Morgunblaðið - 19.12.2014, Side 36

Morgunblaðið - 19.12.2014, Side 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 ✝ Haraldur Ólafs-son fæddist í Reykjavík 20. nóv- ember 1987. Hann lést á heimili sínu í Stokkhólmi 6. des- ember 2014. Unnusta hans er Elín Berg Sigmars- dóttir, f. 20. maí 1983. Móðir hans er Svandís Torfadóttir hárgreiðslumeistari, f. 17. desember 1960, faðir Ólaf- ur Þorkell Helgason mat- reiðslumeistari, f. 30. desember 1959. Bræður Haraldar eru Al- bert Torfi Ólafsson rafvirkja- meistari, f. 3. janúar 1979, og Arnar Ingi Ólafsson, tónlist- armaður og nemi í rafvirkjun, f. myndlistarmaður, f. 2. apríl 1935. Foreldrar Ólafar voru Hulda Haraldsdóttir, f. 28. jan- úar 1927, d. 1. desember 1993, og Helgi Þorkelsson, f. 17. sept- ember 1920, en hann lést 4. mars síðastliðinn. Systkini Svandísar eru Hörður Ingi, Kristín, Jóhann Ludwig og Guðrún Inga. Systk- ini Ólafs eru Ásta, Haraldur, Guðrún og Andri Már. Haraldur stundaði nám við Myndlistarskólann í Reykjavík frá 2010 til 2013, fyrst í fornámi og síðar lauk hann diplómanámi í sjónlistadeild. Hann sótti að auki fjölmörg námskeið í myndlist og nam hjá Torfa Jónssyni afa sín- um. Þá lærði hann söng um skeið hjá Sigurði Bragasyni. Haraldur hóf nám í Atelier Stockholm- listaháskólanum sl. haust. Útför Haraldar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 19. desem- ber 2014, og hefst athöfnin kl. 13. 6. ágúst 1990. Sam- býliskona Alberts Torfa er Steinunn Lilja Pétursdóttir leikskólakennari, f. 20. desember 1978. Sonur Alberts er Ásgeir Þór, f. 13. ágúst 2003, og börn þeirra Steinunnar Kristján Pétur, f. 5. desember 2004, Arnar Óli, f. 28. mars 2010, og Elva Dís, f. 21. nóvember 2012. Unnusta Arnars Inga er Eva Dögg Guðmunds- dóttir, nemi í Kennaraháskól- anum, f. 27. nóvember 1984. For- eldrar Svandísar eru Elsa Heike Jóakimsdóttir teiknari, f. 28. mars 1936, og Torfi Jónsson Fallinn er frá ungur maður í blóma lífsins. Haraldur stundaði nám m.a. í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Hann dreymdi um að ná langt í myndlistinni en þar var hugur hans bundinn. Hann var nemandi minn í leturgerð og sýndi þar sem í öðru miklar framfarir. Hann var síteiknandi og eru mál- verk hans fjölmörg af vinum og módelum. Nú síðast fékk hann inn- göngu í listaskóla í Stokkhólmi, Atelier Stockholm. Hann var mikið í grafík, aðallega dúkristu. Gott dæmi um færni hans í dúkristunni er myndskreyting hans fyrir bók- ina „Nú kveð ég þig Slétta“ eftir Einar Sigurðsson. Í Stokkhólmi vann hann mikið með form og lín- ur. Haraldur var vinsæll meðal nemenda skólans og litið upp til hans sem hugmyndaríks nemanda. Haraldur var mikið ljúfmenni og einstaklega barngóður. Hann hafði næmt auga fyrir andlitum barna og eru frábærar teikningar til af börnum jafnt sem fullorðnum eftir hann. Það var einstakt sam- band milli hans og afans, en það var ég. Torfi Jónsson. Elsku Haraldur. Það er sárt að hugsa til þess að ég fái ekki að sjá þig aftur, litla frænda minn með fallegu brúnu augun. Við brölluðum ýmislegt saman á æskustöðvunum í Garða- bæ, í garðinum hjá ömmu og afa. Eftir því sem árin liðu tognaði á samskiptum á milli okkar frænd- systkinanna eins og gengur og gerist, en það er merkilegt að hugsa til þess að ég