Morgunblaðið - 19.12.2014, Page 44

Morgunblaðið - 19.12.2014, Page 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 AbsorBurn® Kælir brunasár hratt og lengi Gott að eiga um jól og áramót: Fæst í öllum apótekum. Umboðsaðili: Celsus ehf. �Minnkar sársauka strax � Kaldur gelsvampur & fljótandi gel � Helst vel á, dettur ekki af � Lækkar hita í sári um 6-7°C � Tea Tree & Lavender - sótthreinsar, róar & deyfir. Fyrsta hjálp á 1. og 2. stigs brunasár. Gott að eiga um jól og áramót við eldamennsku og meðferð flugelda. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í nýrri skáldsögu rithöfundarins Bjarna Bjarnasonar, Hálfsnert stúlka, tekst hann á við grundvall- arspurningar um tengsl mannfólks- ins sín á milli, um bókmenntahefð og arf þjóðarinnar um leið og hann leið- ir lesanda inn í dularfullan heim skógarstúlku og sálgreinandans sem reynir að rétta henni hjálparhönd. „Sagan segir frá því er 12 ára stúlka, Sylvía að nafni, villist í skógi fyrir ut- an Darwin í Ástralíu og vafrar út úr honum 11 árum síðar, þá illa á sig komin og í annarlegu ástandi. Þegar menn spyrja hvar hún hafi verið dregst fátt upp úr henni þangað til hún kemur til sálgreinanda í Berlín. Þar segir hún sögu sína og heldur því fram að hún hafi dvalið hjá heimsfrægum konsertpíanista, gam- alli konu, Irenu Kertowitz að nafni. Þegar á líður skýrist nokkuð hvaða sannleika sumar fantasíur hennar geymdu undir niðri.“ Að sögn Bjarna er þetta raunsæ skáldsaga sögð frá sjónarhóli sál- greinandans Róberts sem sjálfur reynir að sálgreina sig eftir áfall í líf- inu: „Hann hefur sína djöfla að draga og vill ekki taka við stúlkunni en neyðist til þess. Þeirra mörgu for- tíðdjöflar kynnast svo sín á milli og æxlast í eigin skuggaveröld eins og gerist oft þegar fólk kynnist. Í gegn- um samtölin við Róbert og í aðferð hans má svo greina vissa ást- ardulhyggju. Ef hjálpa á manneskju, þarf þá ekki samþjáningu? En hve langt gengur sú samþjáning? Hverju ert þú, eða hinn þjakaði og útskúfaði bættari þegar þú ert kominn inn í dýpstu þjáningu hans? Hvernig er umhorfs inni í þjáningu mannsand- ans? Getur maður eitthvað aðhafst ef maður kemst þangað inn eða taka örlögin þar öll völd af manni?“ Vangaveltur um hið sjálfsagða Að sögn Bjarna veltir sagan upp spurningum um eitt og annað sem talið er sjálfsagt. „Eru til áföll sem aldrei er hægt Úr hugarheimi sálgreinandans Morgunblaðið/Kristinn Bókmenntir Bjarni Bjarnason rithöfundur veltir fyrir sér mannlegum tengslum í nýrri bók sinni Hálfsnert Stúlka. að komast yfir, sem gera ein- staklinginn að fórnarlambi til fram- búðar? Hvað er innst í hugarheimi slíks fórnarlambs? Ef komast á yfir áfall sem eyðileggur manneskju, er það þá aðeins með því að verða ann- ar? Hefur viðkomandi þá komist yfir áfallið, eða er um nýja persónu að ræða? Þetta eru spurningar um hversu mikil áföll við komumst yfir og ef við gerum það með aðstoð ann- arra þá er spurning hvort þeir kom- ist yfir eigin veittu hjálp.