Morgunblaðið - 19.12.2014, Síða 49

Morgunblaðið - 19.12.2014, Síða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2014 ásamt hljómsveit skipaðri Grími Atlasyni stórbassaleikara, Kristjáni Frey trommara og Guðmundi Birgi Halldórssyni gítarleikara. Ég hef heimildir fyrir því að á efnisskránni verði lög S.H. Draums og Bless ásamt lögum Dr. Gunna. Það má því búast við einhverju nostalgíukasti. Steinunn Harðardóttir ætlar svo að flytja lög Dj. Flugvélar og geimskips eins og henni einni er mögulegt. Að lokum stígur prinsinn á svið ásamt hirð sinni en nú standa yfir viðræður við ýmsa leynigesti til þess að stela þrumunni af prinsinum milli laga,“ segir Svavar. Gætu orðið rík – Og hvað ætlar Hulli að gera, ætlar hann að vera með uppistand eða annars konar sprell? Ætlar hann kannski að teikna myndir af ykkur á staðnum? „Mér þætti vænt um ef Hulli feng- ist til að teikna af okkur mynd. Við gætum þá kannski boðið hana upp og orðið rík. Annars ætlar hann að líma dagskrána saman, tilkynna áhorfendum hver sé næstur á svið og hvar klósettin eru og hvaða tilboð eru á barnum hverju sinni. Það má nú vera að einhverjum þyki það sprell en ég þekki Hulla af engu öðru en fúlheitum.“ – Ertu búinn að kaupa allar jóla- gjafir? „Það fá allir plötur með prinsinum í jólagjöf, Sorrí.“ Hljómsveitin Prins Póló býður nokkrum af sínum uppáhalds- listamönnum að troða upp með sér í Iðnó í kvöld, tónlistarmönnunum Dj. Flugvél og geimskipi, Dr. Gunna og teiknaranum Hugleiki Dagssyni. Stuðprinsinn Svavar Pétur Eysteinsson, herra Prins Póló, er maðurinn á bak við viðburðinn og segir hann að þeir sem mæti snemma fái fordrykk. Húsið verður opnað kl. 21. Prinsinn er kátur, sendi á árinu frá sér plötuna Sorrí sem hefur hlot- ið prýðilega dóma, samdi tónlist við kvikmyndina París norðursins sem einnig var vel tekið og hlaut fyrir skömmu fjórar tilnefningar til Ís- lensku tónlistarverðlaunanna sem afhent verða á næsta ári. Hann hef- ur því ástæðu til að fagna vel í kvöld með vinum sínum. Blaðamaður baunaði nokkrum léttum spurning- um á Svavar í vikunni. Nostalgíukast? – Hvað kemur til að þið bjóðið upp á þetta sprell í kvöld? „Það vill svo heppilega til að við erum í bænum rétt fyrir jól og Iðnó var laust og því ekki úr vegi að koma fólki saman undir einu þaki og hrista af sér jólastressið eina kvöldstund.“ – Ætla Dj. Flugvél og geimskip og Dr. Gunni að spila með Prins Póló og þá lög prinsins eða verður lögum allra hrært saman í einn jólagraut ? „Dr. Gunni stígur fyrst á svið „Þekki Hulla af engu öðru en fúlheitum“ Jólastuð Svavar Pétur Prins Póló er kominn í hátíðarskap, eins og sjá má.  Prins Póló treður upp með sínum uppáhaldslistamönnum í Iðnó í kvöld Jonathan Jones, myndlistar- gagnrýnandi dagblaðsins Guardi- an, gefur sýningu Ólafs Elíasson- ar, Contact, sem nú stendur yfir í safni Louis Vouitton í París, fullt hús stiga, fimm stjörnur af fimm mögulegum. Jones segir m.a. að með innsetningu sinni sýni Ólafur fram á að rómantísk myndlist lifi enn góðu lífi, skíni í logandi sjón- deildarhring verksins. Jones rifjar upp eftirminnilega innsetningu Ólafs í Túrbínusal Tate Modern- listasafnsins í Lundúnum fyrir ell- efu árum, The Weather Project, og segir Contact ekki síðri og jafnvel betri. Með Contact hafi Ólafur skapað „himneskan og jóla- legan undrahelli“ og „sprengi upp dyr skynjunarinnar“. Morgunblaðið/Kristinn Lofsunginn Innsetning Ólafs heillar gagnrýnanda Guardian. Ólafur fær fullt hús Night at the Museum: Secret of the Tomb Þriðja myndin í syrpunni um Larry Daley, næturvörð á sögu- og nátt- úruminjasafni, sem lendir endur- tekið í því að bæði dýr og persónur á safninu lifna við að næturlagi. Í þetta sinn kemst hann að því að töfrarnir sem vakið hafa safngrip- ina til lífsins eru brátt á þrotum. Til að bjarga málunum þarf Daley að fara til Lundúna með nokkrum fé- lögum sínum úr safninu. Reynist það viðburðaríkt, ævintýralegt og hættulegt ferðalag. Leikstjóri er Shawn Levy og með aðalhlutverk fara Ben Stiller, Robin Williams, Owen Wilson, Ben Kingsley, Dick Van Dyke, Rebel Wilson, Steve Coogan, Mickey Rooney og Ricky Gervais. Metacritic: 42/100 Horrible Bosses 2 Félagarnir Nick, Dale og Kurt, sem kynntir voru til sögunnar í gaman- myndinni Horrible Bosses, snúa aft- ur og stofna að þessu sinni fyrir- tæki saman til að markaðssetja eigin uppfinningu. Þeir kynnast vafasömum athafnamanni sem pantar af þeim hundrað þúsund stykki af uppfinningunni en hættir svo við kaupin. Félagarnir sitja uppi með risastóran lager og við þeim blasir gjaldþrot. Þeir grípa til vafasamra aðgerða til að bjarga sér og fara úr öskunni í eldinn. Leikstjóri er Sean Anders og með aðalhlutverk fara Jason Bateman, Jason Sudeikis, Charlie Day, Jenni- fer Aniston, Kevin Spacey, Jamie Foxx, Chris Pine og Christoph Waltz. Metacritic: 40/100 Bíófrumsýningar Töfranótt og svikahrappar Hrakfarir Félagarnir í Horrible Bosses 2 með uppfinningu sína. 12 16 -EMPIREJÓLAMYNDIN 2014 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU L L NIGHT AT THE MUSEUM 3 Sýnd kl. 4:30 - 5:50 - 8 EXODUS 3D Sýnd kl. 7 - 10 MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 10:10 BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 4:30 MÖRGÆSIRNAR 2D Sýnd kl. 3:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 7

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.