og þú áttum óvenju margar og góðar samveru- stundir á árinu sem er að líða. Allt- af tókstu utan um mig og fagnaðir mér svo vel og innilega. Mér þótti afskaplega vænt um það. Nú eru þessar stundir dýrmætar minning- ar sem ég mun ávallt geyma. Ég hef alltaf dáðst að því hvað þú varst hæfileikaríkur á myndlist- arsviðinu, þú bjóst einfaldlega yfir einhverri snilligáfu. Núna undir þitt síðasta snerust okkar samtöl og heimsóknir að mestu um mál- verkin þín og sérstaklega um fal- legu myndina sem þú málaðir af afa sem féll frá fyrr á árinu. Því- líkur metnaður sem bjó í þér, ég held að þú hafir málað þrjár mynd- ir áður en þú varst orðinn sáttur og lést mér eftir eina mynd. Þessi mynd er okkur mömmu afskap- lega dýrmæt í dag og mun ávallt vera minnisvarði um þig og þá hæfileika sem þú bjóst yfir. Ég man svo vel eftir þér í vor heima hjá afa í Garðó þar sem við ákváðum með leynd að koma mömmu á óvart með þessari mynd. Þú varst heldur betur til í það, þú með þinn skemmtilega húmor og yndislega glott. Ekki leið á löngu þar til ég kíkti í mynd- listarskólann í Kópavogi þar sem þú labbaðir með mig um allt til að sýna mér hvað þú og aðrir voru með í vinnslu en þar fór fram gerð myndarinnar meðal annars. Ég kíkti líka til þín heim í Garðabæinn og fékk að sjá öll fallegu verkin þín sem þú varst að vinna að þar. Í síð- asta skiptið sem ég hitti þig var ég heima hjá mömmu og þú komst til að færa henni myndina. Yndisleg- ur að vanda og lékst á als oddi með þína skemmtilegu takta og fram- komu. Öll þessi verk eru fjölskyld- unni ómetanleg í dag. Ég fann al- veg hvað þér þótti vænt um þessa iðju og varst stoltur þegar þú sýndir mér þetta allt. Ég tala nú ekki um hvað þú varst spenntur þegar þú fékkst inngöngu í frá- bæran skóla sem þú byrjaðir í síð- astliðið haust úti í Svíþjóð. Ég var svo ánægð fyrir þína hönd og hlakkaði til að fylgjast með þér. En lífið getur verið svo hverfullt og þungbært. Maður reynir að skilja af hverju en svörin standa á sér. Ég vil helst trúa því að þú sitjir þarna uppi á bólstruðu skýi og málir fyrir okkur fallegt sólarlag við hliðina á öllum hinum snilling- unum, því þú varst sannkallaður listamaður af guðs náð. Ég mun hugsa til þín í hvert skipti sem ég virði málverkið fyrir mér hér eftir en ég trúi því að einhver æðri til- gangur bíði þín sem okkur er ekki ætlað að skilja. Elsku frændi minn. Ég mun aldrei gleyma þér og ég skal reyna að passa upp á fjölskylduna þína sem á um svo sárt að binda. Ég sendi þeim öllum, Óla frænda, Svandísi, Alberti og Arnari og þeirra fjölskyldum mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ég veit að elsku afi passar upp á þig ásamt fleirum sem við söknum þarna uppi. Megi friðurinn umlykja þig, elsku frændi. Matthildur frænka. Ljúfur drengur hefur kvatt þennan heim, allt of snemma. Hann var fimm árum yngri en ég, móðursystir hans, og því þekkt- umst við vel þegar við vorum börn. Ég man hann sem kátan og glaðan dreng sem lítið fór fyrir, þótt hann hefði aðhyllst á seinni stigum að hlusta á rokktónlist á hæsta styrk. Þegar ég síðar óx úr grasi og erill náms og lífsbaráttu tók við var minna um samvistir en ég fylgdist alltaf með honum þótt fjarlægðin væri meiri. Ég gladdist yfir því sem vel gekk en það sem út af bar