Morgunblaðið - 19.12.2014, Page 12

Morgunblaðið - 19.12.2014, Page 12
BAKSVIÐ Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Það er gríðarleg þörf á að endur- skipuleggja svæðið til framtíðar,“ segir Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, en úrslit í hug- myndasamkeppni um deiliskipulag og hönnun á Landmannalaugasvæð- inu voru tilkynnt í fyrradag. Tillaga Landmótunar sf. og VA-arkitekta, auk Arnar Þórs Halldórssonar arki- tekts, „Þar sem ljósgrýtið glóir“, sigr- aði í hugmyndasamkeppninni. Sveit- arfélagið Rangárþing ytra í samvinnu við Umhverfisstofnun og Félag ís- lenskra landslagsarkitekta, Fíla, efndu til samkeppninnar. „Það var gefin út skýrsla fyrir ekki svo löngu um ágang ferðamanna á svæðinu en þar kom í ljós hversu brýnt er að endurskipuleggja svæð- ið,“ segir Ágúst. Varðveita óspillta náttúru „Landmannalaugar eru algjör perla og eign okkar Íslendinga þrátt fyrir að svæðið tilheyri okkar sveitar- félagi. Við berum gríðarlega virðingu fyrir svæðinu og þar sem það tilheyrir okkar sveitafélagi finnst okkur við bera mikla ábyrgð. Við viljum meðal annars rísa undir því með því að hugsa til framtíðar, svæðið verður að geta tekið á móti öllum þeim ferða- mönnum sem þangað munu sækja í náinni framtíð,“ segir Ágúst en hann segir vinningstillöguna einmitt ganga hvað lengst, af þeim tillögum er bár- ust, í því að varðveita óspillta náttúru Landmannalauga. „Það voru fjögur teymi sem unnu hugmynd að framtíðarskipulagi Landmannalauga. Við vorum með sérstaka valnefnd sem fór yfir tillög- urnar. Formaður dómnefndar var landslagsarkitektinn Inga Rut Gylfa- dóttir. „Þar sem ljósgrýtið glóir“ er sú skipulagshugmynd af þeim fjórum sem bárust sem gengur kannski hvað lengst í því að koma Landmannalaug- um í upprunalegt horf. Hún gengur meðal annars út á að færa meginum- ferðina, og allt hið manngerða, aðeins út fyrir aðalsvæðið. Þjónustuhús og aðstaða fyrir daggesti verður því færð að Námskvísl sem er í smáfjar- lægð frá laugunum,“ segir Ágúst. Tjaldsvæði í hraunkanti Í tilkynningu Rangárþings ytra segir að tjaldsvæðið verði flutt norður fyrir Námshraun og staðsett í skjóli við hraunkantinn. Þar verði byggð upp þjónustuaðstaða og gistiskálar í um það bil fimmtán mínútna göngu- fjarlægð frá Laugum. Byggingar verði lágstemmdar, byggðar úr ljósu timbri sem fellur vel að líparítinu sem einkennir landslagið. Lögð verði áhersla á látleysi, sveigjanleika og umhverfisvernd. Í umsögn dóm- nefndar segir einnig að um sterka og djarfa skipulagshugmynd hafi verið að ræða sem geti myndað góðan grunn fyrir áframhaldandi skipulags- vinnu á svæðinu. Þess má einnig geta að hús Ferðafélags Íslands verður látið eiga sig. „Verðlaunin sem sigurtillagan hlaut eru auðvitað að fá starfið við að vinna skipulagið áfram. Við fengum fjármuni úr Framkvæmdasjóði ferða- mannastaða til að standa að þessu og hvert lið fékk greiddar tólf hundruð þúsund krónur til þess að vinna hug- myndir sínar. Liðin voru misstór og það voru til að mynda átta manns sem komu að sigurtillögunni. Því er einnig svo farið að þrátt fyrir að „Þar sem ljósgrýtið glóir“ hafi borið sigur úr býtum þá er okkur heimilt að nýta hugmyndir frá hinum tillögunum,“ segir Ágúst en hann segir það ekki liggja fyrir hvenær vinnu við deili- skipulagið ljúki og framkvæmdir geti hafist. Ljóst timbur fellur vel að líparíti  „Þar sem ljósgrýtið glóir“ sigraði í hugmyndasamkeppni um deiliskipulag og hönnun á Landmanna- laugasvæðinu  Sigurtillagan gengur meðal annars út á að færa svæðið aftur í sitt upprunalega horf Náttúra Sigurtillagan gengur meðal annars út á að færa Landmannalaugar í sitt upprunlega horf og varðveita þá óspilltu náttúru sem þar má finna. Sigurvegarar Tillaga hóps Landmótunar sf. og VA-arkitekta, auk Arnar Þórs Halldórssonar arkitekts, „Þar sem ljósgrýtið glóir“, varð hlutskörpust. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Snjóblásarar Bændur - verktakar: Eigum fyrirliggjandi snjó- blásara í öllum stærðum til afgreiðslu strax. í öllum stærðum Öflugir blásarar fyrir öfluga traktora ÞÓR HF Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is Íslandsbanki, Landsbankinn, Arion banki, Valitor og Borgun hafa gert sáttir, hvert fyrirtæki fyrir sig, við Samkeppniseftirlitið vegna rann- sóknar eftirlitsins á samkeppnis- hömlum á greiðslukortamarkaði. Málið hófst með kvörtun Korta- þjónustunnar ehf. sem beindist að útgefendum greiðslukorta og færsluhirðum og taldi Kortaþjón- ustan þessa aðila hafa gerst brotlega við samkeppnislög. Sektir nema 1.620 milljónum Samkeppniseftirlitið hefur lagt sektir á félögin sem samanlagt nema 1.620 milljónum króna og hafa fyr- irtækin jafnframt samþykkt að ráð- ast í umfangsmiklar aðgerðir sem eru til þess fallnar að efla sam- keppni. Meðal annars að hámark skuli sett á svokallað milligjald, þóknun sem söluaðilar greiða korta- útgefendum fyrir alla kortaveltu. Hámarksmilligjald vegna debet- kortafærslna skal ekki fara yfir 0,2% og hámark kreditkortafærslna verð- ur 0,6%. Á því tímabili sem rannsókn Samkeppniseftirlitsins var fram- kvæmd var algeng þóknun 0,75- 0,80% á kreditkortum og 0,35% á de- betkortum og hljóðar því lækkunin, ef miðað er við að velta debetkorta íslenskra heimila hafi verið 341 milljarður í fyrra, kreditkortavelta 277 milljarðar og milligjaldið 0,75% af öllum færslum, upp á rúmlega 400 milljónir. Lækkunin ætti að skila sér til söluaðila og svo á endanum til neytenda í formi lægra vöruverðs. Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, segir milligjöld debetkorta hafa ver- ið lækkuð í hámark eftirlitsins fyrr á árinu og milligjöld kreditkorta vera eitthvað lægri í mörgum tilfellum. Hann gat þó ekki gefið upp ná- kvæma tölu yfir meðaltal gjaldsins, hvorki fyrir debet- né kreditkort. thorsteinn@mbl.is Greiðslukort Sektir Samkeppnis- eftirlitsins nema 1.620 milljónum. Gerðust brotleg við samkeppnislög  Sparar neytendum um 400 milljónir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.