“ Bjarni spyr sig enn fremur í sög- unni hvort við eigum okkur ekki öll innri goðsagnir: „Hér er ég að skoða það sem við trúum á þótt svo við séum ekki endi- lega trúuð í hefðbundnum skilningi. Við eigum okkar eigin dagdrauma sem safnast saman í okkar innri draumaheimi sem getur verið goð- sagnakenndur og innblásinn af fyr- irmyndum. Skógarstúlkan Sylvía lif- ir mikið til í slíkum heimi og á þar fyrirmynd í Díönu prinsessu, en hennar draumar voru margir skráð- ir í bókinni Diana’s Dreams. Í sög- unni er samantekið úrval þeirra þar til úr verður draumaævi goðsagnar.“ Hér spyr Bjarni lesandann hvort tilfellið sé að ef einhver geti ein- angrað innsta kjarna goðsögu, innsta kjarna einstaklings, hvort hann hafi þá vald yfir viðkomandi, til góðs eða ills, og hvort það vald hafi áhrif á þann sem höndlar það. Brýtur þjóðleg viðhorf Hálfsnert stúlka fjallar hvorki um Íslendinga né gerist hún hér á landi enda segist Bjarni oft hafa verið spurður að því hvort verk eftir hann séu í rauninni þýðingar. Jafnvel hafi því verið haldið fram í umfjöllun um verk hans. Bjarni segir enn loða við suma landsmenn sú þjóðernisróm- antíska sýn að ef sagan fjallar hvorki um Ísland né Íslending þá sé hún ekki um neitt og þá missi tungumálið veruleikatengingu og svífi út í geim merkingarleysunnar. „Fyrir löngu er orðið viðurkennt í myndlist að myndefnið þarf ekki að vera íslenskt en málverkið verður samt talið ís- lenskt listaverk. Ekki mundi hvarfla að heimspekingi hér á landi að spyrja hver væri tilgangur Íslend- ings með lífinu þótt slík spurning gæti orðið gott uppistand hjá skemmtikrafti. Skáldsagan er enn á þeim stað að hún þarf helst að fjalla um Íslendinga eða gerast á Íslandi, til að hana megi taka alvarlega.“ Bjarni bendir á að sú frásagn- artækni sem þróast hefur í íslenskri hefð segi ekkert um það hvað eigi að skrifa um, því þá væri hún skilyrt og ekki verkfæri frjálsrar hugsunar. „Þegar íslensk frásagnarhefð er tek- in út úr rammanum: „land, þjóð og tunga, þrenning sönn og ein,“ og skrifað er um eitthvað allt annað losna áhugaverðir kraftar úr læð- ingi. Í slíkum texta verður gjarnan bersýnilegra hvað hugsun ein- staklings úr okkar menningarheimi hefur upp á að bjóða í sjálfu sér.“ Stoðirnar og tilfinningin Bjarni segir ferlið að baki bókinni hafa tekið sjö ár og verið kaflaskipt. „Það eru nokkrar stoðir undir verk- inu eins og flestum byggingum. Sú fyrsta er hugmyndin að draumævi Díönu, þar sem viðleitnin er að ná kjarnanum úr lifandi goðsögn. Þegar ég svo hafði þennan innsta lífsneista skáldsagnapersónu í höndunum vaknaði spurningin um hvað ég ætti að gera við hann, hvar hann ætti heima. Það var ekki fyrr en ég í brí- aríi fékk þá hugdettu að skrifa um rauðhettulega stúlku sem týnist úti í skógi, að önnur stoð verksins tók á sig textamynd. Þriðja og síðasta grunnstoð verksins kom svo þegar ég hlaut styrk til að skrifa í sex vikur á 4 stjörnu hóteli í Charlottenburg í Berlín. Ég mátti panta vín og mat að vild, og bjóða hverjum sem var í veislu, kertalogarnir sáu um alla reikninga. Við þessar allsnægtir tók mér að leiðast óskaplega og sat mik- ið við gluggann í hótelherberginu með hönd undir kinn. Mér varð oft starsýnt inn um svaladyr handan götunnar á ábúðarfullan mann við skrifborð. Óviss um hvort þarna væri um heimili manns að ræða eða vinnustað var mér þó ljóst að hann átti í samræðum við einhvern. Senni- legt þótti mér að þarna væri sál- greinandi á ferð og gerði mér upp samræður við hann um verk mitt og vandræðin sem ég hafði ratað í með það. Smám saman tók rödd hans yfir mína og þar með fæddist sögu- mannsröddin.