hryggði mig og olli mér áhyggjum. Sem barn, unglingur og ungur maður var Haraldur afastrákur mikill. Hann átti athvarf hjá afa sínum. Saman áttu þeir mynd- listina en á því sviði var upplag hans einstakt. Ósjaldan leit ég inn hjá pabba og hitti þar fyrir Harald, sem mætti mér með ljúfu og hæg- látu fasi og kímnu augnaráði. Ég kann honum mikla þökk fyrir að hafa verið föður mínum svo mikill vinur. Enda nutu þeir félagsskap- ar hvor annars. Síðustu misserin af alltof stuttu lífshlaupi Haraldar blómstruðu hæfileikar hans og þeim sem til þekktu var ljóst hve burðum hans í listinni voru lítil takmörk sett. Við- kvæmni var á hinn bóginn ríkjandi í persónuleika Haraldar og líkt og er algengt hjá svoleiðis mönnum gat hann verið sjálfum sér erfiður og harður. Brotthvarf hans minnir okkur sem eftir stöndum á hve lífið er brothætt þegar grunnt er á kviku. Ég horfi til himins og óska þess að Haraldur hefði mátt líta hina bjart- ari tóna í meira mæli og náð betri fótfestu og jafnvægi í lífinu á grundvelli hæfileika sinna. Elsku Svandís systir og Óli, pabbi og Heike, mikill er harmur ykkar að sjá á eftir barni ykkar og barnabarni. Elsku Albert Torfi og Arnar Ingi, þið syrgið kæran bróð- ur ykkar og félaga. Megi minning hans vera böðuð í birtu. Far vel elsku besti drengur. Hinsta kveðja, Guðrún Inga Torfadóttir. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Mig langar að kveðja hinstu kveðju kæra frænda minn, hann Harald, en hann lést laugardaginn 6. desember í Stokkhólmi. Hvern hefði órað fyrir, mitt í miðjum jóla- undirbúningi, að það myndi myrkva snögglega. Minningar um þennan unga, fallega og hæfileika- ríka frænda streyma fram, en þarna var mikill karakter á ferð, já ljúfur, yndislegur, brosmildur og kátur, já, alltaf svo bjart í kringum hann, þannig mætti ég honum allt- af. Hann byrjaði snemma með blýantinn og pensilinn á lofti og ekki svo langt síðan að hann sýndi mínum strák handtökin. Síðastliðið haust lagði hann af stað með alla sína hæfileika og kunnáttu þar sem hann hóf nám við listaháskól- ann Atelier í Stokkhólmi. Rosalega var ég glaður að heyra það, enda svo mikil hæfileikamaður á ferð eða hreinlega snillingur. Það eru ófá listaverkin eftir þig, elsku strákurinn minn, svo mikið í þau lagt og eitt verk sem er uppi á vegg heima hjá mömmu þinni og pabba hélt ég að væri eftir einn af voða frægum en nei það varst þú sem varst svo frægur að gera það verk og alveg ómetanlegt það sem er til eftir þig. Annað verk sem þú gerð- ir af mikilli alúð var málverk af honum pabba heitnum sem lést fyrr á árinu, það er svo mikils virði bæði að sé til mynd af pabba mín- um og að hún skuli vera eftir þig, var einmitt alltaf á leiðinni að fara panta af þér svona málverk og eins langaði okkur svo mikið til þess að biðja um eina mynd af litlu stelp- unni okkar, en maður heldur alltaf að nægur tími sé framundan, að það sé svo sjálfgefið að það sé hægt að geyma hitt og þetta. Sunnudagskvöldið áður en við fengum fréttirnar fór ég ásamt konu minni og sótti pabba þinn og keyrðum við upp í kirkjugarð til að vitja leiða ömmu þinnar og afa, það var svo fallegt yfir að líta, svo frið- sælt, jólasnjór, jólaljós og við kveiktum á kerti, tókum svo smá- rúnt og vorum einmitt að spyrja svo mikið