Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 19.12.2014, Qupperneq 42
42 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er auðvelt að vera vitur eftir á. Yndisleg manneskja gæti komið í heimsókn í eftirmiðdaginn. Raðaðu hlutunum svo eftir mikilvægi þeirra. 20. apríl - 20. maí  Naut Látið ekki blekkjast af sérkennilegri framkomu. Ekki hafa allir sömu skoðanir og viðhorf til lífsins og þú. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt þú hafir í mörg horn að líta máttu ekki gleyma vinum þínum. Þú átt á hættu að fara yfir strikið í samskiptum við maka eða náinn vin. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það getur reynst erfitt að greina á milli þess sem má og hins sem ekki gengur. Ertu með á nótunum? Ertu við? Þú þarft að vera vakandi til þess að hreppa svona hnoss. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Lærðu að slappa af, þú vinnusama fluga! Í stað þess að dreifa þér skaltu ein- beita þér að einu verki eða manneskju í einu. Allir hafa gott af tilbreytingu svona öðru hvoru. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. Segðu vinum þínum frá framtíð- aráætlunum þínum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Áform þín um að bæta heimilið eða fjöl- skylduna munu fá þann stuðning sem þú hef- ur óskað eftir. Helgaðu þig gömlu takmarki upp á nýtt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ættir að eiga betra með að einbeita þér nú þegar þú hefur sett þér tak- mark. Fyrr má nú vera! Á hinn bóginn þarf ekki öllum að líka við þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að setja hlutina í for- gangsröð og fylgja þeim fast eftir. Stuð dags- ins verður frábært umræðuefni á öllum þeim samkomum sem þér ber að mæta á í náinni framtíð. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gerðu það eina rétta. Breytingar breytinganna vegna gefast nefnilega yfirleitt illa. Segðu já við áhugaverða manneskju sem þú hittir við skemmtilegar aðstæður. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Notaðu tímann til þess að skoða hvernig þú getur bætt vinnuaðstæður þínar eða vinnuaðferðir. Hvers konar verslunar- og viðskiptaferðir ættu að verða ánægjulegar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þótt hver dagur virðist öðrum líkur í vinnunni hefur hver sitt snið ef að er gáð. Leyfðu óreiðunni að leiðbeina þér í rétta átt. Í síðustu viku hafði Björn Ingólfs-son orð á því á Leirnum að það væri stundum verið að auglýsa tví- reykt fjallkonulær. Þó að það teljist tvisvar reykt tönnlast það illa í munni og líkast til er það ljótt og seigt lærið af Fjallkonunni. Ólafur Stefánsson var ekki á sama máli: Lærin eru lostamjúk, en lélegt þitt minni, og herði stundum frost og fjúk, að Fjallkonuskinni. Hjálmar Freysteinsson kvaðst hafa eytt vísu Björns Ingólfssonar óvart, en gott væri að fá hana aftur. Og bætti svo við: Í hljóði ég bæn mína bið; bara að losni ég við, þá götu að feta að fara að eta Fjallkonu-magála og -svið. Þetta kveikti í Jóni Arnljótssyni: Vísu Bödda óvart eyddi, aftur svo um hana beiddi. Hugsaði um svið og harðreyktan kvið, þvílíkt af sér læknamistök leiddi. Jóni þótti veður válynd á þriðju- dag sem von var: Loftsins heiði hugsar flátt, höfðum rósir loki, norðurljósin dansa dátt, dregur að leiðu roki. Og þann hinn sama dag skrifaði Davíð Hjálmar Haraldsson í Leir- inn: „„Gufuvitlaust veður“ sagði Gísli fréttamaður úr síðasta byl. Hann leitar uppi versta veðrið á hverjum tíma í fréttir sínar. Göslast víða Gísli má og gufuvitlaus segir frá. Á stórum jeppa og sterkum fer og stundum veit hann hvar hann er.“ Ágúst Marinósson segir að gefnu tilefni: Höfuðborgin hroll mér vekur hef ég beyg af mörgu þar. Mammonshöllin Harpan lekur hundar skíta á göturnar. Ármann Þorgrímsson á þessa fallegu vísu, sem hann orti þegar hann fékk góðan gest í heimsókn – „bráðum 6 ára“: Ekki meira um ég bið á mig sól og stjörnur skína, langafi nú leikur við litlu prinsessuna sína. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Fjallkonumagál, norðurljósum og Hörpu Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVA‘RTA BÚA TIL?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þarna úti einhvers staðar. NÚ HEFST ÞÁTTURINN „GRÍN OG GABB“ TEDDI HEFUR SETT ÍKORNA Í HANDTÖSKUNA HJÁ SIGÞRÚÐI KONU SINNI. SJÁUM HVAÐ GERIST... ÖÖÖ, SIGÞRÚÐUR, ÁTTU NOKKUÐ TYGGJÓ? OG NÚMERIÐ HJÁ GÓÐUM SKILNAÐAR- LÖG- FRÆÐINGI? VEISTU HVERS ÉG SAKNA ALLT Í EINU? BJÓRS OG HARÐSOÐINNA EGGJA... HVERS? ÉG ER MJÖG Á NÁLUM. ER MIKIÐ FYRIR SAUMASKAP – EÐA HANA KLÆJAR. Víkverji samgleðst þeim sem hafafengið skuldaleiðréttingu. Þeim líður örugglega flestum betur nú en áður og það er af hinu góða. Búbót- inni má líkja við litlu jólin og þá styttist í sjálf jólin. Hvað þá verður í pökkunum á eftir að koma í ljós. x x x Víkverji hefur alla tíð stigið var-lega til jarðar þegar um fjárfest- ingar hefur verið að ræða og gætt þess að vera borgunarmaður fyrir öllum skuldbindingum. Hann hefur sniðið sér stakk eftir vexti og í kjöl- far hrunsins tók hann út séreign- arsparnað, greiddi af honum skatt og greiddi upp öll lán. x x x Uppgreiðslan kom ekki til af góðu.Þriðjungur sparnaðar Víkverja í svonefndum peningamarkaðs- bréfum var hirtur af honum með einu pennastriki og hann óttaðist að afgangur sparnaðar færi sömu leið. Ekki háar upphæðir miðað við töl- urnar sem voru í umræðunni en engu að síður munaði Víkverja um þessar krónur, sem voru teknar af honum á einni nóttu. Skuldlaus var hann líka sem fuglinn frjáls. x x x Víkverji sótti um leiðréttingu áverðtryggðum íbúðalánum. Með skuldlausa stöðuna í huga átti hann ekki von á „happdrættisvinningi“ og því kom honum ekki á óvart þegar hann fékk tölvupóst frá ríkisskatt- stjóra í byrjun nóvember sl., þar sem slegið var á allar væntingar. x x x Í bréfinu kom fram að hjá nokkrumhópi umsækjenda um leiðréttingu á verðtryggðum fasteignaveðlánum lægju niðurstöður ekki fyrir. Lokaorðin gátu ekki verið skýrari. „Búast má við að niðurstaða vegna umsóknar þinnar liggi fyrir fljótlega og þá mun þér verða tilkynnt um það með tölvupósti“. x x x Niðurstaðan kom í vikunni. „Þarsem leiðréttingarfjárhæð heim- ilisins er 20.000 kr. eða lægri fellur réttur til leiðréttingar niður.“ Vík- verji átti svo sem ekki von á neinu og sefur áfram rólegur. víkverji@mbl.is Víkverji Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín, þess vegna vona ég á hann. (Harmljóðin 3:24)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.