“ Þegar stoðirnar þrjár voru komn- ar varð sagan svo til í samtali Bjarna við sjálfan sig: „Öll þessi undirstöðuatriði sem ég hef nefnt kveiktu margar ágengar raddir innra með mér sem ég þurfti að hleypa út án þess að nokkur fatt- aði að ég hefði misst vitið. Þá var gott að vera í Læknishúsinu á Eyr- arbakka og ganga í hringi þar til húsið fylltist af röddum og dagurinn leið hratt í samtölum við svipmyndir af fólki. Ég hló hátt með sumum, átti í háværum rifrildum við aðra, henti sumum út sem voru leiðinlegir, og lenti í að vera hent út af öðrum. Þeg- ar það gerðist endaði ég í snautleg- um göngutúrum um bæinn með vinalegum lausagangshundum sem stöppuðu í mig stálinu þar til ég hætti mér inn í hávaðann aftur. Það má segja að lokaferlið hafi verið langt samtal við sjálfan mig og innri persónur þar til lesandinn sagði þeim og mér að steinþegja og reif af mér bókina.“  Hálfsnert stúlka er glæný skáldsaga rithöfundarins Bjarna Bjarnasonar  Sagan fjallar um stúlku sem vafrar út úr skógi 11 árum eftir að hafa týnst  Bjarni leitar svara við grundvallaspurningum í bókinni geyma níu lög sem Ragga hefur sagt innblásin af ljóði Kristínar Jónsdóttur frá Hlíð, Svefn- ljóð, sem hún syngur við glæsilegt titillag plöt- unnar. Fínasta tónsmíð hjá Röggu og útsetningin skemmtilega drungaleg. Flest lögin eru hæg og ljúf en misgrípandi og platan minnir um margt á hina ágætu plötu Röggu, Vetrarljóð. Eitt lag af þeirri plötu, „Landgang“, má finna á þessari í heldur ólíkri útsetningu. Hvers vegna Ragga ákvað að taka það aftur fyrir er á huldu en lagið er gott við tregafullt ljóð Hallgríms Helgasonar og fellur vel að plöt- unni í heild. Ragga syngur lögin af mikilli tilfinningu, söngurinn ægifagur og seiðandi á köflum og hætt við að hlustanda renni í brjóst. Enda eru þetta svefnljóð, kjörin til þess að sofna út frá. „Lifandi vatnið“ er t.a.m. undur- fallegt, þar nær söngur Röggu hvað mestum hæðum og dimmar raddir karlatríós óma undir og veita laginu góða fyllingu. Mæli Platan er ljóðrænn seiður áíslenskri tungu sem leiðirhlustandann inn í ástandhvílunnar. Þó að ókyrrð heimsins og myrk öfl tilverunnar séu innan seilingar þá fljóta þau um í sefjandi andrými þar sem hlustandinn er ávallt umvafinn móðurlegum faðmi.“ Þannig er Svefnljóðum, áttundu hljóðvers- skífu Röggu Gröndal, lýst á vefn- um Tónlist.is og nær lýsingin ágætlega utan um stemninguna á plötunni. Svefnljóð hefur að Í móðurlegum faðmi Röggu Rólegheitapopp Ragga Gröndal – Svefnljóð bbbmn Áttunda hljóðversskífa Röggu Gröndal. Tónlist og textar eftir Röggu fyrir utan ljóð eftir Hallgrím Helgason, Sigurð Pálsson og Kristínu Jónsdóttur frá Hlíð. Guðmundur Pétursson, Haukur Grön- dal, Claudio Spieler, Birgir Baldursson, Matthías Hemstock og Pálmi Gunn- arsson leika á plötunni. Sena gefur út. HELGI SNÆR SIGURÐSSON TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.