Morgunblaðið - 19.12.2014, Síða 52
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 353. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Svikalogn í miðri lægð
2. Missti 52 kíló og 99 kíló án þess …
3. Stigahlíðarhöllin föl fyrir …
4. „Brjálaður gröfumaður“ ruddi …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kammersveitin Camerarctica held-
ur árlega kertaljósatónleika sína í
fjórum kirkjum í kvöld og næstu þrjá
daga. Hópinn skipa að þessu sinni Ár-
mann Helgason klarinettuleikari,
Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryn-
dís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava
Bernharðsdóttir víóluleikari og Sig-
urður Halldórsson sellóleikari. Þau
munu leika tvær af perlum Mozarts,
Eine kleine Nachtmusik og Klarin-
ettukvintettinn, og að venju lýkur
tónleikunum á jólasálminum Í dag er
glatt í döprum hjörtum, úr Töfraflaut-
unni. Þrír drengir úr Drengjakór
Reykjavíkur syngja á tónleikunum:
Benedikt Gylfason, Kjartan Örn
Styrkársson og Tryggvi Pétur
Ármannsson. Tónleikarnir hefjast kl.
21 og fara þeir fyrstu fram í kvöld í
Hafnarfjarðarkirkju, aðrir á morgun í
Kópavogskirkju, þriðju á sunnudag-
inn í Garðakirkju og þeir fjórðu í
Dómkirkjunni í Reykjavík á mánudag.
Kertaljósatónleikar í
fjórum kirkjum
Nýtt íslenskt leikverk, MAR, verður
frumsýnt í Frystiklefanum á Rifi í
kvöld kl. 20 og er sýningin jafnframt
fyrsta jólafrumsýning Frystiklefans.
Verkið er byggt á tveimur sjóslysum
sem urðu við strendur Snæfellsness
á síðustu öld, á árunum 1962 og
1997. Texti verksins er byggður á við-
tölum við aðila sem tengjast slys-
unum og raunverulegum upptökum
frá talstöðvasam-
skiptum á neyðar-
bylgju útvarpsins. Leik-
arar eru Kári Viðarsson
og Freydís Bjarnadóttir,
sem segir sína eigin
sögu í verkinu. Leik-
stjóri er Árni
Grétar Jóhanns-
son.
Fyrsta jólasýningin
Á laugardag Gengur í suðaustan 18-23 m/s með snjókomu eða
slyddu en síðar rigning, fyrst á Suðvesturlandi. Hægara og úr-
komulítið á Norðausturlandi. Hlýnandi veður og hiti 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 10-18 m/s og fer að snjóa fyrir norð-
an og á Austurlandi, hvassast á annesjum. Annars hægari og dálítil
él. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum á Norðausturlandi.
VEÐUR
Valur og ÍR fara í vetrar-
fríið jöfn að stigum á toppi
Olís-deildar karla í hand-
knattleik. Valsmenn stein-
lágu fyrir meisturum ÍBV í
Eyjum en ÍR vann HK
örugglega. Fram vann
Stjörnuna í æsispennandi
fallslag, Afturelding vann
dramatískan sigur á Hauk-
um í Hafnarfirði og FH-
ingar lögðu laskaða Akur-
eyringa að velli í Kapla-
krika. »2-3
Valur og ÍR fara
jöfn í vetrarfríið
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari
karla í handknattleik, valdi í gær tutt-
ugu leikmenn til æfinga fyrir loka-
keppni heimsmeistaramótsins í Kat-
ar. Aron má tefla fram 16
leikmönnum í hverjum leik á HM en
heimilt er að gera tvær
breytingar á milli leikja
ef þörf verður á vegna
meiðsla og hann gæti
því tekið átján með sér
þangað. »1
Fer Aron með átján leik-
menn á HM í Katar?
KR og Tindastóll juku forskot sitt á
önnur lið í Dominos-deild karla í
körfuknattleik með stórsigrum á
botnliðum Fjölnis og Skallagríms.
