eftir Önnu Cynthiu Leplar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.