um þig elsku frændi, hvernig þér líkaði, hvernig þér gengi í náminu, hvernig þú hefðir það og svo var svo mikil tilhlökkun í honum pabba þínum þar sem hann átti von á þér heim þrem dög- um seinna í jólafrí. Minning um frábæran og hæfileikaríkan frænda lifir í huga ástvina um allar ókomnar stundir. Elsku frændi, hvíl þú í friði, við horfum til himins og vitum þegar við sjáum listaverk í skýjunum að það ert þú, snillingurinn frændi, sem hefur teiknað í skýin fyrir okkur. Elsku Óli bróðir, Svandís, Al- bert, Arnar og fjölskylda, við vilj- um votta ykkur og fjölskyldu ykk- ar innilega samúð okkar við fráfall fallega Haraldar ykkar og megi guð veita ykkur styrk á erfiðri stundu. Andri Már Helgason, Mar- grét Huld Guðmundsdóttir. Elsku besti vinur minn, ekki datt mér í hug að okkar kveðju- stund myndi koma svona fljótt. Missirinn er sárari en orð fá lýst, en á sama tíma er ég gífurlega þakklát fyrir að hafa átt þig sem vin öll þessi ár. Það sem byrjaði sem stutt símtal endaði oftast í klukkustunda samræðum um allt milli himins og jarðar. Alltaf leynd- ust gullkorn og sannleikur í því sem þú sagðir, hugmyndir sem ég hef getað nýtt mér í mínu daglega lífi. Þegar við hittumst var fundið eitthvað að gera, enda ekki vanur að láta þér leiðast. Þú varst alltaf að hugsa eitthvað, gera eitthvað eða búa eitthvað til. Hæfileikarnir skinu af þér og þú gafst svo mikið frá þér. Þú hefur kennt mér svo ótrúlega margt og fékkst mig til að sjá listina í lífinu eða réttara sagt að lífið er list. Það er sárt að hugsa til alls þess sem við áttum eftir að gera saman en þú munt fylgja mér í öllu sem ég geri þar til leiðir okk- ar mætast á ný. Þín eilífðarvin- kona, Heiður. Í dag kveð ég góðan vin, hæfi- leikaríkan, sjarmerandi, einlægan, ljúfan, fyndinn, fallegan vin, sem ég hélt að ég myndi þekkja alla ævi. Þetta líf getur verið svo skrít- ið. Ég er búin að leita að réttu orð- unum til að skrifa sem kveðjuorð til þín í nokkra daga en þau er erf- itt að finna. Ég fann setningu í einu af okkar löngu orðasendingum á netinu, þar sagði ég við þig: „Stjörnurnar verða alltaf til en ég er hverful.“ Þetta áttu að vera hvatningarorð til þín til að standa á eigin fótum, ég gerði ekki ráð fyrir að ég og stjörnurnar yrðum eftir og þú myndir hverfa á brott. Elsku Haraldur, ég sakna þín og mun aldrei gleyma þér. Ég hlakka til að hitta þig á öðr- um stað, í öðru lífi og hlæja með þér. Takk fyrir að hafa snert líf mitt. Elsku Óli, Svandís, Albert, Steinunn, Arnar, Eva og Torfi, hugur minn er hjá ykkur. Ykkar vinkona, Guðrún. Ævistarf listmálarans Haraldar Ólafssonar, hjartfólgins frænda míns, er rétt að hefjast þegar ljósið slokknar skyndilega. Félagar hans, penninn og pensillinn, hreyf- ast nú ekki lengur og síðasta skissubókin verður ekki fyllt. Á auðar síður hennar verður ekki sett annað en fögur fyrirheit um glæstan feril. Myndlistin átti hug hans allan enda bjó Haraldur yfir þeim kost- um sem eru lykillinn að góðum listamanni: hæfileikum og tak- markalausum áhuga til að kanna möguleikana sem felast í listrænni tjáningu. Verkin sem hann skilur eftir handa okkur bera með sér að gerandinn var hallur undir kímni og sprell sem þó felur í sér tilfinn- ingu fyrir angist og jafnvel lífs- háska. Haraldur leitaði