Morgunblaðið - 19.12.2014, Side 20

Morgunblaðið - 19.12.2014, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Bakkaðu upp veisluna EÐA NÆSTA FUND. 565 6000 / somi.is Við bjóðum upp á ferska og ljúffenga veislubakka og bjóðum ókeypis heim- sending á höfuðborgarsvæðinu ef pantaðir eru fjórir bakkar eða fleiri. Pantaðu í síma 565 6000 eða á somi.is. www.isfell.is Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5 200 500 • isfell@isfell.is Ísnet Húsavík s. 5 200 555 Ísnet Akureyri s. 5 200 550 Kristbjörg Ólafsfjörður s. 5 200 565 Ísnet Sauðárkrókur s. 5 200 560 Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Vertu viðbúinn vetrinum Mest seldu snjókeðjur á Íslandi LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Verulegt álag hefur verið á sálfræð- ingi Skólaþjónustu Árnesþings. Ljóst er að einn starfsmaður ræður ekki við að sinna öllum málum sem bíða úr- lausnar. Mun fleiri mál biðu í byrjun skólaárs á liðnu hausti en gert hafði verið ráð fyrir, samkvæmt fund- argerð nefndar oddvita og sveit- arstjóra (NOS) í Árnesþingi frá 8. desember. Markmið starfsins er að vinna aðallega í forvörnum og snemmtækri íhlutun. Verkefnastaðan býður ekki upp á það. NOS leggur til að ráðinn verði sálfræðingur í hálft starf til reynslu í eitt ár. Skólaþjónusta Árnesþings tók til starfa 1. janúar sl. eftir að Skólaskrif- stofu Suðurlands var lokað. Þar starfa tveir kennsluráðgjafar og sál- fræðingur. Þeir annast sérfræðiþjón- ustu í 14 leik- og grunnskólum í sjö sveitarfélögum: Bláskólabyggð, Flóa- hreppi, Grímsnes- og Grafnings- hreppi, Hveragerðisbæ, Hruna- mannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Sveitarfélaginu Ölfusi. Bryndís Á. Böðvarsdóttir, formað- ur skólaþjónustu- og velferð- arnefndar Árnesþings, sagði að starf skólaþjónustunnar væri enn í þróun. Áður en nefndin tók til starfa hefði lítil starfsemi verið á þessu sviði í sveitarfélögunum um tíma og verk- efni safnast fyrir. Hún sagði að vegna þess að starfið væri svo nýbyrjað hefðu menn ekki gert sér grein fyrir umfangi þarfarinnar né heldur hve marga þyrfti til að sinna henni. „Við erum í rauninni að fóta okkur og sjá hver þörfin er. Það hefur sýnt sig að einn sálfræðingur nær ekki að anna eftirspurn. Það er okkar vilji að auka þjónustu á því sviði,“ sagði Bryndís. gudni@mbl.is Auka sálfræðiþjón- ustu við skólana  Skólaþjónusta Árnesþings er í þróun Morgunblaðið/Golli Árnesþing Sjö sveitarfélög hafa samvinnu um skólaþjónustu. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Birgitta Hrönn Halldórsdóttir, bóndi á Syðri-Löngumýri í Austur- Húnavatnssýslu, segir mikilvægt, ekki síst út frá dýraverndarsjónar- miðum, að bændur fái að eiga lyf handa skepnum í neyðartilfellum. Um liðna helgi var ein af betri mjólkurkúnum á Syðri-Löngumýri komin með júgur- bólgu, ekki náðist í dýralækninn sem var á vakt og þegar dýralæknir kom á bæinn á mánudag var kýrin dauð. Birg- itta segir að hefði hún mátt eiga lyf hefði verið hægt að bjarga skepn- unni. Dýrin í mikilli hættu „Það sem skiptir máli er að geta brugðist við nógu fljótt,“ segir Birg- itta og bendir á að samkvæmt reglu- gerð megi dýralæknar ávísa eiganda eða umráðamanni dýra lyfjum til lengri ferðalaga, þegar ætla megi að erfitt eða ómögulegt verði að ná í dýralækni. Bændur megi hins vegar ekki eiga neyðarlyf handa skepnum sínum heima, þó oft sé erfitt eða ómögulegt fyrir dýralækna að koma til þeirra í tíma vegna fjarlægðar og/ eða veðurs. Fyrir bragðið sé mikil hætta á að gripirnir drepist eða verði ónýtir til framleiðslu. „Það er verið að níðast á skepnunum,“ segir hún. Birgitta segir að þegar þau hjón hafi byrjað í búskap hafi bændur mátt eiga ákveðin lyf í samráði við dýralækni. Síðan hafi þetta verið bannað samkvæmt reglugerð og það bitni á skepnum og bændum. Að missa kú á þessum tíma geti þýtt skerðingu á mjólkurkvóta, sem bæt- ist við tjónið við það að missa grip- inn, en verð fyrir kvígu hafi verið 240 þúsund krónur í haust. Tvískinnungur Hún áréttar að ekki sé við dýra- lækna að sakast. Þeir vinni sam- kvæmt settum reglum og vilji allt fyrir bændur gera. Þeir mættu hins vegar vera fleiri. Enginn starfandi dýralæknir sé í Austur-Húnavatns- sýslu og aðeins fjórir dýralæknar skipti með sér helgarvöktum á Norðurlandi vestra. „Aðalatriðið er að allir bændur fái að eiga neyðar- lyf,“ segir hún. „Þetta er tvískinn- ungur í dýravernd,“ heldur hún áfram og vísar til þess að í sauðburð- inum á vorin megi bændur eiga eitt glas af pensilíni komi eitthvað upp á. Birgitta segir að fyrir nokkrum árum hafi gamall krabbameinssjúkl- ingur búið hjá þeim í áratug og þá hafi hún þurft að sprauta hann dag- lega með vandmeðförnu lyfi. „Það er hægt að treysta manni fyrir því að sprauta fólk en ekki dýr,“ segir hún. „Ef ekki er hægt að treysta mér fyr- ir því að misnota ekki lyf fyrir dýrin þá er ekki hægt að treysta mér fyrir þeim yfirleitt.“ Vill fá að eiga lyf handa dýrum í neyð  Skiptir miklu máli að geta brugðist sem fyrst við  Verið að níðast á skepnunum  Má sprauta menn en ekki dýr Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Brúsastaðir Kúabúið á Brúsastöðum í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu er sérhæft bú og var afurðahæsta kúabú landsins á síðasta ári. Birgitta Hrönn Halldórsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.