Njarðvík vann ótrúlega auðveldan
sigur á Þór frá Þorlákshöfn en mesta
spennan var í Breiðholti þar sem
Stjarnan vann nauman sigur á ÍR,
79:78. Þá er Grindavík að rétta úr
kútnum eftir slæma byrjun. »4
Ótrúlegir yfirburðir
Njarðvíkinga gegn Þór
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sjómaðurinn Jón Elíasson er jafn-
framt kertameistari Fjölskyldu-
hjálpar Íslands og hafði í gær steypt
um 4.800 kerti á aðventunni en ráð-
gerir að þau verði orðin um 6.000 áð-
ur en klukkurnar hringja inn jólin.
„Það veitir ekki af til styrktar góð-
um málstað,“ segir hann um kær-
leiksljósin, sem eru til sölu víða um
land.
Jón hefur verið sjómaður í um 50
ár og er nú sjálfboðaliði hjá Fjöl-
skylduhjálpinni fyrir jólin fimmta
veturinn í röð.
„Mig vantaði eitthvað að gera á
milli vertíða,“ segir hann og bætir
við að til að byrja með hafi hann
unnið einn til tvo daga í viku hjá
Fjölskylduhjálpinni við að pakka
matvælum og úthluta þeim. Hann
hafi síðan byrjað að steypa kerti úr
mör fyrir jólin í fyrra. „Við erum í
hinu og þessu og skiptum á milli
okkar verkum en þegar við fórum út
í kertaframleiðsluna vildi enginn
vera í henni, því þetta er óþverra-
vinna með mikilli fýlu þegar mörinn
er bræddur. Ég festist í þessu og hef
fengið hjálparkokka dag og dag eða
hluta úr degi.“
Úr leiðindatíð í hitann
Trillukarlinn er ekki óvanur því að
vinna einn og er ánægður með fram-
leiðsluna en segir að sumarvertíðin
hafi verið léleg. „Ég lenti í bilunum
og svo var helvítis leiðindatíð, en
breytingarnar á veðurfarinu eru efni
í annað viðtal. Það er allt öðruvísi
veður núna en var hérna í gamla
daga.“ Hann gerir trilluna út frá
Bolungarvík og vonast til þess að
geta byrjað aftur á sjónum í mars og
þá fyrir sunnan. „Ég fer til Kan-
aríeyja í tvær vikur í febrúar og
reikna svo með að koma með trilluna
suður og byrja að róa fyrir sunnan.
Ég hef gert það undanfarna vetur
enda tíðin skárri hérna.“
Hitinn er nægur í vinnuskúrnum,
þar sem öllu er haganlega fyrir kom-
ið, og þegar bræðslan stendur sem
hæst er fýla og þá þarf að lofta út.
„Ég þarf að hafa opið til þess að loft-
ræsta þegar eldavélin er á fullu,“
segir kertameistarinn, sem byrjar á
því að hakka mörinn, svo skellir
hann mörnum í pott og bræðir hann,
sigtar síðan hamsana frá, hellir tólg-
inni í safnpott og lætur hana svo
renna í dollurnar. „Ég hafði aldrei
séð kerti steypt þegar ég tók það að
mér, en það er alltaf gaman að prófa
og læra eitthvað nýtt. Það kunni
þetta enginn hérna og því var um til-
raunastarfsemi að ræða, en árang-
urinn var ágætur og kertin hafa
dugað vel, 12 til 15 tíma.“
Vinnan er markviss og ekkert
slegið af. „Ég er alltaf með þrjá um
20 til 25 lítra potta í gangi á eldavél-
inni í einu,“ segir kertameistarinn.
Kærleiksljós Fjölskylduhjálpar
Ráðgerir að
steypa um 6.000
útikerti fyrir jólin
Kertameistarinn Jón Elíasson kann vel til verka og var búinn að steypa um 4.800 kerti í gær.
Kerti Fyrst þarf að hakka mörinn áður en hann fer í pottinn.