Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Fagleg þjónusta í 60 ár Kringlan 4-12 • Sími 533 4533 • Finndu HYGEA á facebook Mikið úrval af fallegum fylgihlutum Leður 33.900 Ull 12.900 4.900 100% silki 12.900 Leður 7.200 14.980 16.150 Þvottabjörn 14.900 16.900 Kanína 16.900 Kimono 19.900 Leður 26.350 Leður 7.200 6.900 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Jórturdýr Íslenska kýrin þarf ekki gervitennur eins og sú argentínska. Kýr eyða rúmum 15 klukkutímum á sólarhring í að tyggja fæðu. Það er því mikið álag á tennur þeirra enda eru þær jórturdýr og tyggja því sama matinn tvisvar og vand- lega í hvort sinn. Í Argentínu eru fjölmargar Aberdeen Angus-kýr og endist kynið frekar illa vegna mikils tannslits. Algeng skýring slátrunar er tannslit. Nýlega fengu vísindamenn við rannsóknastofnunina INTA í Arg- entínu þá sérstöku en skemmti- legu hugdettu að setja gervitenn- ur í þessar Aberdeen Angus-kýr. Fannst því vísindamönnunum til- valið að skella fölskum tönnum, sem líkjast reyndar hálfgerðri bitskinnu, í argentínsku kýrnar og skoða hvaða áhrif þetta hefði. Niðurstaða rannsóknarinnar kom mörgum í opna skjöldu en með gervitönnum lifa kýrnar mun lengur og geta því alið af sér fleiri kálfa. Kýrnar fóðrast jafn vel og áður og fundu vísindamennirnir enga annmarka við notkun gervitann- anna. Bitskinna þessi er sett í kýrnar eftir tveggja ára aldur og fest með sérstöku tannlími. Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands kúabænda, segir að mannskepnan hafi komist ágæt- lega af án þess að skella fölskum tönnum í kýrnar hingað til. Hann sjái það ekki fyrir sér að þessi nýjung skili sér yfir hafið og alla leið til Íslands. „Það hefur ekki komið að sök þessi tíu þúsund ár sem mannskepnan hefur haldið nautgripi. Ég held að það væri töluvert mikið mál að gera þetta og ég sé ekki alveg hagkvæmnina í þessu ef ég á að vera hreinskil- inn. Svona aðgerðir hafa ekki komið til tals hingað til en maður á aldr- ei að segja aldrei – fólki dettur nú ýmislegt í hug,“ segir Baldur. benedikt@mbl.is Falskar tennur bjarga kúnum  Argentínskar kýr lifa lengur með gervitennur  Óþarft á Íslandi Hæstiréttur hef- ur hafnað kröfu Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi for- stjóra Kaup- þings, um að Ólafur Þór Hauksson, sér- stakur saksókn- ari, og fimm önn- ur vitni verði kvödd til skýrslutöku í héraði til að varpa ljósi á framkvæmd símhlerana hjá embætti sérstaks saksóknara í tengslum við áfrýjun Al Thani- málsins. Héraðsdómur Reykjavíkur varð við kröfu Hreiðars 10. desember sl. en saksóknari kærði úrskurðinn til Hæstaréttar sem hefur nú kveðið upp sinn dóm. Hreiðar Már var á síðasta ári dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar og fer málflutningur þar fram dagana 26. og 27. janúar næstkomandi. Hreiðar Már krafðist þess við rekstur Al Thani-málsins fyrir Hæstarétti að tiltekin vitni skyldu gefa skýrslu fyrir héraðs- dómi í þeim tilgangi að varpa ljósi á framkvæmd símhlerunar við rann- sókn málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að upptökurnar af símtöl- um Hreiðars við verjanda sinn myndu ekki koma á neinn hátt til álita þegar leyst yrði úr sakamálinu á hendur honum sem til meðferðar væri fyrir Hæstarétti og því hefði það enga þýðingu að upplýst yrði frekar um framkvæmd upptakanna. Sérstakur mun ekki bera vitni Ólafur Þór Hauksson  Kröfu Hreiðars Más var hafnað Jólapakkaskákmót Hugins verður haldið laugardaginn 20. desember nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Mótið hefst kl. 13 og er þátttaka ókeypis. Þórgnýr Thoroddsen, formaður ÍTR, setur mótið og leikur fyrsta leikinn. Mótið er fyrir börn og ung- linga og fer nú fram í 17. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins. Keppt verður í a.m.k. sex flokk- um: Flokki fæddra 1999-2001, flokki fæddra 2002-2003, flokki fæddra 2004-2005, flokki fæddra 2006-2007, flokki fæddra 2008 og síðar og peðaskák fyrir þau yngstu. Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum aldurs- flokki drengja og stúlkna. Skráning á mótið er skak.is og á heimasíðu Hugins: http:// skakhuginn.is/ Jólapakkaskákmót Hugins í Ráðhúsinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.