talsvert í list þýsku expressjónistanna frá fyrstu áratugum síðustu aldar, list sem spratt af samfélagslegum um- brotum og upplausn heimsmyndar og kannski var því einmitt þannig farið hjá Haraldi, sem lifað hafði brokkgengu lífi, en barðist jafn- framt hetjulega til að halda veröld- inni saman. Eftir nokkurra ára nám við Myndlistaskólann í Reykjavík var hann kominn á réttan stað, í lítinn listaskóla í Stokkhólmi sem sér- hæfir sig í þjálfun listnema í raun- særri myndlist. Skýr stefna og það nána samfélag sem skólinn bauð upp á hefði gert frænda mínum gott, hvort heldur í lífi sem í list- inni. En lengra varð ekki komist. Haraldur var gæddur persónu- töfrum og hvers manns hugljúfi, einlægur, ljúfur og vinmargur. Samband hans við Torfa afa sinn var um margt einstakt, þeir voru miklir félagar þar sem samtal um myndlist var í öndvegi. Ég kveð þennan góða og hugumprúða frænda minn með sorg og virðingu fyrir því sem hann lætur eftir sig. Jóhann Ludwig Torfason. Haraldur Ólafsson Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN GUÐRÚN EINARSDÓTTIR, Brautarlandi 9, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 28. nóvember. Útför hennar fór fram í kyrrþey 10. desember að hennar ósk. . Einar Ragnarsson, Gerður J. Pálsdóttir, Brynhildur A. Ragnarsdóttir, Ólafur Bjarnason, Jón Ragnarsson, Gyða Þ. Halldórsdóttir, Þorgerður Ragnarsdóttir, Gísli Kr. Heimisson, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra GUNNARS S. GUÐMANNSSONAR, Nunna, Kleppsvegi 46, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar Landspítala. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. . Anna S. Guðmundsdóttir, Haukur Gunnarsson, Elín J.G. Hafsteinsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Bjarni Jóhannesson, Hildur Gunnarsdóttir, Hjalti Jensson, Þorgerður Gunnarsdóttir, Guðmundur Kjartansson, Magnús Gunnarsson, Monika Borgarsdóttir. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRS GUÐJÓNSSONAR, fyrrverandi veiðimálastjóra, Fjölskylda Þórs. ✝ Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar og systur, LAUFEYJAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Hofstöðum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra og sjúkrahússins í Stykkishólmi fyrir einstaka alúð og hlýju við umönnun hennar. Guð blessi ykkur öll. Valgerður Gunnarsdóttir, Jón V. Ásgeirsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Jón Guðmundsson, Guðmundur Á. Gunnarsson, Erla Þórðardóttir, Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir og fjölskyldur þeirra. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinsemd vegna andláts ástkærs sonar okkar, bróður, mágs og frænda, ÁRNA JÓHANNSSONAR framhaldsskólakennara, Holtateigi 48, Akureyri, sem lést aðfaranótt miðvikudagsins 26. nóvember. Sérstakar þakkir færum við öllu KA-fólki og starfsfólki VMA. Jóhann Helgason, Sigríður Árnadóttir, Stefán Jóhannsson, Karólína Margrét Másdóttir, Helgi Jóhannsson, Kristín Sólveig Eiríksdóttir, Hólmfríður Jóhannsdóttir, Unnar Vilhjálmsson, Sigríður Jóhannsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Eiríkur S. Jóhannsson, Friðrika Tómasdóttir, Jónína Þ. Jóhannsdóttir, Guðmundur Örn Sverrisson, frændsystkini og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.